Alþýðublaðið - 09.01.1960, Síða 13

Alþýðublaðið - 09.01.1960, Síða 13
London, 31.12. 1959. Herra ritstjóri. VIÐ Julltrúar íbúanna í Nýasalandi skrifum yður kjörnum fulltrúum íslenzku þjóðarinnar í þeirri trú, að raunir og erfiðleikar þeir, sem Nýasalandsbúar revna nú, hafi vak.ð samúð íulltrúa elzta þings veraldar, m. a. vegna þess, að íslenzka þjóð- in bjó sjálf við nýlendustjórn um aldaraðir og barðist gegn erlendri yfirdrottnun þar tií hún öðlaðist sjálfstæði fyrir tiltölulega skömmu síðan. Nýasaland liggur á milli Tanganyika að norðan og norð austan, portúgölsku Austur- Afríku að austan og sunnan, og Rhodesiu að vestan. Land- ið er falleg, löng sp-lda 520 mílur að lengd og frá 50—100 mílur að breidd. íbúarnir eru 3.000.000 Afríkumenn, 7.500 Evrópumenn og 10.000 Asíu- menn. Brezka ríkisstjórnin hefur þvingað Nýasaland inn í Mið-Afríska ríkjasambandið gegn vilja allra Afríkumanna í landinu, sem telja ríkjasam- þandið stofnað í þeim tilgangi að viðhalda yfirráðum Suður- Rhodesíu yfir Afríkumönn- um og Mið-Afríku. Framkom- an gagnvart Afríkumönnum í Suður Rhodesíu er í grund- vallaratr.ðum sú sama og í Suður-Afríku. Ríkjksamband- ið sjálft er valdaafsal Breta til landnemanna í Mið-Afríku. Andstaða Nýasalandsbúa hef- ur verið leidd af afríska þingi Nýasalands, einkum forseta þess, dr. Hastings Kamazu Banda, MD. Þessi andstaða varð svo víðtæk, að yfirvöld- in lýstu yfir neyðarástandi og fangelsuðu án dóms og laga bæði dr. Banda og alla virku meðlimi afríska þings Nýasa- lands, en afleiðingin af því varð óöryggi og árekstrar á meðal íbúanna. Yfirvöldin réttlættu þessar aðgerðir með því sem þeir nefndu „morð- fyrirætlan“. Vegna mikils andófs í brezka þinginu og víðar skipaði brezka ríkis- stjórnin rannsóknarnefnd und ir forsæti Delvin, dómara. Rannsóknin, sem fór að nokkru leyti fram í Nýasa- landi, uppgötvaði ekki neinar fyrirætlanir um fjöldamorð, launmox'ð eða yfirleitt neinar morð-fy.rirætlanir og hreins- aði dr. Banda sérstaklega af slíkri ásökun. Skýrsla nefnd- arinnar er ákæra á brezku stjórnina og nýlendustjórnina í Nýasalandi. Brezka stjórnin hefur hins vegar neitað að samþykkja skýrsluna, kúgun- in heldur áfram, og dr. Banda og flestir aðrir afrísku þing- fulltrúarnir sitja í fangelsi án sakarannsóknar og dóms. Það er hvað þetta_ atriði snertir, sem Alþingi íslend- inga og þér sjálfur getið orð- ið að liði. Brezka konungs- ríkið er eins og ísland aðili að niannréttindasamningi Evrópu. Samkvæmt 63. grein þessa samnings hefur Brezka FÖSTUDAGINN 4. des. sl. var þessi mörgum kunni Reykvíkingur til hvíldar bor- inn, Jósep S. Húnfjörð. Hún- vetningur var hann og Vatns- nesingur í báðar ættir. Hann var sagður fæddur að Illugastöðum 7. jan. 1875 og hefði því orðið 85 ára 7. jan. nk. Foreldrar hans voru Pál- ína Pálsdóttir og Sveinn Guð- mundsson. Aðeins fyrstu árin mun hann hafa alizt upp með móð- ur. sinni, en síðan á ýmsum stöðum á Vatnsnesi, þó að kærastir virtist honum vera í minni Súluvellir, svo sem fram kom í því, að tvö býli sín hér við bæ nefndi hann Súlu- velli. Á uppvaxtarárum Jóseps var hart í ári og öldin bauð ekki upp á annað en að duga eða drepast og kjör einstæð- ingsunglinga mjög ólík því sem nú gerist. Margur slíkur bar aldrei beint bak þar eftir. Oft lá þá ís á Húnaflóa langt á vor fram og harðskeyttar mun Jósep oft hafa séð Ránardætur við Hvítserk fyrir neðan túnið á Súluvöllum og máske hefur lxann tekið sér hann til fyrir- myndar, að ekki skyldi hann I. I ■ f I konungsríkið látið hann ná einnig til nýlendna sinna, þ. á. m. Nýasalands. Á hinn bóg- inn neitar Brezka konungsrík ið, gagnstætt íslandi og öðrum ríkjum, að viðurkenna rétt til persónulegrar skírskotun- ar til mannréttindanefndar- innar, sem þó er leyfð í 25. grein samningsins. Þess vegna felst í ákvæðum 24. greinar eini möguleikinn til þess að hægt sé að skírskota ágrein- ingsefnunum í Nýasalandi til dómsins, en í grein þessari segir: „Sérhver samningsað- ili: má skírskota til mannrétt- indanefndarinnar, um hendur framkvæmdastjóra Evrópu- ráðsins, sérhverriráðsins, sérh ráðsins, sérhverri ásökun um brot annars samningsaðila á ákvæðum þessa samnings‘.‘ Sá möguleiki er því opinn fyrir ísland, að koma. á fram- færi í- nefndinni ákærum og ásökunum um brot á samn- ingnum. Atriði þau, sem fram komu í Delvin-rannsókninni, sýna ótvírætt brot á ýmsum ákvæðum mannréttindasamn- ingsins, sérstaklega 2., 4., 5. og 6. grein. Sérhvert brot á samningnum er rætt í mann- réttindanefndinni fyrir lukt- um dyrum. Eftir að hafa lok- ið rannsókn, sem má fara fram á staðnum þar sem á- greiningurinn er, og stað- reyndir liggja fyrir, reynir nefndin að koxna á sáttum. Við vonum eindregið, að þér sjáið yður fært að stýðja þá tiílögu, að ísland vísi til nefndarinnar einstökum at- riðum um hin freklegu -brot á mannréttindasamningnum í landi okkar, og við höfum mikinn hug á að koma til ís- lands til þess að ræða þetta mál frekar og svara spurn- ingum. ‘Við sendum þetta bréf til ýmissa íslendinga og vonumst til að heyra frá yður um bón okkar, og einnig vonum við að fá tækifæri til þess að tala við yður á íslandi. Þægilegast væri, að þér svöruðuð oss c/o Bernhard Sheridan & Co, 14, Red Lion Square, London, W. c. 1. heldur láta gjálfursöldur heygja sig, því snemma mun hann hafa verið bráðger. Leikvangur Jóseps svo sem flestra unglinga þá var daglegt strit, þrotlaus tangarsókn, er allir háðu sér til lífs, og því tápmeira sem ungmennið var, því fastara var því oftasí beitt. Samlífið við náttúruna og fangbrögð við hennar reginöfl aðaimenntunin. Vorleysingár og önnur reisn lífsorkunnar hefur án vafa v.erið Jósep að skapi og hann stiilt strengi sína þar við svo sem eitt sinn var um bernsku hans sagt: Söng við allar sytrur fjalla Súluvalla drengurinn. Stakan mun snemma hafa verið hans leikfang, svo sem hvorki var úrættis né óalgengt þar í sveit. Barnið lærði að raula stöku á hné hinna eldri og ekki ósjaldan þær, sem dáð ar voru mest fyrir sinn kynngi kraft, og þar sem Jósep var, var jarðvegur fyrir slíkt sæði. Kraftur svall í æðum öllum, ungur fjallið kunni dá. Súluvalla hlíð og hjöllum hefur fallið -drengur sá. Þótt náttúran væri oft ó- blíð, gat þessi fjallshlíð, sem átti eftir að verða þessum dreng að bókarheiti, og allt umhverfið, oft sýnt dásamlega tign og fegurð Þeim, sem hafði kjarkmikla vondjörfung til að bera. Þetta var heldur ekkert hlé- drægninnar barn. Alltaf sóttann upp á brattann, aldrei þróttinn sparði í raun. Efnisgnótt í bragi battann, foar það drótt með stolt í laun. Ungur maður fór Jósep til Hnífsdals og ísafjarðar og var þar lögregluþjónn um skeið. Aðeins með fyrstu konu sinni, Emilíu Guðmundsdótt- ur, átti Jósep börn og af þrem- ur er aðeins eitt á lífi, Vil- hjálmur, blikksmiður hér í bæ. Emilíu missti Jósep eftir 11 ára sambúð og einnig báðar næstiu konur sínar, Sigríði Jónsdóttur, og Björgu Hieró- nýmusdóttur, eftir svipaðan sambúðartíma allar og þurfti því ekki mjög hjátrúarfullan mann til að halda þetta vera áframhaldandi forlög, Fjórðu og eftirlifandi konu sinni Kat- rínu Kristbjarnardóttur giftist hann um 1933. Eftir iað Jósep fluttist til Reykjavíkur vann hann ýms störf og svo sagði mér einn vinnufélagi hans frá, er þeir í ákvæðisvinnu grófu skurði við Rauðará, að aldrei hefði hann fyrir hitt eins skemmtilegan samvinnumann. Þar hefði allt farið saman: dugnaður, verk- lag, ósérhlífni og þó sérstak- lega hinn hugreifi andi, Iog- andi fjör, sem gjörði þrældóm. inn að leik. Upp frá því urðu þeir aldavinir alla tíð. Víðar munu siík gleðiblóm hafa sprottið í götu Jðseps, Ég kynntist Jósep ekki fyrr en um 1930, litlu fyrr en við urðum samstofnendur kvæða- mannafélagsins Iðunnar. Þar var Jósep með lífi og sál, enda unni hann stökunni og kveð- skapnum fölskvalaust. Hann hafði oft haldið sjálfstæðar kvæðaskemmtanir bæði hér í foæ og út um land. Fyrsta hend ingar tillag til hringhendu greip hann utan úr sal, ef til var lagt og hóf þegar upp sína miklu raust, yrkjandi áfram- haldið jafnótt. Það sópaði að Húnfjörð, er hann kom upp til rlíkrar í- , þróttaraunar, leiftrandi sigur- vissan ljómaði í hyerri hreyf- ingu og í mínum augum var hann: Hetja á velli, hýr í spjalli, hyllti smellið orðalag. Eins og félli foss af stalli fram til elli þrumdi brag. Jósep Húnfjörð var heið- ursfélagi Iðunnar og bjóst ég raunar við, að mér færari menn úr hennar röðum mundu sýna minningu þessa mxkla kv.æðamanns þann sóma, að ekki þyrfti við að bæta, Hins vegar er gott þess að geta, að góðar listgreinar hafa vaxið af sterkum stofni, þar sem Vilhjálmur Húnfjörð orti ljóð eftir föður sinn og einn tengdasonur hans samdi lag þar við og annar tengdasonur hans söng það yfir kistu Jós- eps. Til slíks hafði Jósep vel unnið, því að við margs konar tækifæri ekki aðeins orti hann Ijóð, heldur skrautritaði þau líka. T Stökum létt af vörum veitti, vinum rétti á gleðistund. Aldrei frétti, að hann neytti afls að flétta í sára und. Slíkt var ekki aðeins þá Framhald á 14. síðu. Alþýðublaðið — 9. janúar 1959

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.