Alþýðublaðið - 09.01.1960, Síða 16

Alþýðublaðið - 09.01.1960, Síða 16
41. árg. — Laugardagur 9. janúar 1960 — 5. árg. / Páfagarði VATIKAMÐ. — Myndin sýnir er Tisserant kardí- náli færir Jóhannesi páfa XXIII. jólakveðjur páfa- hirðarinnar, kardínála og annarra fyrirmanna. Páf- inn situr í hásæti sínu, en kardínálarnir út frá hon- um við báða veggi. MWVWWWWWMWWmWMMWMMMWWMWWWmWViWWWWWWWWWWWWWMWMMMWWWWWWWMiWM Dýnamíf eða annað spregi- efni. NEW YORK, des. (UPI). — Dýnamítið, hin fræga upp- götvun Alfreds Nóbels, hefur öðlast skæðan keppinaut á heimsmarkaðnum. Ódýrari sprengiefni hafa rutt sér til rúms. Þau eru fiest búin til úr animom’um nítrati, sem er algengt áburðarefni. Er það margfalt ódýrara en dýnamít og sprcngicfni, sem framleidd eru úr nítró-glyseríni. Ammoníum-sprengiefni hafa verið notuð í smáum stíl síðan 1920, en það er ekki fyrr ep á síðustu árum að notkun þeirra hefur orðið almenn. Hinn hörmulegi atburður, er sprenging varð í skipi hlöðnum áburði í Bandaríkj- unum fyrir nokkru, varð til Jjess að athygli manna beindist að ammoníum-nítr- ati. Nú er algengt að hella úr hundrað punda poka af am- móníum í sprengiholu og skvetta síðan logandi olíu of- an í. Hefur þetta lækkað kostnað við sprengingar um allt að þrem fjórðu. í mörgum tilfellum er þó dýnamít hagkvæmara, t. d. við sprengingar neðansjávar. flæða yfir þau. Litlar líkur... FRÚ Ernest Kitleberger í New York eignaðist tvíbura Um jólin. Það hefðj varla verið í frásögur færandi, ef ' hún hefði ekki átt fimm tví- bura fyrir. Læknarnir segja að líkurnar fyrir því að frú- in eignaðist sjöttu tvíburana séu 1:433:626.201.009, — en i hún virðist einfaldlega standa utan við alla statistik. Frú Kitleberger er 38 ára i gömul. ALÞJODAMAL NEW YORK, des. (UPI). — Enska hefur verið nálægt því að vera alþjóðlegt tungumál eftir heimsstyrjöldina síðari, en nú sækir rússneska óðum á. Enginn hefði spáð slíku fyrir tveimur árum. Flaude Piron gerði þetta að umtals- efni er minnst var 100 ára af- mælis dr. Zamenhofs hjá Sam einuðu þjóðunum. Zamenhof er höfundur Esperanto, en út- breiðsla þess eykst stöðugt, en til þessa hefur ekki tekist að fá það viðurkennt sem alþjóð- legt mál. Claude Piron er belgískur og tungumálasérfræðingur Sameinuðu þjóðanna. Hann segir: „— Yfirburðir tungu- máls f alþjóðaviðskiptum byggist á notkun þess í við- skiptum, stjórnmálasamskipt- um og vísindum. Enska er enn fremst í þessu tilliti en franska er númer tvö. Franskan var fram að fvrri heimsstyrjöldinni alþjóðlegt mál, en að f jörutíu árum liðn- um verður það ef til vill rúss- neska, en það fer eftir stjórn- málaástæðum og efnahagsút- þenslu Sovétríkjanna og fylgi ríkja þeirra“. Piron segir að þess verði æ greinilegar vart að Rússar krefjist þess að mál þeirra verði notað á alþjóðlegum fundum. Skólabörnum í lepp- ríkjunum er kennd rússneska og rússneskar bókmenntir flæða yfir þau. „Fram til síð- astliðins árs töluðu aðeins Rússar, Hvítrússar og Úkra- ínumenn rússnesku á fundum Sameinuðu þjóðanna, en nú hafa fulltrúar Tékka og Búlg- ara bætzt í hópinn. En það er einkuin á vísindasviðinu að rússneskan vinnur á. Rússar prenta gífurlegt magn af vís- indaritum og vísindamönnum í öðrum löndum ríður á að geta fylgzt með því nýjasta, sem frá þeim kemur á frum- málinu“. Piron segir að auðveldara sé að læi’a ensku en rúss- nesku, en hún er ekki ein ná- Fi'amhald á 14. síðu. 10 jbús. njósrrarar TOKYO, nóv. (UPI). — Japanska tímaritið Info skýr ir frá því, að rúmlega tíu þús und rússneskir njósnarar séu að staðaldri í Japan. Er starf þeirrá einkum fólgið í því, að safna upplýsingum varðandi bandaríska herliðið í landinu og stefnu Bandaríkjastjórnar í Austurlöndum fjær. Auk þessa eru tugþúsundir Kín- verja og Kóreubúa í Japan, sem njósna fyrir Sovétríkin, ef trúa má Info. Segir blaðið að njósnarar séu settir á ^and á afskekktum stöðum og sé njósnastarfseminni stjórnað frá Norður-Kóreu. Hafa þeir ekki yfir sendistöðvum að ráða, hcldur koma þeir upp- lýsingum fyrir í blikkkrús- um, sem þeir grafa í sand á sjávarströndu, en fiskibátar frá Kóreu koma og sækja dósirnar Jarðskjálfti ALLSNARPS jarðskjálfta- k'.pps varð vart á Selfossi í gær. Átti hann upptök sín unx 20 km. frá Reykjavík. LOS ANGELES. — Ein af flugvélum bandaríska flotans hefur náð hærra en nokkur önnur flugvél. VWWWWWWVUWVWWVWWWWWWWWVWWVVWV Hæðarmet Hinn 39 ára flugmaður, Flint, náði fyrir sköinmii 98.560 feta hæð á Phan'ton Il.-orustuþotu. Fyrra met- ið átti Rússinn Iljúsín, er hann komst í 94.658 feta hæð á TU 431 í júlí s. 1. Flint setti metið í Kali- forníu. Þegar metið verð- Ur staðfest, verður það í fimmta sinn að Banda- ríkjamaður heldur metinu í hæðarflugi. Flint er fyrrverandi or- ustuflugmaður bæði í síð- ari heimssyrjöldinni og Kóreustríðinu. Pliantom II. vélarnar verða nú aðalflugvélar bandaríska flotans. Það er ein hraðskreiðasta flugvél í heimi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.