Alþýðublaðið - 17.01.1960, Side 2

Alþýðublaðið - 17.01.1960, Side 2
jjv Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristjánsson. — Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.),og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi ritstjórnar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. ■{, — Símar: 14 900 — 14 9Q1 — 14 902— 14 903. Auglýsingasími 14 906 — Að- flietur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 35,00 á mánuði. Kjarahót verkamanna UNÐANFARIN ÁR hefur 'launafólk í land- inu gert sér ljóst í vaxandi mæli, hversu varhuga- 7 vert er að treysta á hækkun krónutölu kaupsins til kjarabóta. Ár eftir ár hafa verðhækkanir kom- i ið í kjölfarið og gleypt slíkar hækkanir jáfnharð- an. Um þetta skrifar Jón Hjálmarsson, forustu- maður andkommúnista í Dagsbrún, í verkamanna- blaðinu: Til þess að samningar um hækkað tímakaup nái tilgangi sínum, verður að vera tryggt, að at- vinnureksturinn taki á sig hækkunina og verðlag á vöru og annarri þjónustu hækki ekki af völdum þess. Því aðeins hefur kauphækkunin orðið raun- veruleg kj arabót. Launamenn hafa eignast aukna , hlutdeild í arði atvinnureksturins. Atvinnurekendum hefur hins vegar nú um skeið ávallt tekizt að velta af sér þessari byrði. Atvinnuvegirnir hafa ekki verið taldir þola hækk- aðan reksturskostnað. Þessi þróun hefur komið æ skýrar í Ijós og náði hámarki í síðustu samning- um Dagsbrúnar haustið 1958, þegar það tvennt gerðist samtímis, að samið var um nokkra hækkun á tímakaupinu, og svo hins vegar, að samið var við atvinnurekendur. að þeir fengju upp bættan þann kostnað, sem af hækkuninni leiddi. Þetta samkomulag við atvinnurekendur gerði kaup- hækkunina gagnslausa. Það átti auðvitað að leyna þsesu samkomulagi fyrir verkamönnum. Þeim var laðeins sagt, að ráðherra kommúnista hefði veitt mikilvæga aðstoð við gerð samninganna, en sú „mikilvæga aðstoð“ var einmitt í því fólgin, að , koma á þessum samningi. „Kjarabóíin” var því nákvæmlega þetta: — Verkamenn fá kauphækkun, en sérstaklega er samið við atvinnurekendur um að þeir þurfi ekki að greiða kauphækkunina, heldur eigi verkamenn ©g aðrir launþegar landsins að greiða hann sjálfir I með hækkuðu vöruverði!“ . Jón Hjálmarsson bendir hér á athyglisverðar sfcaðreyndir, sem nauðsynlegt er fyrir hvern verka- mann að skilja. Tillaga Jóns um bót á þessu er að nofca miklu meira ákvæðisvinnu, svo að greitt sé fyrir hverja vinnueiningu, en ekki tima. Það er vissulega mál, sem vert er að íhuga gaumgæfi- lega. i Auglýsingasíml ] Alþyðublaðsins I er 14906 .r—---------------------------------------------- 17. jan. 1960 — Aljjýðubiaðið f 0281 >í — - flilíifldufltM 1 - E | Kandidatakapphlaup í Bandaríkjunum. triiiiiiiHitUiitiiiiuiiítiUiiiúiiniiiíiiiiiiiitiiifiiiiiiiiiiiiiliiuiiiiiuiiiiiiiiiiiiiÚiiiiiiiiiiiiiHitiiiiiiiiittiiiiiiiitliiiiiiÍHdOÍiiiiiiiiiltitiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiÚiiiiitiiiiiiÍitiiiiiiiiiiiiiiú annes h o r n i n u Skattskýrsla send 13 janúar. Á að skilast 15. jan. 'Á' Bréf frá forstjóra M j ólkur samsölunnar af gefnu tilefni. ar í tilefni af bréfi mjólkurneyt- anda í dálkum þínum 13. þ. m.: Mjólkurframleiðandinn austan- fjalls, sem um getur í bréfinu, lagði mjólk inn í Mjólkurbú Flóamanna í 46 vikur á sl. ári, samtals 32364 kg. í 1. flokk fóru 82,0% af mjólkinni, í 2. flokk 16;5%, í 3. flokk 1,5%, en ekk- ert í 4. flokk. Það sem af er þessu ári, hefur öll mjólk hans verið í 1. flokki. að verðfella hana og endursenda hana, eftir því sem við verður komið. Einnig eru bændum veitt ar leiðbeiningar ásamt fleiru. HÉR ER SVO AÐ LOKUM yfirlit yfir flokkun mjólkurnnar á Mjólkurbúj Flóamanna á síð- astliðnu ári, og sýnir það, að sem betur fer flokkast mjög lítill hluti ársmjólkurinnar í 3. og 4. flokk. f 1. flokki 79,90% 3 f 2. — 16,80% 1 f 3. — 3,11% \ í 4. — 0,19% ! Hannes á horninu. ) Útvarpshulir KÓPAVOGSBÚI SKRIFAR: „Póstþjónustan er svo slæm hér í Kópavogi, að engu tali tek- ur, en það er fleira, sem erfitt er. í dag (13. janúar) fékk ég send skattskýrslueyðublöð og enn fremur húsbyggingaskýrsl- ur og fleira. Sú klásúla fylgdi að ég ætti að skila skattskýrslunni ekki síðar en 15. janúar, Allir sjá hvílík fásinna þetta er. Við, sem vinnum alla' daga, getum ekki afgreitt svona mál á sömu stundu og við fáum skýrslurnar i hendurnar. ÞÁ SKAL ÉG geta þess, að með sama pósti fékk ég jólakort, sem stimplað var í Hafnarfirði daginn fyrir Þorláksmessu. — Ég er ekki að gera þetta að um- talsefni til þess að lýsa sök á hendur einstökum mönnum, en þetta ástand er slæmt. Hér er mikil víðátta og vegir slæmir, enda ekki hægt að byggja upp kaupstað á stuttum tíma. En það verð ég að segja, að svona ástand með útburð á pósti er ekki hægt að una við. Það er líka óþolandi að til dæmis skattskýrslur séu sendar með svona litlum fyrir- vara til skattþegnanna.“ STEFÁN BJÖRNSSON for- stjóri Mjólkursamsölunnar, skrif ar mér að gefnu tilefni eftirfar- andi; „Línur þessar eru skrifað- ÞAÐ ER EKKI RÉTT hjá mjólkurneytanda, að sendir hafi verið fimm brúsar af mjólk til rannsóknar í Mjólkurbú Flóa- manna. Það voru tekin fimm sýn ishorn af mjólkinni, þar sem hún var í vörzlu neytendanna. Vegna þess, að þessi sýnishorn eru mik- ið lakari en hin, sem tekin hafa verið. í mjólkurbúinu, er ástæða til að spyrja, hvort mjólkin hafi verið hrærð nægjanlega vel upp, áður en sýnishornin voru tekin, hvort sýnishornin hafi verið kæld strax og þannig um þau búið, að þau hitnuðu ekki á með- an þau voru flutt, kannske í upphituðum stjórnklefa bifreið- ar, alllangan veg til mjólkurbús- ins. HAFI ORÐIÐ misbrestir á þessu, er ekki rétt að taka mikið mark á þessum sýnishornum. Lítið sýnishorn af mjólk er ekki lengi að hitna og spillist þá fljótt og er því með öllu óverjandi að taka mjólkursýnishorn til gerla- rannsóknar, án þess að kæla það strax og halda því vel köldu, þar til það er rannsakað. BRÉFRITARINN spyr margs um það, hvað mjólkurbúið geri við mjólk, sem flokkast í 3. eða 4. flokk. Það er fyrst og fremst reynt að útrýma henni með því Framhald af 5. síðu árin, og bronzpeningar fyrir unga flytjendur, innan 25 ára aldurs. Peningarnir eru mjög haglega gerðir og á þeim mynd Daða Hjörvar gerð af Ríkharði Jónssyni. Þorsteinn Ö. Stephensen tólg til máls og þakkaði fyrir hönd þeirra, sem heiðraðir höfðu verið. Þakkaði hann Helga fyr- ir að gangast fyrir stofnun þessa sjóðs til að efla málefni, sem hann hefði svo lengi unn- að, vernd tungunnar, en sagði jafnframt, að sér fyndist eng- inn maður vera eins vel að slík um verðlaunum kominn og Helgi mundi sjálfur vera. Eldflaugar Framhald af 1. síðu. Foringinn hefur stungið upp á, að Sovétríkjunum verði boð- ið að taka Þátt með Bandaríkja- mönnum í að skjóta eldflaugum á ákveðið svæði, þar sem séu nauðsynleg tæki til að skrá markiðrsem flaugin lendir á, eni slík tæki hafa Bandaríkjamenni notað vð tilraunaskot sín með Atlas-flaugum. J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.