Alþýðublaðið - 26.01.1960, Side 16

Alþýðublaðið - 26.01.1960, Side 16
tWWWtHMWWIWHWWWmtHWWWt v -áfe-as ■ '*pw* A/ý samgönguiæki LOS ANGELES. — Los Angeles á við margvísleg umferðavandamál að stríða eins og aðrar stórborgir. Eitt mesta vandamálið er hvernig 'tengja skuli útborg irnar við miðborgina og hefur nú verkfræðingum borgarinnar dottið í hug, að leysa þetta með járnbraut- um, sem ekur á einum teini í stað tveggja eins og venju- legt er. Undanfarin ár hafa verið gerðar tilraunir með slíkar lestir í Köln. Talið er að þær nái helmingi melri hraða en lestir á tveimur teinum. Það er Alweg-fyrirtækið sem á einkarétt á þessari nýju járnbrautargerð. Sýnir myndin greinilega hvernig vagninn rennur- eftir stein- steyptri’ braut á tvöföldum gúmmíhjólum, en tvö hjól liggja iárétt og halda vagn- inum á réttri braut. Lestin gengur fyrir rafmagni og nær allt að 100 kílómetra hraða á klukkustund, en það er talsvert meira en sporvagnar ná. í framtíðinni má búast^ við, að algengt verði að járn brautir aki aðeins á einum teini, enda er það tal ð margfalt öruggara og þægi- legra. Verða þá brautir þeirra sennilega lagðar í nokkurri hæð yfir jörðu eins- og myndin sýnir. tWlVWWWtVWVWtWW/AMWWWWVW.WWVy.WrtVWVWWWWWMWWMWWW SKJALDARMERKJA- STOFNUNIN í London er fé- lag áhugamanna um skjald- armerkjafræði eins og nafn- ið bendir til. Stofnunin gef- ur út tímarit og í því birtist fyrir skömmu hatramleg árás á hinn þekkta Verkamanna- flokksleiðtoga, fyrrum þing- mann og ráðherra Herbert Morrison, sem í vetur var aðl aður og heitir nú Morrison lá- varður af Lambeth. Saka hin- ir vísu skjaldarmerkjafræð- ingar hann um að hafa brotið allar góðar venjur í Englandi með bví að neita að taka sér skjaldarmerki er hann var sæmdur lávarðstitlinum. Þyk- ir hann með þessu hafa óvirt enska aðahnn. En Morrison fékk óvæntan bandamann í hinu gamla og virðulega blaði Times, sem árum saman hafði margt út á gerðir hans að setia. Times birti nýlega for- ustugrein um betta rnál og sevir bar meðal annars: — Skia 1 c'f:' pieírkiafíræðl ngunum skiátlast herfilega. Sérhver enskur „gentleman" hefur rétt til þess að bera skjald- armerki. Enginn dregur í efa WWUWWMWWWWWVWM, DURBAN, S-Afríku, (UPI). - Sidney Erich Holm, „Haw- Haw lávarður11 Suður-Afríku- manna (útvarpaði áróðri fyr- ir nazista frá Zeesen-útvarps- stöðinni í stríðinu) var dæmd- ur í 10 ára fangelsi fyrir land- ráð. en sleppt úr haldi árið 1948, eftir að hafa setið hálft annað ár í fangelsi. Hann hef- ur nú skrifað bók Hitler til dýrðar, þar sem hann sví- virðir Gyðinga. Hann starfar hjá mennta- málaráðuneytinu í Pretoria, og í þessari nýju bók sinni, er nefnist „Erik Holm, maður- ; inn og skoðanir hans“, segir hann m. a.: „Hinn alþjóðlegi gyðingdómur“ ber ábyrgð á „hnignun vesturlanda“. Holm hrósar Hitler sem ein um mesta manni sögunnar, sambærilegum við Júlíus Caesar. Hann hyllir Þýzka- Framhald á 7, síðu. Furðu farar ÞETTA furðutæki er einskonar mót<yhjól hana froskmönnum. ÞaS er knúið rafmagni og get- ur verið í kafi allt að hálf um þriðia klukkutíma. Froskamaðurinn liggur ílatur á faratækinu og stýrir með höndum og fót um. Það er franskt fyrir- tæki, sem framleiðir benn an nýstárlega farkost. Verðið hefur enn ekki ver ið gefið upp, en rafhlöð- urnar, sem knýja það kosta tugi þúsunda. Myndin sýnir frosk- mann kenna félögum sín um á tælcið. íVVVtVV&VVMVVMV&VVVttMVMVVVM að Herbert Morrison hafi allt af verið fullkominn „gentle- man“ og þar, sém hann hef- ur lifað 70 ár án skjaldar- merkis er ótrúlegt að honum takist það ekki þau ár, sem . hann á ólifuð. Engum Eng- lending ber skylda til þess að eiga skjaldarmerki, en aftur á móti gæti það verið gagn- legt í vissum tilfellum. Hugs- um okkur að Elizabeth drettn ing hringdi' einn góðan véður- dag f Morrison lávarð ; og skipaði honum að koma strax á vettvang klæddan hringabrynju og hjálmi með 12 fullvonpaða menn að berja niður fjandmenn krúnunnar. Hjálmurinn mundi þá skýla hin.um þekktu andlitsdrátt- um hans og skjaldarmerki hans mundi gera mönnum hans auðvelt að fylgjast með honum í bardaganum. En ritStióri Times telur ó- líklegt að drottn ngin vérði fyrst um sinn neydd til þessi að leita verndar lávarða sinna og á meðan sé engin á- stæða fyrir Morrison lávarð af Lambeth að eiga skjaldar- merki. Beztu eigin- leikar beggja TEKIZjT hefur, eftir því sem frétzt hefur frá Rússlandi, að láta vatnafisk og sjávarfisk tímgast saman og afbrigðið kvað hafa alla beztu eiginleika beggja tegundanna. 41. árg. — Þriðjudagur 26. janúar 1960 — 19. tbl.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.