Þjóðólfur - 20.01.1852, Page 2

Þjóðólfur - 20.01.1852, Page 2
290 aralegum málum, stundum rjettar og sannar uppgötvanir í náttúrufræ&i, að jeg ekki tali um marga lærdóma, sem gátu vakið þjóðirnar af svefni vanþekkingarinnar — allt f>ess konar sætti banni. Veraldlegir höfðingjar tóku rit- bannið upp eptir klerkunum, því altjend var það ágætt f>ing til að stemma stiga fyrir upp- fræðingu og frelsi þjóðanna. En þrátt fyrir allar tilraunir ritbannsins fór þó mentun og uppfræðing vaxandi; ognú er svo komið i flestum löndum Norðurálfunn- ar, að ritbannið er annaðlivort með öllu und- ir lok liðið, eða þá Iiefur rýmt sæti fyrir viss- um prentlögum, meir eða minna frjálslegum; og hvar helzt sem það á sjer enn stað, fiá er það víst, að framfiir manna í upplýsingu og mentun hefur á það haft meiri eða minni á- hrif. Samt er og verður það alla daga vist, að eptir því sem upplýsing og frelsistilfinning hverrar þjóðar eykst, eptir því verður rit- bannið æ óvinsælla. Rithannið kirkir orðið í fæðingunni, ekki einungis hið skrifaða orð, sem búið er undir prentun, heldur drepur það orðið þegar í sálu rithöfundsins, með því hann þorir eigi að neytahugsana sinna með fjöri og frelsi, af því hann er hræddur við dóminn, sem ónýtir, ef t.il vill, alla viðleitni hans. Rithöfunilur- inn skrifar hræddur, og ritdómarinn strikar út skjálfandi, ef hann er ekki samvizkulaus. jþað sem tápmikil sál hefur þeinkt og ályktað, þaðer virt og vegið með smásmuglegri nákvæmni. Til vonar og vara verður því rithöfundurinn að skrifa nokkuð ininna, en vel mætti vera, en ritdómarinn aptur strika út nokkuö meir, en hann þyrfti að gjöra. Hve margt hlýtur þá ekki að missast burt, sem gaman og gagn væri að lesa! Hversu ojit ekki einmitt það, sem allur mergurinn er í? jiví það semúter strikað, er mönnum tapað; ritbannið veitir enga uppreisn. 5að setur úrskurði og greind þjóðarinnar skorður, og endemiö kveður svo að orði: „hingaö skaltu komast og ekki lengra“! Vjer. íslendingar, höfum til þessa ekki haft mikið af ritbanni að segja; og er það, ef til vill, mest því að þakka, að penninn hefur, eins og flest annað, verið ofur gjörða- hægur lijá oss. J>ó hefur ritbannið gjörtvart við sig hjá oss um undanfarin ár, og það alltilfinnanlega, með því að hæði hefur tíma- rit hjá oss verið útilokað með öllu frá prent- smiðjurmi, og líka hefur einstökum ritgjörð- um verið bægt frá prentun í henni; og er eptir að sanna, á live gildum rökum slikt hefur verið byggt. j>ess vegna höfum vjer nú fulla ástæðu til að óska þess, þvi lieldur sein út lítur fyrir að pennaletin ætli nokkuð að fara af oss, að livorki þeir sem rita, riti svo, að þeir verulega vinni til að sæta ritbanni, nje heldur hinir, sem vaka yfir velsáemi eins í ritgjörðum og öðru, sjeu i því efni vandlát- ari, en vel sæmir. Á v a r p þjóöfumlctrmanna iil íslcndinga 10. dag ágústmánadar 1851. Ástkæru landar! Oss undirskrifuðum þykir nauðsyn til bera, að skýra yður í fám orðum frá störfum þjóðfundarins, og frá þeim afdrifum, er störf vor og þjóðmálefni yðar þar hafa fengið. Yð- ur er kunnugt, að konungur vor hafði í boö- unarbrjefi sínu frá 16. dag niaímánaðar 1850 sagt svo fyrir, að setja skyldi þjóðfund vorn í Reykjavík hinn 4. dag júlímánaðar í ár. Til þess að hlýðnast þessu konungsboði, og til þess að láta ekki á neinu standa af vorri hálfu, voru allir þjóðfundarmenn þeir, sem von var á til þings, komnir hingað deginum fyrir hinn 4. júli; en samt sem áður setti þó ekki kooungsiulltrúinn, stiptamtmaður Trampe, þjóðfundinn fyr en degi síðar, eður hinn 5. dagjúlím., þar eð hann þóttist þá livorki hafa í hönduin fulla vissu um, að liann ætti kon- ungsfulltrúi að verða, nje heldur þau skjöl, sem leggja ætti fyrir fundinn. þegar nú svona var á statt, og þingmenn vildu hvorki sitja aðgjörðalausir, nje heldur snúa heim aptur við svo búið, tóku jieir til að semja sjer reglur nokkrar mn tilhögun þingstarf- anna, enda studdi konungsfulltrúi að því, og kvaðst skyldi liafa tillit til þess, þegar talað væri um að lengja þingsetuna. Til þessa starfa gengu nokkrir dagar, því þess konar reglur þurfa að vera vand- aðar, ef vel skal fara, enda komu ekki skjöl þau, er nefnd voru, frá stjórninni fyr en viku seinna, og voru fyrst lögð fram á þingi hinn 12' dag júlim. En skjölin voru þessi:

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.