Þjóðólfur - 27.03.1852, Blaðsíða 1
ikýrsla
jarðirkjufjclagsins í Andakýl og Bæjarsveit.
j»ess er getið í maímánaðarblaði 3>jóðólf’s ár-
ið sem leið, með hverjum atburðum jarðirkju-
Qelag hófstíþessum hreppum; þá var þar og
sýnt, livað þeir menn unnu að jarðabótum
þegar á fyrsta ári, sem í fjelagið höfðu geng-
ið. $etta var að vísu nokkur hvöt fyrir l]e-
lagsmenn til að fram halda Bhinu byrjaða góða
verki“; en þó gengust þeir öllu meir fyrir
sljettubótinni sjálfri, sem gjörði þeiin bæði
gagn og sóma í túnum þeirra; og þannig bafa
þeir flestallir sljettað meir en árið sem leið,
og enginn gengið úr skaptinu af hinum fyrri,
nema fátæklingur einn, sem fluttist úr sveitinni
búferlum; en aptur hafa fjórir nýjir bæzt við.
Og segir núhjer frá sljettubótum íjelagsmanna.
Faðmatal.
Br. Ld.
1. Sim. Sigurðss. d Kvikst 10 45
2. Joh. P. Einarss. í I>ingn 10 45
" 3. Gestur Jónss. h Varmal 10 30
4. Sig. Magnúss. í Fossakoti 10 25
5. Jón Bergþórss. á Ytri Skeljabr 10 20
6. Guðm. Sigurðss. á Grímast 10 20
7. Guðm. Ásmundss. í Ausu . 10 20
8. Eggert Gíslas. á Eyri 10 20
9. Jón pórðars. á Syðstufossum 10 18
10. Guðm. Jónss. á Múlast 10 18
11. Kristj. Sigurðss. í Vallnak 5 30
12. Halldór þórðars. í Bakkak 5 30
13. Gróa Gissursd. ekkja á Hvanneyri . . 5 30
14. Sjera Jóh. Tómáss. á Hesti 5 20
15. Teitur Símonars. á Hvítárósi 5 20
16. Magnús Sigurðss. á Miðfossum .... 5 20
17. Jón Gíslas. á Bárust. 5 20
18. llalldór Halldórss. á Vatnsh 5 20
tð. Helgi Oddss. á Hvítárv 5 12
20. pórður Magnúss. á Tungut 5 J2
21. Sigm. Björnss. á Ileggst 5 12
2*2. Einar Sigurðss. samast 5 12
23. Runólfur Jónss. á Innri Skeljabr. . . . 10 45
Margir af þessum mönnum hlóðu líka
tún- og traðargarða; þeir, sem sljettuðu í út-
jöðrumtúna, hlóðu túngarða; hinir, semsljett-
uðu nærri bæjum, hlóðu traðargarða. — Um
leið og vjer nú fáum íjóðólfi skýrlu þessa,
þá biðjum vjer liann að geta þess, að fjelags-
inönnum öllum leikur hinn mesti hugur á, að
láta sjer framvegis verða sem mest ágengt í
jarðabótum; má af því sjá, að eins og opt
getur af litlum neista orðið ljós logi, svo get-
ur líka opt af lítilfjörlegum samtökum í fyrstu
leitt mikinn árangur. Og vildum vjer óska
þess, að þeir af löndum vorum, sem enn hafa
eigi lireift jarðabótum, þeir reyndi til að byrja
á þeim með líkri aðferð, og þeirri, er fjelag
vort stofnaðist með, og sem Jijóðólfur hefur
áður drepið á. Vjer gjörum ráð fyrir, aðfor-
tölur manna í því efni mæti hvervetna fúsum
vilja; viljinn dregur hálft hlass; en ávinning-
urinn knýr menn ósjálfrátt til áframhalds.
Nokkrir Andkýlingar.
Frá nolckrum Árnesingum.
3>egar í Suðuramtinu árið 1837 var stofn-
að fjelag það, sem kallað er #Suðuramtsins
húss- og bústjórnarfjelag" þá þótti það ágæt
fjestyrk þann, sem eptir löguin fjelagsins gjörði
inenn verðuga að heita fjelagslimir; konung-
ur vor og aörir ættjarðar vinir bæði lijer og
erlendis gáfu því gjafir- Og víst hvatti þessi
stofnun alþýðu til jarðræktar, helzt túnasljett-
unar og túngarðahleðslu, svo nokkrir menn
höfðu að fárra ára fresti áunnið verðlaun þau,
sem lög fjelagsins höfðuheitið; enþóvoruþeir
miklu fleiri, sem tóku að bæta tún sín árlega,
án þess að hafa í huga að ávinna sjer verð-
laun þessi; því ástand þeirra var ekki sve,