Þjóðólfur - 20.08.1852, Blaðsíða 5

Þjóðólfur - 20.08.1852, Blaðsíða 5
349 ur styrkur árlega, á meðan þeim opnaöist engi annar atvinnuvegur eður embætti. • Var sú upp- ástúnga alment studd á fundinum, og fjöldi manna gat þess, að þetta hefði komið til tals • víða heima í hjeröðum, bæði á fundum og ut- an funda, og hefði flestir hjeraðsmenn gjört að því góðan róm. Voru þá kosnir í nefnd til að rita álit um þetta mál: sjera Siyurður Gunnarsson, Mar/ús Andresson í Syðra Láng- holti, Gisli Mar/nússon, Jún Samsonsson, sjera Gisli Thorarensen. Jeir lásu upp á- litsskjal um þetta daginn eptir, og eptir nokkr- ar umræður og litlar breytingar, var það sam- þykkt á þá leið, að landsmenn veitti peim J ón u m fjestyrk til sæmilegs uppheldis ár- ler/a, mcðan hagur] þeirra greiddist ek/ci; að Jón Sigurðsson hefði sjer til styrks, fyrst um sinn þetta árið, þá 700 rbd. sem afgangs væri samskotunum til utanferðarinnar í fyrra; en landsmenn vildi veita í ár jafnmikið Jóni Guðmundssyni, og siðan báðum ár hvert með- an við þarf. Var þess getið í niðurlagi álits- skjalsins, að Jón Guðmundsson hefði tekizt á heudur að halda áfram ritstjórn „þjúðólfsíi, sem Sveinbjörn Ilallgrimsson ætlaði að sleppa við hann, þegar þessi Qórði árgangur rits þess væri á enda. Var svo til ætlazt að „Mið- nefndin“ gengist fyrir að láta prenta álitsskjal þetta og senda það öllum þjóðfundarmönn- um, með nokkurskonar áætlun hvað hverri sýslu mundi gjörast að láta i tje að sjálfvilj- ugum samskotum eptir fólksfjölda og efna- Iiag, o. s. frv. Sjera Jón Thorlacius skoraði þá á fund- arinenn, að þeir vildi á einhvern veg aðstoða hina nýstofnuðu prentsmiðju Norðlendinga á Akureyri; hann las upp leyfisbrjef konungs fyrir stofnun hennar, og leiddi því næst fyrir sjónir, að bæði mætti styrkja stiptun þessa með fjárstyrk nokkrum og samskotum, en einkum þó með því, ef fundurinn vildi leggja á ráð og tillögur um, að hún fengi jafnan rjett til að gefa út og prenta hinar eldri guðs- orðabækur, sem hin opinbera prentsmiðja fyrir sunnan; leiddi hann rök að því, að á meðan sú prentsmiðja hefði og hjeldi þessu einka- leyfi, þá gæti hin nýja prentsmiðja ekki stað- izt. Fundarmenn ræddu um sinn þetta mál, og vavð sú niðurstaðan, að landsmönnum mundi yfir höfuð að tala rniklu minni hagur að einka- leyfum prentsmiðjunnar í Reykjavík, og því að hún væri opinber eign, heldur en ef hún væri einkaleyfalaus og eins manns eign, eink- um þegar prentsmiðjurnar væri orðnar tvær, og hvergæti kept við aðra; þvi það hefði sýnt sig, að einstakir menn hefði boðizt til að gefa út hinar útgengilegustu einkaleyfis bækur við helmingi minna verði, en prentsmiðjan seldi þær. j>að þókti og næsta tvisýnt af skýrsl- unum um Qárhag prentsmiðjunnar í Reykja- vík, hvert hún myndi geta staðið í viðunan- legum skilum og fullnægt tilgangi sinum þeg- ar fram liði stundir, svo mjög sem virtist þeg- ar að vera rírnaður fjárstofn hennar frá því hún fluttist úr Viðey. Fundarmönnum fanst því rjettast aö hreifa þessu máli í blöðunum, og sjá siðan, hvort ekki virtist full ástæða tii að semja almennar bænarskrár til alþingis, um að selja hina opinheru prentsmiðju í eign ein- staks manns með engu einkaleyfi á prentun nokkurrar bókar, svo báðar prentsmiðjurnar mættu síðan standa jafnt að, keppa hyer við aðra um vöndun útgáfanna og verðgæði, og landsmönnum siðan gefast kostur á að fá bæk- ur sínar með sem beztu verði, og þó sem bezt gerðar úr garði. 3>ar næst var því hreift, hversu nú væri komið apturskilun þjóðfundarkostnaðarins, sem krafizt hafði verið í vor ástæðulaust, og stjórninhafði skipað að skila aptur tafarlaust, þarsem búið heíði verið að kreQa hans. Varð það þá ljóst af skýrslum manna, að þegar slepti af Suðuramtinu, nema Árnessýslu, því þar væri engu skilað, þá mundi gjaldi þessu enn sem komið væri hvergi vera aptur skilað, þar sem það hefði verið heimtað, nema í Mýra- sýslu. Jað varð og ljóst, og þókti merkilegt, að sumstaðar hefði Sýslumennirnir nefnt þetta al- pinr/iskostnað, bæði í þingboðsseðlum sinum og kvittunum. Flestir fundarmenn sögðu að sýslu- menn þeirra bæri fyrir, að þeir hefði til þessa enga visbendingu fengið um það frá stiptamt- manni, hvað miklu peir ætti að skila aptur, og þvi lieíði þcir ekki getað gegnt skipan stjórnarinnar hingað að. Fannst mörgum þessi hlýðni við beina skipan hennar ekki vera eins tafarlaus eins og lagt var fyrir, og leiddi menn rök að því, að hjer leiddi af, og myndi leiða margan óhagnað og óvissu í viðskiptum milli jarðeigenda og leiguliða. Var því þá

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.