Þjóðólfur - 05.11.1852, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 05.11.1852, Blaðsíða 1
• 4. Ar 5. Riovember. 93. og 94, (Að feng-ið). HuyvcJtja urn skólann í Reykjavik. J*að er rjett í alla staði og nauðsynlegt, að lýðurinn hafi vakandi auga á |>vi, hvernigfer fram við liinn einasta skóla landsins, [>ar sem embættismanna efnin öll eiga ekki að eins að menntast og mannast, lieldur og meðfram að uppalast, svo að þeir geti ásíðan gegnt kallan sinni sjer til sóma, og landi og lýð til heilla. Jvi er vart nokkurt það einstaklegt málefni svo, að menn hafi eða ætti að liafa eins al- rnenna liugsan á því og jafn ahnennar mælur, sem á málefnum skólans, því þau snerta alla án undantekningar, foreldrið sem barnið, rík- an sem snauðan, yfirboðarann sem liinn und- irgefna; því frain við alla kemur það síðar meir, einn sem annan, þó ekki verði við alla jafnt, hvernig embættisinennirnir eru undir- búnir, og hvernig þeir gefast til að gegna liin- um ýmsu embættum, sem þeir verða í settir. £ví er það von — já það er vel •— þó lýður- inn hleri eptir, og haldi spurnum fyrir því, hvað við skólann gjörist, og þó hann ætlist til þess af dagblöðunum, að þau hreifi þess- um málum, hvenær sem þörf er á og tilefni til, og að þau leiðbeini mönnum að kveða upp rjetta og óvilhalla dóma um það sem fram fer, eða að minnsta kosti aptri því svo sem verður, að dómarnir verði ástæðulausir og hlutdrægir, með því að skýra satt og rjett frá því sem gjörist, og öllum aðdraganda þess, eptir því sem liann getur verið kunnur. íað getur ekki hjá því farið, að ýrnsar sögur, og þaðan ýmsir dómar spinnist hjer og hvar og dreifist víðsvegar um landið, um hinn nýja meistara (Rector), sem til skólans kom í fyrra, herra Bjarna Jónsson, bæði út af stjórn hans á skólanum næstliðið ár, og svo út af því, sem gjörzt hefur í sumar og skor- izt í, milli lians og yfirstjórnenda skólans (Stiptsyfirvaldanna). Að einu ári liðnu, frá því Dr. Sveinbjörn sálugi Egilsson lagði niður meistara embættið, tók við því í fyrra haust, herra Bjarni Jóns- son. — Hann hafði dValið alls 22 ár erlendis, ferðast til annara landa (Englands og Frakk- lands), og kynnt sjer allt fyrirkomulag skól- anna í þeim löndum, verið 17 ár kennari og yfirkennari við góða skóla í Danmörku, stað- ið þann tima undir duglegum meisturum, og þókti þar liinn nýtasti kennari. 5ví hugðu menn hann betur fallinn til meistara hjer við skólann, en nokkurn annan sem völ var á, ineð því maðurinn var líka talinn einkar vel að sjer í lifandi og dauðu málunum, sem al- mennt eru kend við skólana, og leikinn í að kenna þau. 3>egar hann var búinn að taka við stjórn skólans, mun honum brátt liafa skilizt, að henni þyrfti að haga á annan veg en verið hafði, ef hún ætti að ná tilgangi sínum og verða svo affaragóð, sem skyldi. Hann þókti þegar vandur að kennslu skólasveinanna, og öllum aðbúnaði, en ekki síður uinvöndunar- samur um reglusemi sjálfra þeirra, siðferði, ástundan eg framfarir. En hve margir unna nýbreytni sannmælis, sem fyrir henni verða, ef hún fremur stefnir að umvöndun en til- slökun? fáir sem engvir fyrst. í stað; sumir aldrei. Jví má ogvera, að þegar skólasvein- arnir snjeru heim til föðurhúsanna í vor, þá hafi fáeinir þeirra verið miður ánægðir meö meistarann, og má ske þess vegna ekki bor- ið honum betur söguna en til stóð; en út af þvíumlíku geta spunnizt afbakaðar sögur og ýktar,og ajitur af þeim niisjafnir og ástæðu- lausir dómar. Vjer dyljumst ekki við,' að oss liafi borið fyrir eyru eitthvað á þá leið, en

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.