Þjóðólfur - 04.07.1865, Side 5
143 —
ræðu og lýsti liið 10. Alþíng sett í nafni konúngs;
en þá stóðu upp allir þíngmenn og gullu við:
lengi lifi konúngr vor Kristján liinn IX. með þre-
földu »lnirra«.
}>á skoraði konúngsfulltrúi á þíngmenn að
segja til, ef þeir findi ástæðu til að vefengja kosn-
íngar nokkurra þeirra þingmanna, ernú hefði verið
kosnir og komnir væri til þíngs, og gat þess um
leið, að hann findi að vísu eigi beina ástæðu til
að vcfengja neina þeirra, en yrði þó að vekja máls
á kosníngu þíngmannsins sem mætti fyrir Reykja-
vík, þar sem kjörstjórnina sjálfa liefði ágreint um,
hvort hann væri kjörgengr. — Halldór Friðriksson
tók þá í þann strenginn, og kvaðst verða að álíta
enn sem fyr að kjörgengi hans væri ósannað og
kosrfsng lians ógild, og skaut hann þvi undir at-
kvæði og úrskurð Alþíngis. Útaf þessu spunnust
alllángar umræður; fyrir lögmæti kosníngarinnar
töluðu þeir sira Stefán Thordersen, Jón Pjeturs-
son, Petr Guðjohnsen, sira Arnljótr Olafsson, Dr.
Jón Iljaltalín, Bened. Sveinsson, en í móti:
Jón SiQurðsson frá Khöfn, Jón Guðmundsson,
Jón Sigurðsson frá Gautlöndum, og sira Eiríkr
Kúld, og lýsti konúngsfulltrúi sjálfr því yfir, í lok
umræðu, að hann yrði að vera á sama máli eins
og mótmælendr kosníngarinnar, að sannanir skorti
fyrir því að S. Jacobsen væri nú búinn að afla
sér þeirra lögákveðinna kjörgengiskosta, að hann
væri þegn Danakonúngs og fjár síns ráðandi, er
hann hefði vitanlega og augsýnilega skort, eða
látið ósannað að hann hefði, þegar kosníngin fór
fram. Var þá gengið til atkvæða með nafnakalli,
umþað hvort kosníngin skyldi vera gild eðr ógild,
og var hún feld með IG atkvæðum gegn 9. Já
SÖgðll: (ArnljAtr Ólafsson, 15ene<l. Sveinsson, Helgi Thord-
ersen, Jón Hjaltalín, Jón Pétrsson, Petr Guíijohnsen, Pétr
Petrsson, Stelán Thórdersen, Sveiun Skúlason). JVeíSÖgðu:
(Asgeir Einarsson, Bergr Thorborg, Bjtirn Petrsson, EiríkrKúld,
Halldór Friilriksson, Hjálmr Pétrssou, Jóu Bjarnason, Jón
Gubmundsson, Jón Pálmason, Jón Siguríisson frá Gantlönd-
um, Jón SiguÆssou frá Kh'ifn, Olafr SiguÆsson, Sighvatr
Ar»ason, Stefán liiríksson, Stefán Jónsson, Svoinn Níelsson;
1 fi*rverandi: sira Halldór; Svb. Jacobsen sjálfr greiddi ekki
atkvæbi). Og var þarmeð lokið þíngsetu Svb. Ja-
cobsens, en konúngsfulltrúi er nú búinn að kveðja
til þings, í jlans varaþíngmann Reykvikínga
Magnús óðalsbónda Jónsson í Rráðræði.
(>á skoraði konúngsfulltrúi á hinn elzta þíng-
mann, Helga biskup Tliordersen að gánga til for-
setastólsins og gángast fyrir kosníngu forseta á
þessu þíngi; gjörði hann svo, og var þá kosinn
til forseta Jón Sigurösson skjalavörðr með 19
atkv. (sira Halldór lilaut 3 atkv. Dr. Pétr og Jón
Guðmundsson 1 atkv. hvor), og gekk hann til for-
setasætis; þá var kosinn varaforseti Jón Guð-
mundsson málaflutníngsmaðr með 12 atkv. (Dr.
Pétr hlaut 9 Jón Pétrsson 2, Sv. Skúlason 1 atkv.),
en til skrifara voru kosnir sira Eiríkr Iiúld
með 1S atkv. þeir Bergr Thorberg og Haldór
Friðriksson hlutu 9 atkv. hver, var þá kosið um
aptr, og hlaut Haldór Friðriksson þá 13 atkv.
Konúngsfulltrúi afhenti forseta konúnglega
Auglýsíngu til Alþíngis, um árángr af þegnlegum
tillögum þess og öðrum uppástúngum á fundin-
um 1863, dags. 9. f. mán., og þarnæst þessi kon-
úngleg frumvörp og álitsmál:
1. Frumvarp til laga um nýtt fyrirkomulag á
fjárhagssambandinu milli íslands og konúngsríkis-
ins. Frumvarpi þessu fylgdi: »álitsskjöl« nefndar
þeirrar, er skipuð var með allrahæstu erindisbréíl
20. Sept. 1861 til að segja álit sitt og gjöra uppá-
stúngur um fyrirkomulag á fjárhagssambandinu,
o. s. frv.
2. frumvarp til op. bréfs, er skipar fyrir um
ýmislegt er snertir póstgaungur« (höndlar að eins
um póstbréf og póstpakka að því leyti þeim þurli
að koma sjóleiðis með kaupförum og flutníngsskip-
um sem eigi erit regluleg póstskip).
3. Frumvarp til laga »um laun handa íslenzk-
um póstembættismönnum«.
4. Frumvarp til laga »um breytingu á 6.
og 7. gr. í lögunum 15. Apríl 1854 um siglíngar
og verzlun á íslandi«. (Aðalbreytíngin sem frum-
varpið stíngr uppá, er fólgin í því, að eptirleiðis
skuli lestargjaldið af kaupförum vera 4 rd. eptir-
leiðis, í stað 2 rd. er áðr var, nema því að eins
að skipið komi farmlaust eða ekki hafi annan farm
innanborðs en timbr, steinkol eðr salt).
5. Frumvarp til tilskipunar »um Iaun hrepp-
stjóra á íslandi« (þar er stúngið uppá, að hrepp-
stjórar fái 20—40 rd. laun árlega auk undan-
þágunnar sem verið hefir frá þínggjöldum, og
greiða % af hreppnum, eptir sömu reglum sem
aukaútsvar til fátækra, en '/s úr jafnaðarsjóði
amtsins.
G. Frumvarp til lilskipunar »um að gjöra
verzlunarstaðinn ísafjörð að kaupstað og um stjórn
bæarmálefna þar«.
7. Frumv. til op. bréfs »um að stofnabygg-
íngarnefnd á kaupstaðnum ísafirði«.
8. Frumv. til laga »um brennivíns verzlun
og brennivínsveitíngar á íslandi*.