Þjóðólfur - 13.02.1866, Síða 2
— 58 —
hálsinn; hún heíir horíið og ekkert mein afhenni
orðið, þó engi önnur meðöl cn teðir dropar liafi
verið við höfð.
En svo ágætir sem þessir dropar sýnast í
verkan sinni í byrjun veikinnar, þá er engi von
að þeir geti alveg uppleyst himnuna í kokinu, þá
er hún er mögnuð orðin; það geta þeir eigi, og
því álít eg að verkun þeirra nái að eins fyllilega
í byrjun veikinnar, áðren hirnnan er fullmynduð.
Læknir nokkur norskr IJoegh að nafni við hafði
þá eptir ráðum enskra lækna í ákaflegri barna-
veiki, hvar í alls láu 320 börn, og hvar af hon-
um tókst að frelsa 255 en 65 dóu. Hann hrósar
þeim sérlega mikið og sama gjöra allir enskir
læknar, sem nú í hin 5 seinustu ár hafa ritað um
veiki þessa. Meðal þetta er og á hinn bóginn
svo skaðlaust og óhult fyrir börn og fullorðna, að
það getr í sjálfu sér ekkert illt gjört, en á eins
og öll önnur járnmeðöl mjög vel við líkamann.
Eg er vanr að gefa dropa þessa eptir aldri harn-
anna frá 4 til 10 dropa, eða únglíngum allt að
20 annan hvern tíma í vatni og stundum jafnvel
hvern tíma.
Meðal það, er Chlorkali heilir, hefir og á
seinni tímum verið mjög alment við haft við hinni
himnukendu hálsbólgu. Franskir læknar hafa eink-
um haldið því fram, og eg hygg það gott meðal,
sé það gefið í tækan tíma og í nógu stórum
skömtum. Eg er vanr að gefa það í saft og
heldr meir en aðrir. lJarn eitt hér í bænum, lið-
uglega ársgamalt, sem var aðframkomið þrátt fyrir
sterka uppsölu frelsaðist eptir að eg hafði fyrir-
lagt móðurinni að gefa því Chlorkalisaft, 1 teskeið
hvern annan tíma og 5 júrndropa og svo hvern
annan tíma, svoleiðis að barnið fékk á hverjum
tíma, annaðhvort eina teskeið af saftinni eða 5
járndropa í vatni, og þessu var lialdið áfram nótt
óg dag í 2 dægr. Ailir sem sáu barnið, töldu
það af, og mig furðaði næslum sjálfan á, að því
gat batnað.
Bæði þessi seinast töldu meðöl eru hér lil -
taks á Apothekinu með fullri fyrirsögn hvernig
við hafa skuli.
Enskr læknir Dr. Hamilton að nafni, hefirný-
lega við liaft nýtt meðal við barnaveiki er Jodkali
lieitir; hann var svo heppinn, að hann af70börn-
um misti að eins fá. Eg hefi enn þá eigi reynt
þetta meðal, en mun gjöra það við fyrsta tækifæri.
Verstr þykir nú hvervetna agndofinn eða mátt-
leysið, sem fylgir hinni himnukendu hálsbólgu
»Diphtheritis«, og er eins og maguleysi (Para-
lyse). J»etta er allt af að ágjörast á hinum seinni
árum, svo börnin líða út af alveg þróttlaus, þó
engi fyrirstaða sé í hálsinum. Magnleysi þetta
hefir sýnt sig samfara lienni á nokkrum hér í sum-
ar, og verðr það alveg banvænt ef eigi er aðgjört
í tíma. Fáir sjúklingar sem við hafa járndropana
og Chlorkalisaftina í tækan tíma, munusamt fá það.
þegar bólga er í barkakýlinu og barkanurn
(»Croup«) eða í lúngunum, læt eg alltíð við hafa
ískalda bakstra ásarnt uppsölunni, og hefi eg opt
séð af þeim hið mesta gagn, enda álíta margir af
hinum bezlu læknum þá alveg ómissandi nú á
dögum. I sumar var barn eitt 5 ára gamaltkomið
i opinn dauðann af barkakýlis og barkabólgu, sem
sló sér niðrí lúngun með miklum hita þýngslum
og hryglu fyrir brjóstið; eg lét sívefja allt brjóstið
og hálsinn i votum dúki sem skipla skyldi jafn-
ótt og hann hitnaði, en utanyör hann létegleggja
annan þurran eins og tíðkast meðat vatnslækna.
Konan sem átti að passa barnið gjörði þetta með
mikilli kostgæfni, enda batnaði og barninu að
mestu leyli við þetta eina meðal, því þó við haft
væri laxermeðal urn leið, gat eg engan veginn
þakkað því þá góðu verkun. f>egar slíkir kaldir
bakstrar eru við hafðir hvort heldr á hálsinn, eða
á allt brjóstið, verðr að hafa til þess býsna stóran
dúk, sem alvættr sé í köldu vatni og svo undinn,
að eigi renni úr honum ofaneplir barninu, og skipt
skal honum jafnótt og hann er heitr og þurr orð-
inn. þess vegna er bezt að hafa 2 dúka og láta
annan liggja i köldu vatni meðan hinn liggr við
barnið. þó börnin kunni í fyrstu að láta illa við
köldu bakstrana, fer það strax af þeim, er þau
finna hvaða svíun þau fá við þá. |>að er auðvit-
að, að þetta meðal getr eins og öll önnur orðið
árángrslaust þegar sjúkdómsmegnið er ákaflegt, en
það verðr þó jafnan eitt með hinum beztu með-
ölurn sem opt hjálpar, einkum sé það við haft
öndverðlega í sjúkdóminum, og það verð eg að
játa, að þegar barnaveikin byrjar með miklum hita
og sótt samt bólgu í barkakýlinu eða lúngnapíp-
unum, þá er hið bezta meðal undanfellt, sé þetta
eigi við haft á þann hátt sem nú var sagt.
I>að hefir áðr verið venja að leggja spansk-
flugnaplástr á hálsinn og brjóstið í »Diphtheritis«
eða hinni hímnukendu hálsbólgu; margir læknar
ráða nú frá því, er þeir eru hræddir um að þær
auki bólguna í kjálkakirtlunum sem næstum ætíð
fylgir veiki þessari á börnum, og með því niér
hefir reynzt svo að eigi sé uggvænt um, að svo
fari, hefi cg á seinni tímum opt slept þeim, en