Þjóðólfur - 19.03.1866, Qupperneq 4
80 —
til þess að viðrétta og við reisa, og til þess að
bæta úr því sem 18. öldinni vannst að spilla, og
engi getr sagt að ekki sé víða og í mörgu orðinn
sýnilegr vísir sá til viðréttíngar og endrreisnar
þessa lands sem 19. öldin ein hefir niðrsáð. Alda-
mót, 18. og 19. aldarinnar eru og verða hin merki-
legustu aldamótseinnitímanna, sem yfir Island hafa
komið, það mun saga vor aldrei bera til baka.
Allir hlutir undir himninum hafa sína stund
og sinn stað, og hver öldin hefir í fari sínu, hjá
hverri þjóð sem er sína viðburði, sína stjórnendr
og sína menn. þetta hvað með öðru er það sem
ýmist styðr að því, að alltstandi ístað í landinu, og
haldist á aptrfarar- og hnignunar rekspölnum, eðr
aptrímóti að því, að þjóðin vakni við og taki nýa
stefnu til viðreisnar og framfara. En það skeðr
ekki nema guð veki upp hjá lýðnum einhvern þann
ágætismann og yfirburða mann, sein hafi þrek og
áræði til að afneita og sjá á bak öllum hagsmun-
um og liinum glæsilegu og góðu dögurn embættis
og metorðavegsins, en hafi óbilánlegan vilja til að
leggja sig allan fram fyrir fóstrjörð sína og þjóð,
leggja í sölurnar alla tímanlega hagsmuni og hags-
munavon, ef þvíerað skipta til þess að lialda uppi
rétlindum þjóðar sinnar, en vekja hana sjálfa til
viðrkenníngu um tilveru sína og þjóðerni, og til
viðreisnar og sjálfsforræðis.
Svo sannarlega sem þelta 33 ára miðbik 19.
aldarinnar, sem nú er liðið, ber augljós merki
um endrvöknun vora, um það, að hér sé farin að
ryðja sér veg viðreisnar- og framfara stefna, og svo
sannarlega sem saga vor verðr að viðrkenna þetta
og getr cigi látið þess ógolið, svo sannarlega mun
og sagan tengja við hvern þann viðburð nafn liins
eina mikilmennis 19. aldarinnar meðal Íslendínga,
nafn hins eina mannsins, er hefirverið og er enn
aðalsálin í þeirn framfara viðburðum, sem nokkuð
kveðr að, verið þar forvígismaðr og leiðarstjarna,
landa sinna hvort sem heldr lá fyrir að leggja
niðr óyggjandi undirstöðti og stefnu viðburðanna,
eðr að ryðja allri fyrirstöðu úr leið, og fá þeim
svo fasta braut og greiðan veg, eða að hvetja,
leiðbeina, leiða og styðja Islendínga til þess að
halda saman og brjótast áfram liinn rudda feril
og fá svo viðburðunum fullan framgáng og festu
bverjum fyrir sig.
Jjegar slepi er hinum ágæla konúngi Iíristjáni
8., verðr það þá eignað eðr þakkað nokkrum manni
þessarar aldar, að Alþíngi Íslendínga var stofnað,
öðrum en þessum eina fofvígismanni Íslendínga á
19. öldinni? gctrþað átt heima við nokkurn ann-
an Íslendíng þessarar aldar,sem sagt hefir verið
opinberlega um þenna eina og sama ágætismann:
»haun hefir«, — í þessi 20 ár sem Alþíngi heíir
staðið, — »leitt það í barndórni þess, treyst það
og stefnt því á réttan veg«? Verða nokkrum manni
öðrum tileinkuð hin greiðu og ómetanlegu afdrif
verzlunarfrelsisins á íslandi, eðafesta sú, samheldi
og fylgi, er þjóðfulltrúarnir í því máli gættu á Alþíngi
1849 og á þjóðfundinum 1851, gegn þessari ofreflis
mótspyrnu embættismanna vorra (hinna konúng-
kjörnu) og kaupmanna? Ilver hefir annar en þessi
eini Íslendíngr 19. aldarinnar, haldið uppi þjóð-
erni voru, þjóðrétti og landsrétti á móti villulær-
dómum J. E. Larsens og annara stjórnarmanna,
niðrbrotið þær kenníngar, og knúð svo ríkisstjórn-
ina til að viðrkenna náttúrlegan rétt vorn til sjálfs-
forræðis, viðrkenna, að einvaldsstjórnendr næstlið-
inna alda í Ðanmörku liafi freklega misboðið þeim
rétti vorum og öðrum þjóðréttindum, og nú um
síðir að gjöra íslendingum kost á að taka við fjár-
forráðum sínum og sjálfsforræði að öðru ? Og ef
að bér hafa komið fram á meðal vor nokkrir þeir
menn, og það máske fleiri en við varð búizt, þótt
fáir sé, er hafa tjáð sig fúsa og eigi verið óhæf-
ir til að styðja að því, sem hér var verið að reisa,
hverjum er það þá öðrum að þakka heldren hin-
um sama yfirburðarmanni aldarinnar? J»ví liann
hefir eigi að eins vakið upp úr »doðadúrnum
dróttina orku vana«, lieldr hefir honum einnig
fylgt það,'sem öllum yfirburðamönnum hefir fylgt
og mun fylgja: að þeim tekst að vekja upp og
draga fram ýmsa góða krapta til fylgis sér og hin-
um góða málstað fóstrjarðarinnar, þá, er mundi
hafa að litlu gætt eðr að alls engn, ef að ekki
nyti að slíkra manna. það er margt mannsefnið
enda í hverju sem er, sem aldrei fær neina hvöt
eðr kost á að sýna sig, margt gott sjómannsefnið,
sem aldrei þykir takandi á flot, af því hann átti
aldrei kost á skiprúmi eða að læra sjó hjá að-
kvæða formanni, en hjá aðkvæðaformanninum getr
líka hver meðalmaðrinn og enda liðleskjan orðið að
liðsmanni, enda þótt bezta hásetaefnið hans geti
aldrei náð þángað tánum sem yfirburðaformaðrinn
hefir hælana.
þóað t. d. undiryfirstjórn Gúslav Adolpli og Na-
poleon miklakæmi upp ótal afbragðs liershöfðíngjar,
þávarðsamt engi þeirra hálft ígildi Gustavs Adolphs
eðr Napoleons. J>ví það er og verðr sá munrinn
á afbragðs þjóðmæríngmun og þeim, er mannast
undir merkjum hans og handarjaðri, eins og er á
króneikinni í frumskógunum og 'smákvistum þeim,