Þjóðólfur - 02.06.1868, Qupperneq 2
kaupmenn vorir kvað hafa keypt þær vörur hans,
er ætlaðar voru til Vatneyrar. |>að er haft fyrir
satt, að Duniel kaupmaðr Johnsen (Arason úr
Hafnarfirði), er fyr var verzlunarstjóri Sass á Isa-
íirði en hefir nú um nokkur ár rekið lausakaupa-
verzlun um Austfjörðu, ætli nú að taka við verzl-
un tengdaföður síns, P. Duus kaupmanns í Kefla-
vík, er bæði tekr nú fast að eldast og hefir legið
þúngt öðruhverju síðan á útmánuðum, og ætli þeir
mágar Ham Duus og D. A. Johnsen að veita
verzluninni forstöðu eða taka við henni í félagi.
En til að halda uppi vanalegri iausakaupaverzlun
sinni á Austfjörðum hefir hann (D. A. J.) gjört út
skip nú sem fyrri, og sett Jón Sturlaugsson, ætt-
aðan af lsafirði, yfir þá verzlun. Hinn enski kaup-
maðr Englis, er getið var í fyrra að ætlaði að
reisa verzlun i Stykkishólmi, hefir nú keypt þar
verzlunarluis og reiðirþángað vörur; Egill (Svein-
bjarnarson) Egilsson er þar verzlunarstjóri bans.
— f>eir Henderson og Anderson eru að vísu ekki
gjaldþrota þó að það hafi gengið fjöllunum hærra
hér í vor, en ekki kvað þeir ætla að reíða kaup-
staði sína hér á landi sumarlángt með neinum
vöru aðflutníngum.
— Ekki ber enn á því síðan póstskip kom, að
verðlag eða prísar vægni hér í staðnum, nema á
kornvörunni: 13 rd. rúgr, 13*/a rd. mél 12lpd., 14
rd. baunir, 15 rd. bánkab., enda er eigi annað að sjá,
en að kornvaran hafi fallið nokkuð í verði og verið
að fatla síðan um miðjan Apr. þ. á. — Kornakrarnir
horfðu og mæta vel við alstaðar utanlands, sakir
hinnar einstöku veðrblíðu og hita, einsog gjör er
skýrt frá í fréttunum. — Eptir bréfi frá Vest-
manneyum 2. f. mán., var aðflutta kornið selt
þar 13 rd. rúgr og baunir; 14 rd. bánkabygg; og
að kaupmenn þar gæfi von um, að ullin yrði vel
tekin. _________
FRÉTTIR FRA LONDON 18. MAÍ
eptir hr. kandid. Jón A. Hjaltalín* 1.
Eg tek þar til, sem eg hætti, er eg skrifaði
1786 — 1790. Var þa?) frá upphafl koiuíngseign, og bjgt og
haft til þess a'b geyma í valina („fálkana"), er þá voru
veiddir í snörnm og fluttir út sem ónnur kúngsgersemi, eink-
um hinir hvítu valirnir; þess vegna var hús þetta jafnan
kallatl „Fálkahúsit)" fram á vora daga. — Fast vestan
undir því stóí) „gapastokkr“ Eeykjavíkr súknar" framyflr alda-
mútin.
1) Af því vfer sjánm fram á, aþ þessum rækilega frétta-
pistli óllum veiílr eigi komit) í þetta eina nr., heldr vorþr
aí) skipta honum niþr í 2 blöþ, þá höfum vór leyft oss aþ
breyta kór niirskipan fréttakaflanna þaunig sem hér kcmr fram,
aþ geyma til næsta blaíis kaflanu um „Fcuia“ og írsku ú-
yðr síðast í Nóvembermánuði. |>að sem eptir var
af árinu var fremr hriðjusamt og slysótt, og sé
eg að þér hafið þegar haft fregnir um það, t. a-
m. um jarðskjálftann og ofveðrin í Vestrbeimsey-
um í lok Októbermánaðar, þótt ekki reyndist mann-
skaðinn eins gífrlegr og fyrstu fréttirnar sögðu.
Líkra ofsastorma varð og vart á Austrindlandi, í
Kína og víðar um sama leyti, og varð að þeim
allmikill skaði bæði á mönnum og eignum. Eld-
fjallið Vezuvíus í Italíu byrjaði að gjósa 13. Nóv-
ember, og hélzt gosið við öðruhvoru fram eptir
vetrinum að minnsta kosti fram í Febrúar; urðu
að því allmiklir skaðar eins og fyrri; 28. Janúar
hrundu allmörg hús og fjöldi manna lézt; varþað
af jarðskjálfta, er stóð í sambandi við eldgosið.
En nú er gos þetta víst hætt fyrir nokkru, því að
þess hefir eigi um lángan líma verið getið í blöð-
unum. Ilúsbrunar voru og tíðari, en venja er til
hér í London fyrir lok ársins, og hið merkasta
af þeim húsum var leikhús eilt, er kallast »Her
Majest’s Theatre«; það var eitt af hinum stærstu
og skrautlegustu leikhúsum hér; það brann 6. De-
sember um kveldið, og mátli sjá logann víðsvegar
að, eins og þegar eldfjöll gjósa, brann þar alltfé-
mætt, svo veggirnir einir stóðu eptir, en svo vildi
heppilega til, að enginn leikr var þar þetta kveld,
og varð enginn mannskaði.
Vetrinn hefir verið hér einkar blíðr, svo ekki
hefir hér sézt föl á jörðu nema litla stund úr degi
einn dag; nætrfrost voru nokkrar nætr í Janúarog
Febrúar, líkt og stundum er hjá oss í byrjun Sept-
embermánaðar, en þó voru þau eigi hörð. J>etta
var nú allr vetrinn. Vorið eðr sumarið hefir og
byrjað hér miklu fyrri en vant er og lítr þegar út
fyrir hið bezta ár, og sé eins víðar um Norðr-
álfuna og hér er, þá fer eigi hjá því, að kornvara
öll lækki í verði. Hér er nú á hverjum degi reglu-
legasti hundadaga hiti.
|>ess hefir eigi verið getið fyr í þjóðólfi, að
Englendíngar hafa farið leiðángrsferð til Abyssiníu.
t>að land er suðr af Egyptalandi og í vestr frá
suðrhluta Rauðahafsins, þó er nokkur landræma
milli Abyssiníu og hafsins. Landið er hér um bil
20 þíngmannaleiðir á lengd og 14 þíngmannaleiðir
á breidd. J»að er fjöllótt land mjög, og eru fjöli-
in frá 4,000—14,000 feta há, og dalir á milli; er
mikið sagt af fegrð og frjóvsemi þeirra, cn örð-
ugt er þar yfirferðar. Landsbúar eru blendínor
af ýmsum þjóðflokkum, og eru þeir kristnir að
kalla; en þó er lítið eptir hjá þeim af kristinni
trú annað en hindrvitni ein, og eru siðir þeirra