Þjóðólfur - 01.05.1869, Qupperneq 4
að kenslupiltar gæti fengið nokkra verklega æfingu
í hverju einu; og með því nú bústjórinn ætti ár-
lega að gjöra reikning yfir tilkostnað og ágóða af
jarðabótunum, þá útheimtist að talsvert sé unnið,
svo greinilegt yfirlit fáist; með því líka ýmsar
jarðabætur geta engan ágóða sýnt, nema mikið sé
að þeim unnið, svo sem girðingar, og opt og tíð-
um framskurðir og vatnaveitingar. Yér ætlum því,
að aldrei mætti starfa minna að þessu öllu saman
en 200 dagsverk á ári. Hér að auki þarf árlega
að starfa ýmislegt að umhirðingu, tilreiðslu og
hagnýtingu allskonar áburðartegunda, gjöra safn-
grafir, haugstæði o. fl.; einnig taka upp nægilegan
mó til eldiviðar, svo allt sauðatað verði notað til
áburðar, og getr þetta kostað mikið erfiði og lang-
an tíma, ef mótak er erfitt. Menn hafa lengi fundið
til þess, hve nauðsynlegt væri að geta bygt úr
steini, álítum vér því einkar-áríðandi að á fyrir-
myndarbúinu væri reynt, hvort steinhúsabyggingar
gætu ekki eins þrifizt hér og í öðrum löndum, og
hvort ekki mætti byggja þau með þolanlegum kostn-
aði, samt brúka smiðjumó og leir, eins og Skotar,
í staðinn fyrir kalk að meira eðr minna leyti, og
þó ekki væri gjört mikið að þessu árlega, þyrfti
þó ætíð að verja talsverðum tíma til að afla grjóts
og undirbúa það, einnig draga að leir og lím, fyrir
utan að hlaða og önnur byggingarstörf.
Yér gjörum nú ráð fyrir, að á búinu væru
ekki færri en 3 kenslupiltar árlega til að lærabún-
að og jarðyrkju, og að þeir gefi ekki annað með
sér en vinnu sína, er að mestu verðr innifalin í
jarðabótastörfum nema um sláttutímann. En nú
hefir verið gjört ráð fyrir að bústjórinn nyti alls
ágóða af búinu í laun sín, hvar af leiðir, að hann
hlýtr að fá fulla meðgjöf með piltunum eða borg-
un fyrir jarðabæturnar að minsta kosti í 5 árin
fyrstu, meðan endrbætrnar eru að byrja og ekki
er að gjöra ráð fyrir þær gefi af sér þann arð, er
síðar mætti vænta, auk þess sem ýmsar nýar til-
raunir geta mishepnazt að miklu eðr öllu; oss
virðist því ekki um of að ætla 300 rd. til þessa.
Sömu skoðunar hljótum vér að vera um það, að
bústjóri eigi rétta heimtingu á að fá fé til viðhalds
jarðyrkjuverkfærum, því þau hljóta að slitna mikið,
en færa bústjóra í rauninni lítin arð, og virðist
því ekki of mikið að til þessa sé ætlað 100 rd.
árlega. Þegar nú búinu er ætlað að gjöra miklar
endrbætur og vera til fyrirmyndar, ekki einungis
með byggingu á íbúðar- og bæarhúsum, heldr
einnig peningshúsum, er auðsætt, að talsverðu fé
þarf að verja til þess árlega, að minsta kosti fyrst
um sinn, eða á meðan húsin væru að komast í
það lag, er gæti verið til verulegrar fyrirmyndar,
og ætlum vér, að alls ekki megi ætla minna til
þess en 300 rd. á ári. Annars hlýtr þetta að fara
eptir árlegum reikningum bústjórans, og vera háð
sérstaklegu eptirliti nefndar þeirrar, er sjálfsagt
hlýtr að veljast til að hafa yfirumsjón búsins áhendi.
Með þessu fyrirkomulagi álítum vér, að búið
geti fyrst nokkurn veginn viðunanlega svarað til
síns augnamiðs sem fyrirmyndarbú og búnaðar-
skóli; en af þessu leiðir, að búið þarf að vera
með stærri búum, svo það geti fætt talsverðan
mannafla og svarað til síns augnamiðs í sérhverju
tilliti. það má enn fremr gjöra ráð fyrir, að margir
auk þeirra, sem fengið geta ársveru á stofnuninni,
vilji njóta einhverrar kenslu og tilsagnar í ýms-
um greinum búnaðarins, og það máske víðsvegar
að, bæði haust og vor, og þurfa því að vera á-
stæður til að geta veitt sem flestum aðgöngu, og
hlýtr því búið að hafa, ekki einungis talsverðan
bústofn í lifandi peningi, heldr þarf einnig að
leggja talsvert fé til ýmsra búshluta, utan og inn-
an húss, og allmikil verkl'æri af ýmsu tægi; einnig
virðist ómissandi, að búið eigi alfæra smiðju með
öllum helztu járn- og tré-smíðatólum, til þess að
þar mætti gjöra við öll jarðyrkjuverkfæri, sömu-
leiðis smíða að nýu þau, sem hægt væri að smíða
hér á landi; er þetta því ómissanlegra, sem hinn
væntanlegi bústjóri vor er góðr smiðr bæði á tré
og járn.
Ef nú búið ætti að vera þannig úr garði gjört,
mundi ekki veita af 2000 rd. bústofni í lifandi pen-
ingi, 1000 rd. til að kaupa fyrir alls konar búsá-
höld utan og innanstokks, og eptir áætlun Torfa
sjálfs þarf 1000 rd. auk 200 rd. er hið konunglega
danska landbústjórnarfélag hefir gefið til verkfæra
kaupa, til að kaupa fyrir nóg jarðyrkju verkfæri,
halla — og landmælingar tól, samt áhöld til allra
annara starfa utanbæar og alfæra smiðju eða smíða-
tól. Samkvæmt framanskrifuðu verðr því meining
vor, að til að reisa fyrirmyndarbúið, er einnig gæti
verið búnaðarskóli með nokkurn veginn viðunanlegu
fyrirkomulagi, þurfi þetta fé:
1. allr bústofninn með nógum jarðyrkjuverk-
færum................................ 4000 rd.
2. árlegt tillag fyrst um sinn í 5 ár.
a. til jarðabóta.............. 300 rd.
b. til viðhalds jarðyrkjuverkfær. 100 —
c. til húsabygginga . . . 300 —
það er 700 rd. á ári í 5 ár --------- 3500 —
alls 7300 —