Þjóðólfur - 18.10.1869, Page 3

Þjóðólfur - 18.10.1869, Page 3
eru þessar óeirðir nú að mestu eðr öllu niðr- bældar. í f. mán. leit út til sundrþykkis milli Tyrkja- soldáns ogjarls hans á Egyptalandi. Jarlinn heim- sótti í vor helztu stjórnendr Norðrálfunnar og bauð þeim að vera við, er Suez-skurðrinn yrði opnaðr. Sagði soldán, að hann hefði eigi átt með að gjöra þetta upp á sitt eindæmi, og bar honum á brýn, að hann mundi hafa í hyggju að losast undan yfirráðum soldáns, og hefði hann ætlað að nota lækifærið, er Suez-skurðrinn yrði opnaðr, að fá samþykki stjórnenda Norðrálfunnar til að sam- þykkja sjálfsforræði Egyptalands; en þessi mál hafa miðlazt svo, að nú er allt friðsamlegt milli þeirra. London, 1. Olctóber 1869. Septembermánuðr heflr verið góðviðrasamr og tíðindalítill, því að þessi mánuðr er venjulegr hress- ingartimi stjórnarmanna hér í landi. Bæði ráð- gjafar og þingmenn eru um þenna tíma út á land- eignum sínum, og skemta sér við að nfaraáskóg og veiða dýr og fugla», eins og í sögum segir; sumir bregða sér vestr yflr haflð til Vestrheims, og aðrir til meginlands Norðrálfunnar, viðra sig á Mundíufjalla tindum og þar fram eptir götunum. Clarendon lávarðr, utanríkisráðgjafi, er nýlega kom- in heim úr ferð sinni um Þýzkaland ogFrakkland; kveðst hann hafa haft tal af hinum helztu stór- mennum á meginlandinu, og hafi hann af því sannfærzt um, að um langan tíma hefði eigi verið jafngott útlit með að friðr yrði varanlegr og nú; enda er það sumra ætlan, að það hafi beinlínis verið erindi hans að komast eplir, hvert álit stór- veldin hefði á þeim tveim aðalmálum — samein- ingu þýzkalands og ástandi Tyrklands —, en þau eru þau einu mál, er nú sem stendr geta raskað almennum friði Norðrálfunnar, og kvaðst hann hafa komizt að raun um, að þau væri samhuga Englandi í að styðja að því, að friðr héldist. Napóleon keisari er nú alheill orðinn aptr, eptir því sem blöðin segja, og er það mikill áhyggju- léttir fyrir Frakka, því að ekki er fyrir að sjá, hvað úr því yrði, ef hans rnisti við alt í einu, þar sem hann svo lengi hefir haft alla stjórn Frakk- 'ands í hendi sinni einsamall, endavar sá ótti yfir 'í'önnum í Frakklandi, meðan keisarinn var þyngst baidinn, að peningamarkaðrinn var nálega aðgjörða- ^us, þar til hann komst á fætr aptr. Frakkland væri engu betr statt en skip í ólgusjó, er missir stýrið, ef Napóleon nú félli frá. þótt Napóleon hafi stjórnað Frakklandi vel, eptir því sem ástand þess var, er hann kom til valda, þá hefir honum þó sézt yfir í því, að hann hefir hiugað til látið alla ábyrgðina hvíla á sér einum, þótt hann hafi tekið sér ráðgjafa að nafninu, en með því að þeir hafa verið ábyrgðarlausir fyrir þjóðinni, þá mundi þjóðin ekki treysta þeim til, að taka við stjórn- taumunum, ef hans misti við. það er með öðr- um orðum, hann hefir ekki kent Frakklandi að stjórna sér sjálfu; en það er þó eina meðalið til þess að hann geti verið viss um, að afkomendr hans siti óhultir á veldisstóli Frakklands, því að óvíst er, að sonr hans hafi hina sömu hæfdegleika og hann sjálfr að stjórna Frökkum, og þótt hon- um kynni að verða auðið að feta í spor föður síns, þá er þó víst, að það á nokkuð langt íland, því að hann er enn að heita má á barnsaldri. Menn þykjast og fullvissir um, að enginn muni sjá þessa hætlu glöggar en keisarinn sjálfur, og ætla því margir, að þegar þingið kemr saman, þá muni hann stíga enn feti framar en í sumar, og taka sér ráðgjafa, er hafi ábyrgð fyrir þinginu, og létti þannig að nokkru af sjálfum sér einveldisbyrðinni. þetta mundi bæði slá vopn úr höndum hinna á- köfustu mótstöðumanna hans og undir eins gefa honum færi á að velja þá menn, er gæti fram haldið stjórninni í sömu skorðum, þótt hans misti við. Alt af eru ókyrrðir og smá-uppþot á Spáni, þótt þeir nú hafi loksins fengið konungsefni, her- togann af Genua, sem eV bam að aldri, og munu því Serrano og I’rim hafa völdin á hendi um all- langan tíma enn, eðr þangað til hann er mynd- ugr, og er svo langt þangað til, að bágt er á að ætla, hvað verða kann þangað til. |>að á nú þegar að leita atkvæða þingsins (Cortes) um konungs- efni þetta; ætla menn að hann muni fá allan fjölda atkvæðanna, þótt sá flokkr sé eigi alllítill, er vill hafa þjóðveldi, en Frakkakeisari er því með öllu mótfallinn, og á hinn bóginn getr þessi flokkr huggað sig við það, að stjórnin verðr þó fyrst um sinn í rauninni þjóðstjórn, og einkum munu þeir Serrano og Prim vera ánægðir með að svonafari, því að með því móti geta þeir haldið völdunum sem stjórnendr fyrir hinn unga konung. — En Spánverjar hafa og annað vandamál á höndum, og það er uppreistin á spánversku nýlendunni Cubu, sem er ein af Vestrheimseyjum; hún hefir um langan aldr verið einhver mesta féþúfa Spánverja, og hafa þeir tíðum eigi farið sem þyrmilegast með hana. Nokkru eptir að Spánverjar höfðu rekið ísabellu frá Spáni, hugsuðu eyarskeggjar, að nú

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.