Þjóðólfur - 09.12.1869, Page 3
27 —
— Reikningsltapr af stjórn og tiihögun opin-
berra sjóða og stofnana.
(Framh.). Konungsúrskurðrinn 2. Marz 1861
skiptist í 2 aðalkafla. Hinn fyrri kaflinn eðr að-
alkaflinn skipar fyrir um það, hvernig reiknings-
skaprinn eigi að vera lagaðr og hvenær og hvernig
liann skuli af hendi leyetr og auglýstr vera; síðari
kaflinn skipar, að auglýsing reikninganna skuli
vera á kostnað sjóðanna eðr stofnananna sjálfra.
Fyrri kafli úrskurðarins er svo greinilegr og skiljan-
legr og ákvarðanir hans svo ljóst fram teknar
og sundrliðaðar, sem framast getr hugsazt, og má
skipta þeim niðr í þessi 4 höfuðatriði.
1. Reikninga eðr skilagreinir fyrir opinberum sjóð-
um og stofnunum á að «birta á prenti» ár-
lega.
2. Reikningar þessir eiga að vera *greinilegir og
nákvœmir».
3. Reikningarnir eiga að vera birtir eða birtast á
prenti svo fljótt sem verða má, «eptir að þeir
eru samdir».
4. Birting reikninganna má því als ekki bíða þess,
að endrskoðun þeirra sé lokið né úrskurðr um
endrskoðunina, heldrá «að gœta pess, að í nœstu
»reikningum, sem samdir eru, eptir að hinir fyrri
«reikningarnir eru á enda kljáðir, verði gjörð
«grein fyrir þeim breytingum, er á þeim hafa
«orðið, þá er útgjört var um þá».
Allr aðdragandi og undirbúningr kgsúrsk. 2.
Marz 1861 laut nú eingöngu að «opinberum sjóð-
um og stofnunum», þ. e. þessleiðis, sjóðum og
stofnunum öllum, sem eru undir stjórn og um-
sjón embættisvaldsins, að einu og öllu, niðr-
jöfnun aðaltekjanna handa sumum sjóðunum (t. d.
jafnaðarsjóðunum), eptirlit og yflrumsjón með því,
að þessar tekjur og aðrar, sem fastákveðnar eru
eðr umsamdar, komi sjóðnum eðr stofnuninni til
góða, að útgjöldin sé eigi önnur og fé sjóðsins sé
cigi öðruvísi varið heldr en eptir því sem er lög-
ákveðið eðr um samið. Endrskoðun árreikning-
anna og úrskurðarvaldið er einnig að öllu í hönd-
um embættisstjórnarinnar, og hefir yfir höfuð að
tala legið undir stjórnardeildina íslenzku í Khöfn,
síðan hún komst á fót 1848.
Eins og meun vita, er öllu þessu varið á
annan veg með annan flokk sjóða og stofnana;
þær eru að vísu óháðar embættisvaldinu og em-
bættisstjórninni eðr landsstjórninni að öllu, en
samt eru þær rélt nefndar opinberar stofn-
anir, að því leyti, að þær sjálfar varða almenn-
ing, eru til orðnar og stefna að því að vera al-
menningi til hagsmuna, og að þær og stjórn þeirra
eru því skilyrði bundnar með samþyktarlögum frá
upphafi, að kjósaskuli félagsstjórn og féhirðir ár-
lega eðr annaðhvort ár o. s. frv., að féhirðir skuli
semja ársreikning, að þann reikning skuli kjörnir
menn endrskoða, og að birta skuli síðan á prenti
ársreikninginn. Svona er með allar felagsstofnanir
og samslcotastofnanir hvers kyns sem eru, Og um
sumar gjafa-stofnanirnar eðr «legötin», þegar af-
vinna þeirra er ekki einskorðuð við neitt víst eðr
einstaklegt, og gefandinn hefir ekki frá upphati
ákveðið, að yfirstjórn stofnunarinnar skuli vera í
höndum hins æðra embættisvalds, heldr annaðhvort
einhvers af hinum óæðri stjórnarvöldum, t. d.
sveitastjórnendum, eins og er um Hjaltsteðs-le-
gatið (er getið var í síðasta bl.), eðr eptir því sem
í stofnunarbréfinu er ákveðið trá upphafi um það,
hvernig stjórn stofnunarinnar skuli skipað á annan
hátt. Af þessleiðis stofnunum höfum vér einnig
nú orðið eigi all-lítinn vísi, er allar hafa myndazt
á þessari öldinni hjá oss : Biblíufélagið, Bókmenta-
félagið, IIúss- og bústjórnarfélagið í Suðramtinu,
Sjúkrahúsfélagið í Reykjavík; og af samskota-
sjóðum og stofnunum má nefna: bræðrasjóðinn,
prestaskólasjóðinn, prestaekknasjóðinn o. fl. það
er nú hvorttveggja, að í öllum stofnunarskrám eðr
samþyktarlögum félaga þessara og stofnana, er það
á skilið, að auglýsa skuli á prenti ársreikning fé-
lagsins eðr sjóðsins, enda hefir þess jafnan gætt
verið yfir höfuð að tala, fram á hin síðustu ár,
með alla þá sjóði og stofnanir, er vér nú nefnd-
um'.
Einmitt þetta, hvað að slík hin ýmsu nýu
samtakafélög og stofnanir, sem eru undir forsjá
kosinnar stjórnar úr flokki sjálfa þeirra, auglýstu
greinilegustu reikninga yfir tekjur og útgjöld og
allan fjárhag þeirra, var það er meðfram opnaði
augu almennings um nauðsyn og sjálfsagða skyldu
embættisvaldsins, að auglýsa einnig á prenti árlega
reikninga þeirra opinberra sjóða og stofnana, sem
þau eru sett yíir.
Síðan konungsúrskurðrinn 2. Marz 1861 náði
1) paí) er leitt a?) vería af) mínnast þess, aí) engi ársreikn-
ingr heflr sJzt birtr frá B if 1 íu félag i 11 n, þar sein biskop-
inn ytlr íslandi er lógkvaddr forseti, nú í 4 ár eír síþan árs-
reikningrinn 186 5 kom frarn í þjúbólfl XVIII, bls. 61. —
þú aþ svo sb fjrir maslt í Kigum Uúsb- og bústjúrnarfélags-
ins snnnleuzka, a'b ársreikning felagsins skuli augljsa í blíiþ-
uuum eigi seinna, eu 3 mámubum eptir ab endrskoþun lians
er lokib, þá er samt ongi ársreikuingr enn kominn í ljús fjr-
ir áriþ 1866 frá uju felagsstjúrniiini, er var kosiu á Júlí-
furidiuum í fjrra.