Þjóðólfur - 05.06.1873, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 05.06.1873, Blaðsíða 4
— 124 — leg samtök væri komin á stað i öllum sveitum sýslunnar í þessu efni, enda lofuðu allir sem á fundinum voru að styðja þetta mál hver í sinni sveit. 4. Stjórnarbótarmálið. Fyrst var lesið npp bréf frá þingmanni sýslunnar til varaþingmannsins, síðan voru kosnir 2 menn til fingvallafundar, og urðu fyrir kosningu: Sighv. Árnason í Eyvindar- holti með öllum atkv. og Jón bóndi þórðarson í Eyvindarmúla með 14 atkv. þar næst gaf fundr- inn þeim skriflegt umboð til að mæta á þingvalla- fundinum 26. Júní næstk. fyrir hönd kjördæmis- ins, og jafnframt samin og samþykt af fundinum bænarskrá til Alþingis um stjórnarbótarmálið og afbent þessum mönnum til framfylgingar. Inngangr bænarskrárinnar hljóðar þannig: «í öllum sveitum Rangárvallasýslu hefir nú hreift sérmegn óánægja yfir þeirri stjórnarskip- un og stjórnarathöfn, sem nú er að komast á í landi voru, og hefir alment komið fram áhugi um það, að reyna að sameina álit sitt og vilja til þess að sporna við þvf, að slík stjórnarskip- un nái að gangast við, og til þess að fá nýa stjórnarskipun sem allra fyrst, samboðna þörf- um og þjóðréttindum lands vors. Um þetta varð sú niðrstaða á sveitafundum i sýslunni, að hvert sveitarfélag fyrir sig fól þetta mál 2 — 3 mönn- um úr sínum flokki til meðferðar á sýslufundi, til þess þar í sameiningu að framfylgja því kröftulega til næsta Alþingis samkvæmt ósk og vilja allra sýslubúa yfrr höfuð. Yér sem ritum nöfn vor hér undir og sem erum nú þannig hér saman komnir úr öllum sveitum sýslunnar, 2—3 úr hverjum hreppi, f umboði sveitunga vorra, leyfum oss að láta hér með í ljósi samhuga á- lit vort og eindreginn vilja innbúa Rangárvalla- sýslu um þetta alsherjarmál þjóðfélags vors». En niðrlagsatriði bænarskrárinnar eru svo lát- andi: »1. Að þingið taki einart og vel fram, hversu réttindum vorum er misboðið með stjórn þeirri sem nú er fylgt fram í landinu og mótmæli kröftulega öllu því sem kemr i bága við þau, og að það sendi hans hátign konunginum til staðfestingar, fullkomna stjórn- arskrá fyrir ísland, hvar í sé Ijóslega tekið fram : a, að fulltrúaþing þjóðarinnar í öllum innl. íslenzkum málum hafi löggjafarvald og full fjárhagsráð. b, að öll framkvæmdarstjórn í innlendum málum fari fram í landinu sjálfu, og að yfirstjórn landsins hafi fulla ábyrgð stjórn- araðgjörða sinna fyrir fulltrúaþingi þjóð- arinnar, og yfir höfuð allt það tekið fram, sem réttr landsins steudr til. En gæti það ekki öðlazt allra hæstu stað- festingu konungs vors, þá að fylgja því fram að nýr þjóðfundr verði samankallaðr hér í í landi samkvæmt kosningarlöguin 1849 og konunglegu fyrirheiti 23. Sept. 1848, sem en. hefir eigi verið fullnægt. 2. Að þingið ráði frá öllu því sem lýtr að ný- um skatta- eða tolla-álögum, meðan þjóð- félag vort fær eigi uppreisn stjórnarmála sinna, og að öðru leyti veri eigi óþarfatíma til þingmála». f>essa fuudarskýrslu bið eg yðr, háttvirti rit- stjóri, samkvæmt ósk fundarmanna, að auglýsa sem fyrst í «{>jóðólfi». Eyvindarholti 17. Maí 1873. Sighv. Árnason. — 1 1. o g 1 2. biað «Göngu-Hrólfs» er út kom hér fimtudag 29. f. mán., hefir enn að færa fyrir almenning: fyrst fjölorða skýringu og útskýringu rilstjórans hr. J. Ó. sjálfs, yfir og um allt sem gjörðist inilli þeirra Landshöfðingjans og bans á sættafundunum og frá helztu orðaskiftunum er þeir hafi þar áttzt við; svo einnig af sóknar útlistun þeirri er hinn skipaði sækjandi af Landshöfðingj- ans hendi, hafi þegar beitt í fyrstu sóknarskjölum sínum, þá er bceði málin féllu í rétteðr áttu stefnu- dag 15. f. mán. útaf þeim 2 greinum í Göugu- Hrólft'" 10., 26. Apr. er leið: «Lanchhöfðingja- hneykslið» og «Hœstarettardómar», sérstaklega sá kafli þeirrar síðari greinarinnar er þykir bera Lh. á brýn að liann «fari með róg» o. s. frv.1 |>ar næst er í síðari hluta þessarar sömu greinar G.-IIr. 29. f. mán. en tekið sig upp og vaðið enn af nýu upp á herra Hilmar Finsen, þar sem á 86. dálki blaðsins neðarlega er einhermt: „Eg (ritst. J. 0.) segi þ»í her, at) í þessari umtuiuþu klúg- „UII2 flnuast lognar sakargift i r1-3. 1) Jrab málib er eiimig hnfbab eftir tilhlutuu Lh. eu ekki aiutmanus ab úbrn en þ«í, ab haun heflr veitt þar g|af6Ókn- ina og skipab setudúmara og talsmanu eins og í hitt málib. — 2) Næst á uiidan þarna á sama Sfi dálki G-Hráfs er um- talsefnib um „klogun yflr dámara“, er stiftamtm H. „hafl sent stjúrninni", og hvartneb „hann hafl fengib hana til af afsetja dúmara áu dúms og laga“; — og getr her vart verib omtals- mál nm abra klögnn eu þá er gekk frá stiftamtinu á r i b 1 8 7 0 yflr Benedikt assessor Sveinssou og olli afsetning0 hans hib sama haust. — 3) þessi 2 orb „lognar sakargiftit'

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.