Þjóðólfur - 07.03.1874, Síða 7

Þjóðólfur - 07.03.1874, Síða 7
— 79 Blaðið Tíminn hefir nd átt nokkum þátt í þessu, enda eru ekki líkindi til, að ritstjóri þessa blaðs, að sögn með JónBorgfjörð í fylgi, geti gefið blaðinu nokkra mentandi eða yerklega fræðandi stefnu; fessir báðir menn hafa litla Ðentun, og eru lítilsigldir í verkum. Ver getum heldr ekki haft pað traust á peim, að fieir hafi þá réttlætistil- finningu, að vilja segja rétt frá, j>ví væri pað, fiá léti þeir ekki blað sitt segja rangt frá fiví, sem fieir geta sjálfir séð og fircifað á. Sem eitt dœmi upp á, hvað aðfinningar j>essa blaðs eru rangar og vanhugsaður, er ritgjörð í 2. ári þessa blaðs, 21. blaöi til bæarstjómarinnar í Reykjavík, um vegina, er vogfarandi stendr undir; en áðr en eg lýsi innihaldi ritgjörðarinnar, þá vil eg fara fáeinum orðum, fyrst um vegina í kring um Reykjavík. Eg vonast til, að hver vegfarandi, sem séð hefir Roykja- vík fyrir 10 árum síðan, og sér hana nú, verði að játa, að almenningsvegrinn/ frá bænum og vegir þar í kring, hafi nú á stuttum tíma tekið svo miklum umbótum, að hvergi á íslandi séu nú dæmi til slíks, og að þessir vegir séu víðast hvar svo vel gjörðir, að þeir geti verið landsmönn- um til hinnar mestu fyrirmyndar, með vegagjörðir. pessir vegir eru pannig lagaðir, að þeir eru allir upphækkaðir, og flestir átta álnir á breidd, kantsettir mcð grjóti beggja vegna, og sumstaöar, þar sem þess hefir þurftmeð, hlaðnir með tvísettu stórgrýti, víðast hvar grjótlagðir í botninn, og þar á ofan fyltir upp meö harðri malar- og Uióhellu- og deigulmós-blandaðri jörð; þessi uppfylling hefir verið svo mikil, að út af vegunum hefir hallað, þar sem hún hefir verið fullbúin; með fram vegunum grafnar rennur; þar sem búizt hefir verið við vatnsrensU að vegunum, þar hafa verið settir steinlagðir lokræsar í gegnum þá, til að veita vatninu burtu; þessir Iokræsar hafa verib að ofan sumstaðar þaktir með stórgrýtishellum, og á sumum stöð- um með eikar- og furuviðarplönkum. AÖalvegrinn frá bænum er, kominn á landamerki Reykjavíkr að austan- veröu, þar taka við landamerki Seltjarnarneshrepps; oger vonandi, að hreppsmenn haldi veginum áfram, áðr en langt um líðr. Seinasti partrinn af þcssum vegi er 417 faðmar, hann er nýlagðr, og getr hann því ekki oröið vel harðr á Uæsta ári; því þar sem elcki er meiri umferö um vegina, «n ráð fyrir má gjöra hér á landi, þá er ekki að búast við, að þeir fari að troðast nokkuð að mun, fyr en eftir 4 til 5 ár. Vegalengd sú, sem Reykjavíkrmenn hafa lagt áú á stuttum tíma, er hér um bil 2000 faðmar, aukfleiri nndrbóta á vegum í sjálfum bænum; þessar vegagjörðir hafa nú kostað á fimta þúsund dali. j>eir, sem satt vilja s°gja um þessa vegi, munu fremr álíta þá stórvh'ki, eftir Í'VÍ sem hér á stendr. Vér viljum nú fara fáeinum orðum um sjálfa grein- "‘a í Tímanum; sá, er hana hefir ritað, er fyrst óánægðr yfir H að blaöið Víkveiji hefir lýst ánægju sinni yfir aðgjörð- bæarstjómarinnar í tilliti til veganna; þessi yfirlýsing ’flcveija hefir aukið höfund. hugaróróscmi, er komið hefir i'nnum til aö scgja það rangt, scm rétt er; og yfir höfuð verör höfundrinn svo óánægðr, að liann hrærir saman gömlum Hjíirðum byggingarnefndarinnar og hinum nýu aðgjörð- 1,111 bæarstjómarinnar; út af þcssu smíðar hann aðfinning- sem eru bygðar á skökkum grundvelli, enda eru engar stæður til færðar. Um kirkjugarðsveginn segir hann „misjafnlega hafa farið úr hendi stefnuna“ o. s. frv.,— „oss virðist hann hefði getað verið hlikk.jaminni“, — því bendir höfundrinn ekki á hvernig stefnan hefði átt að vera? hann hefir ekki treyst sér til þess. Vér neitum því, aö hlykkir séu á veginum frá „Sjúkrahúsinu“ og upp að kirkjugarðshliðinu; vegrinn er að eins lítiðeitt bogadreginn, og hjá því varð ekki komizt, nema rífa hús í burtu að austanverðu, eða fara inn í hinn nýa kirlcjugarð, eða í þriðja lagi að leggja veginn svo klaufalega við alla aðra vegi, og þar á ofan leggja hann að neðanverðu yfir marga ltálgarða; ekkert af þessu var í neinu tilliti tiltækilegt, enda óþarft og of kostnaöarsamt, því vegrinn, eins og hann nú er, er vel viðunandi. Um Öskjuhllðarveginn, segir höfundrinn: ,því var ekki tekin bcin stefna frá Öskju- hlíð inn í skarðið hjá Bústöðum, en í staö þess að stefna beint á Bústaðabæ, nálægt 60 föðmum frá beinni stefnu?“. Hér kastar nú tólfunum, því I þessu er eklcert vit, oss er ómögulegt að skilja í þvf, að nokkur hefði þurft að villast svona á þcssari vegastefnu eins og höfundrinn hefir gjört, þótt hann væri jafnlaus á svellinu eins og sjálfir útgefendr Tímans; ogþótthann hefði þurft að snú- ast á hæl og hnalcka til að sjá eftir stefnu vegarins. Yér getum heldr ekki ætlað, að höfundurinn sé svo rammheimskr, að hann hafi ritað þetta af sannfæringu, heldr hitt, að hann hafi gjört það af illvilja við vega- nefnd Roykjavíkrbæar, Vér vonumst til að hver vegfarandi, som atliugar rétt stefnu Öskjuhlíðarvegarins, sjái, að vegrinn hefirþráð- beina stefnu af Öskjuhlíð inn á landamerki Reykjavíkr; og ef þeirri vegastefnu erhaldið rétt áframm af Seltjarn- arhreppsmönnum, þá komi vegrinn ! skarðið fyrir ofan Bústaði, þar á gamla veginn. þossar villur hefðu útgef- endrnir átt að laga í ritgjörðinni, þvíþað var þeim hægt, heldr en láta blað sitt flytja þetta ranghermt út í al- menning; því vér viljum ekki geta þess til, að útgefend- unum liggi það í léttu rúmi, hvort blað þeirra flytur út um landið ósannindi eða sannindi. Hvað frcmr viðvíkr þossari ritgjörð, þá virðist óþarft að fara um hana fleiri orðum; sama er að segja um aðrar ritgjörðir, sem þetta blaö hefir haft meðferðis um þetta efni, að þær eru ekki svara verðar. E. þ. (Aðsent). SVAR til Jóns Sigurðar Ólafssonar. I 14-—15. bl. þjóðólfs þ. á. las eg grein nokkra, er Jón Sigurðr Olafsson hefir skrifað sig undir, og mun þaö vera sami maðr, sem hér í bænum er alþekturaf nafninu Sigurðr Ölafsson. Efni og andi greinarinnar virðist helzt eiga að lúta að því, að koma I veg fyrir þann misskiln- ing, er eftir hans meiningu á að hafa risið mcðal almenn- ings út af lagi þvf, er prentað var f 2. bl. Tímans 3. árg., með því að segja, að almenningr eigni mér lagið, en þeir, sem betr þekki, viti, að það sé eftir hið fræga tónaskáld Svía, Ottó Lindblað. Að nokkur missldlningr út af því hafi getað risið meðal almennings, er mér næsta óskiljanlegt, og eg voga mér að segja það með öllu ósatt; því hver, sem les athugasemd

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.