Þjóðólfur - 05.09.1885, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 05.09.1885, Blaðsíða 4
136 ig ekki aðrir' talað neitt í þessu máli en H. Sveinss. Yið atkvæðagreiðsluna var feld breyt- till. M. St. og H. Sv.; en breyttill. nefnd- arinnar allar samþykktar og hinar ein- stöku greinar sömleiðis, flestar í einu iiljóði. Að lyktum var frumv. vísað til 3. umr. með 8 samliljóða atkvæðum (Á. Thorsteinsson, L. Sveinbj. og M. Steph. sátu). 3. umrœða 22. ágúst. Fjarverandi vóru: P. Pjeturson, M. Steph. og L. Sveinbjörnss. Af þeim, sem ekki höfðu talað áður, talaði nú Sh. Þorvarðarson og mælti með frumv. Að öðru leyti urðu litlar umræður. Var svo frumv. samþykkt með 7 atkv. móti éínu (o: J. Pjeturss.). Lög frá alþingi 1885. X. L. um MuttöJcu safnaða í veit- ingu hrauða (Niðrl.)...... 9. Ef að minsta kosti helmingr safnaðarlima þeirra í prestakallinu, er kosningarrétt hafa, hafa tekið þátt í kosningunni og einhver af umsækjendum hefir hlotið að minsta kosti helming atkvæða þeirra, er greidd hafa verið, verðr honum geflð veitingarbréf af hlutaðeigandi stjórnar- valdi, hafi kosningin farið fram eftir 3.—8. gr. laga þessara, eða séu eigi þeir gallar á, sem eltir atvikum geti liaft veruleg árlirif á úrslit hennar; ella skal við veiting embættisins taka i það tillit til þeirra óska, er hafa komið fram af hálfu safnaðarins, er álitið verðr að rétt sé. -— 10. Nú hefir laust brauð verið auglýst á venjulegan hátt, | og inn ákveðni umsóknarfrestr er út- runninn, og hafi þá ekki nema einn, er fullnægir inum almennu skilyrðum fyrir að þjóna prestsembætti í þjóðkyrk- junni, sótt um brauðið, þá skal eftir kosningarreglum laga þessara leita til- lögu safnaðarins um, hvort hann heldr kjósi að brauðið verði veitt þessum eina umsækjanda, eða prestsþjónusta í brauð- inu verði fyrst um sinn falin á hendr J nágrannapresti eða nágrannaprestum, i verði því við komið, eða settr verði j prostr til að þjóna brauðinu til bráða- birgða, geti hann fengizt, .11. Kostnaði við prestakosningnr skulu sóknarnefnd- irnar jafna niðr á alla safnaðarmenn í prestakallinu, þá er atkvæðisrétt hafa samkv. 3. gr. Eindagi á því gjaldi er inn fjórtándi dagr, frá því niðurjöfnunin, og hverjum greiða skuli, var auglýst á kyrkjufundi. Kærur út af fjárheimtu þessari er heimilt að bera upp á hér- aðsfundi prófastsdæmsins, og leggur hann fullnaðarúrskurð á málið. Rétt er að taka gjöld þessi lögtaki. — 12. j Lög þessi öðlast gildi 1. dag janúar- ! mánaðar 1887. XIV. L. um lögtaJc og fjárnám. — Aðalefni stj.frvs. er áðr frá skýrt í „Þjóð“. No. 27., bls. 106. Einu verul. efnisbreytingar, sem á því urðu í þing- inu, voru: að í 2. tölul. 1 gr. var sett: „gjöld“ í stað: „eftirstöðvar af gjöldum"; svo var og bætt inn í sömu gr. nýjum tölul.: „Álag eftir úttekt samkv. 1. 12. jan. 1884. um bygging, ábúð og úttekt jarða, þó með þeim afbrigðum frá fyrir- mælum þessara laga, sem leiða af því, að lögtakið á fram að fara tafarlaust og framkvæmast af úttektarmönnum (sbr. 1. nr. 1. 12.jan. 1884, 33. gr.)“. XV. L. um þjöðjarða-sölu — Ráðgj. veitt heimild til að selja ábúendum þess- ar jarðir fyrir viðsett verð: 1. Böggversstaði í Vallnahreppi, Kr. ásamt hjáleigunni Árgerði . 6,500 2. Ásgerðarstaðasel í Skriðu- hreppi..................... 900 3. Hrísa í Húnavatnssýslu . . 2,500 4. Brekku í sömu sýslu . . . 3,800 5. Akur í sömu sýslu .... 3,000 6. Skinnas'taði í sömu sýslu. . 2,250 7. Húsnstaði í sörnu sýslu . . 2,000 8. Hæli í söniu sýslu . . . . 1,950 9. Hafragil í Skagafjarðarsýslu 2,500 10. Skíðastaði í sömu sýslu með hjáleigunni Herjólfsstöðnm . 5,000 11. Hafsteinsstaði í sömu sýslu 2,400 12. Veðramót í sömu sýslu . . 5,000 13. Svínadal í Leiðvallarhreppi 1,350 14. Gröf í sama hreppi . . . 1,200 15. Brekku í Rosmhvalaneshreppi 1,400 16. Eyðijörðina Efriströnd í Rangárvallasýslu . . . 350 17. Vík í Dyrhólahreppi . . . 6,000 og er þar með úr gildi num- inn 1. töluliður í 1. gr. laga 8. nóvbr. 1883. — Enn fremr að selja Reykja- víkrkaupstað: 18. Rauðará með afbýlinu Lækjarbakka fyrir . . . 2,400 Heimild sú, sem veitt er til sölu þessarar, gildir að eins til 31. des. 1890. 1N ENDRSKOÐAÐA STJÓRNARSKRÁ. Stjórnarskipunarlög um in sérstak- legu málefni íslands, samþykkt af báðum deildum alþingis 1885. I. 1. í öllum þeim málefnum, sem varða ísland sérstaklega, hefir landið löggjöf sína, dómsvald og stjórn út af fyrir sig, á þann hátt, að löggjafarvaldið er hjá konungi og alþingi í sameiningu, fram- kvæmdarvaldið lijá konungi og dóms- valdið hjá dómendum. 2. In sérstaklegu málefni landsins eru þessi: 1. In borgaralegu lög, hegningarlög- in og dómgæzlan, er hér að lýtr. 2. Lögreglumálefni. 3. Kyrkju- og kenslumálefni. 4. Lækna- og heilbrigðismálefni. 5. Sveita- og fátækramálefni. 6. Vegir og póstgöngur landsins. 7. Landbúnaðr, fiskiveiðar, verzlun og aðrir atvinnuvegir. 8. Skattmál bein og óbein. 9. Þjóðeignir, alþjóðlegar stofnanir og sjóðir. Meðan ísland hefir ekki fulltrúa á ríkisþinginu, en það er komið undir bæði alþingi og löggjafarvaldi ríkisins, leggr landið ekkert til almennra ríkis- þarfa. Enáhinn bóginn tekrþaðheldr engan þátt á meðan í löggjafarvaldinu um almenn ríkismál. 3. Konungr hefir ið æðsta vald yfir öllum inum sérstaklegu málefnum lands- ins með þeim takmörkunum, sem settar eru í stjórnarskrá þessari, og lætr land- stjóra, sem hefir aðsetr sitt í landinu, framkvæma það. 4. Konungr skal vinna eið að stjórn- arskrá íslands. Af eiðstaf konungs skal gjöra 2 samhljóða frumrit, og skal senda alþingi annað þeirra til geymslu, en hitt skal geyma í leyndaskjalasafninu. 5. Konungr er ábyrgðarlaus; hann er heilagr og friðhelgr. 0. Konungr skipar landstjóra og víkr honnm frá völdum. Landstjóri

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.