Þjóðólfur - 05.09.1885, Blaðsíða 7

Þjóðólfur - 05.09.1885, Blaðsíða 7
139 IV. 48. Landsdómr skal skipaðr dómend- um ins æðsta dómstóls innanlands og öllum þingmönnum efri deildar. Ryðja má sá, er ákærðr er, allt að 5 menn úr dómi, þó svo, að jafnan sitji dóminn eigi færri en 2 dómendr ins æðsta dóm - stóls. Jafnan skal tala dómenda á stöku standa, og skal því, ef til kemr, einn úr víkja eftir lilutkesti. Lands- dómr velr forseta sinn. Endi kjörtími, meðan á máli stendr í landsdómi, halda þó efri deildar menn sæti sínu í dómin- um. Réttarfarið við dóm þennan skal ákveða með lögum. 49. Landsdómr einn dæmir í þeim málum, er landstjóri eða neðri deild al- þingis býr til á hendr ráðgjöfunum. Með leyfi neðri deildar getr landstjóri einnig kært aðra menn íyrir þessum dómi fyrir glæpi, er einkar-hættulegirþykja landinu. 50. Skipun dómsvaldsins skal á- kveða með lögum. 51. Dómendr skera úr öllum ágrein- ingi um embættistakmörk yfirvaldanna. Þó getr sá, sem þar um ieitar úrskurð- ar, ekki komið sér hjá að hlýða yfir- vaidsboði í bráð, með því að skjóta mál- inu til dóms. 52. Dómsvaidið skal greina frá um- boðsvaldinu með lögum. 53. Dómendr skulu í embættisverk- um sínum fara einungis eftir lögunum. Þeim dómendum, sem ekki liafa að auk umboðsstörf á hendi, verðr ekki vikið úr embætti nema með dómi, og ekki verða þeir heldr fluttir í annað embætti á móti vilja þeirra, nema þegar verið er að koma nýrri skipun á dómstólana. Þó má veita þeim dómara, sem orðinn er fullra 65 ára gamall, lausn frá em- bætti, en eigi skal hann missa neins í af launum sínum. ‘V. 54. In evangelisk-lúterska kyrkja er þjóðkyrkja landsins, og skal þjóðfélagið því styðja hana og vernda. Sambandinu milli þjóðkyrkju og landstjórnar skal skipa með lögnm. 55. Landsmenn eiga rétt á að stofna félög til að þjóna guði með þeim liætti, sem beztá við sannfæringu livers eins. Þó má eigi kenna eða fremja neitt, sem er gagnstætt góðu siðferði og alsherjar- reglu. 56. Rétt-indi trúfélaga þeirra, sem frábrugðin eru þjóðkyrkjunni, skal á- kveða með lagaboði. 57. Enginn má missa neins í af þegn- réttindum sakir trúbragða sinna, né heldr þeirra vegna skorast undan al- mennri félagsskyldu. (Niðrlag í næsta M.). Reykjavík. 5. sept. — Próf í guðfræði á prestaskól. gengu ]>eir undir í f. m. Ólafr Ólafsson og Pálmi Þórodds- son; fengu báðir 1. eink. — Embætti or/ sýslanir. — l.þ. m. var Fells prestak. í Sléttulilíð veitt cand. theol. Pálma Þóroddssyni' — 4. s. m. var Lundar prestak. í Borgarf. veitt cand. theol. Olafi Olafssyni. Um hvorugt þetta hrauð sóttu aðir. — 29. júlí var cand. phil. Geir Zoéga og kennara Þorv. Thoroddssen veitt sitt adjúnkts- emhætti hvorum við latínuskólann, inum síðar- nefnda frá 1. okt. að telja. — 28. ágúst dócent sr. Helgi Hálfdánarson settr fyrst um sinn til að þjóna lektorsemh. við prestaskólann frá 1. okt. — S. d. séra ÞórhaUr Bjarnarson settr til að gegna emh. séra Helga (1. dócents) við sama skóla frá sama degi. — 29. f. m. umhoðsm. Asm. Sveinssyni vik- ið frá umhoðsstörfum (Arnarstapa umb.), en kaupm., alþm. Holger Clausen falið að innheimta umboðstekjurnar fyrst um sinn. Hafnarfirði, 10. ágúst. —Þilskipin. Fiskiskip „Palmen“, (dönsk eign) skipli. Andresen, kom inu 7. þ. m. eptir rúma 5 vikna útivist með c. 10,000 af fiski. Fiskiskip „Enigheden“ (Nikulásar i Norðr- koti), skiph. Gisli' Þórðarson, kom inn 7. ]>. m. eftir 6 vikna útivist með c. 5000 af fiski. Fiskiskip „Geysir“ (Kristjáns sýslum. o. fl.) skiph. Guðm. Olafsson, kom inn 7. ]>. m. eftir 5 vikna útivist með frá 3—4 þúsund af fiski. Fiskiskip „Ane Mathilde11 (Klem. Egilssonar), skipli. H. Árnason, kom inn 8. þ. m. eftir 5 vikna útivist með hálft sjötta þúsund af fiski. Bréfaskrína „ Þjóðól fs “. 3. Getr það verið rétt, sem stendr í „Alman- aki fyrir hvernmann“, að þeir einir sé skyldir að gjalda presti dagsverk, og kyrkju Ijóstoll, sem tíunda Va hundrað eða meira ? — Forvitinn. Svar: Já, það, sem stendr í almanakinu, er rétt1. En þar stendr: „Þö er enginn skyldr 1 í „Þjó(5ólfi“, aukahl. við XXXVI, 29, 30. júli f. á. er leiðrétt prentvilla á 64hls., 3. — 5. 1. a. n. í Almanakinu; þar á að standa: „er hú eðr hús halda og vinnuhjú, svo giftir sem ógiftir, karlar sem konur; lausamenn og hús- menn, þeir er eigi halda hjú, svo og vinnu- hjú, gjaldi . . . “. ljóstoll að gjalda, nema hann eigi að minsta kosti Va hdr. (hvort sem hann tiundar það sjatfr eða annar). Venja, sem þessu er gagnstæð, er heimildarlaus að lögum“. Á hls. 236 og 237 í kyrkjurétti Jóns Pétrssonar háyfirdómara getið þér séð ljós rök fyrir, á hverju þetta er hygt, og að það er áreiðanlegt. 4. Hvað á ég að gjalda presti fyrir að gifta mig? Beykvikingr. Svar: 6 álnir eftir varðlagsskrár meðalverði (þ. e. í ár: 3 kr. 72 au.). 5. Eg á að horga presti dagsverk. Ef ég vil vinna það af mér, þarf ég þá að vinna meira en 1 dag lijá presti, þótt honum þyki verk mitt ekki virði þess, sem í verðlagskrá stendr? Og er prestr skyldr að fœða mig þann dag? F. Svar: Þér verðið að vinna hjá presti 1 dag um heyannir, og verðr verk yðar að vera með- almanns verk eins og gjörist. Til rneira eruð þér ekki skyldr. Þér eruð engin sök í þvi, þótt dagsverkið sé of hátt metið i verðlagsskránni. Prestrinn á að fæða yðr þann dag, er þér vinn- ið honum. 6. Prestr minn jarðaði lík og hélt rœðu yfir að bón minni. Hann tók fyrir það 7 kr. Atti hann heimting á svo miklu? K. Svar: Líksöngseyrir, sem prestr á heimting á, er 6 al., og er það hátt á 4 kr. eftir verð- lagsskránni i sýslu yðar. Fyrir likræðu ber presti „sómasamleg borgun“. Þér hafið að eins greitt honum liðugar 3 kr. fyrir ræðuna, og er það svo litið, að vart getr heitið „sómasamleg“ borgun. Fyrir að yrkja grafskrift borgar varla neinn minna en 10 kr., og prestrinn á sannlega eins fyrir sina ræðu. Prestr yðar liefir því sett yðr mjög ódýrt likræðuna. AUGLÝSINGAR í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.) hvert orð 15 stafa frekast; m. öðru letri eða setning 1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út í hönd. Mjöfi- ódýrar útlendar hækur fást með þvi að snúa sjer til undirskifaðs hók- sala, sem sel hæði nýjar og brúkaðar bækur og sem nýlega hefi keypt bókaleifar ýmsra stærri hóksala, svo sem Riemenschneiders og fl., er jeg sel með miklum afslætti; ihaust gef jegút skrá yfir ýmsar bækur niðursettar. Þeir, er óska, fá þá skrá senda ókeypis. Jeg annast og kau pbóka þeirra, er jeg ekki kann að hafa sjálfur: enskar, þýzkar og fransk- ar hækur með miklu hetra verði en lijer gerist vanalega. Jeg leyfi mjer hjermeð að hjóða hinum mennt- unargjörnu og fróðleiksfúsu Islendingum að eiga kaup við mig um þær útlendar bækur, er þeir vilja og þurfa að fá. Menn geta sent pantanskrár sinar til nún eða herra verzlanmanns Bjarnar Sigurðarsonar á Oddeyri við Eyjafjörð, er min vegna gefur þær upplýsingar, er með þarf. Utanáskript til mín er: Boghandler I. L. Wulff, Skindergade 22. Kjöbenhavn, K. Eptir 20. sept. n. k. er utanáskript hr. Bjarnar Sigurðssonar líka: Skindergade 22. 255r.] Kjöbenhavn, K.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.