Ný tíðindi - 02.06.1852, Page 8

Ný tíðindi - 02.06.1852, Page 8
52 sunnan - landsunnan, og brim. Á bátnum voru 4 menn, og týndust þeir allir. Formaðurinn rar Jóhann bóndi á Stokkseyri. Um loptsjón, er sást á nœstlibnum vetri, |>ann 26. Octobris. Frá bóndainanni nokkrum Jóni Bjarnasyni í f>ór- ormstungu í Vatnsdal í Húnavatnssýslu (frægum hjer innanlands fyrir þekkingu sína og útreikninga í stjörnu- fræði, og annan fróðleik), hef jeg fengið tvö brjef um loptsjón, er á sunnudag hinn fyrsta í vetri sást í Húna- vatns og Eyjafjarðarsýslum. I fyrra brjefinu, dagsettu 23.janúarm. segir svo: „Á sunnudaginn fyrstan í vetri nær miðjum degi, í heiðriku lopti og glaða sólskini, sáu fá einar manneskjur mikinn Ijóshnött líða frá austri til utvesturs (lágt á lopti) yfir norðurloptið. Hafði sá verið, að sagt var, vel svo mikill fyrirferðar á himni, sem tungiið er, og svo bjartur, sem líkast væri að sjá til sólar gegn um þunna bliku, og engin duna heyrðist til þessau. Síðara brjefið ritaði hann mjer eptir tilmælum inínum, þar jeg vildi fá meira, og greinilegra að vita um loptsjónina, hvar sjest hafi og af hverjum, og fleira. þetta síðara brjef er dags. 13. aprílm. þar skrifarhann: „það voru 3 menn í Grímstungusókn, sem þetta sáu: Bjarni Guðmundsson, bóndinn í Gilhaga (nýbýli frá Haukagili), Jón Jóelsson í Saurbæ og Jón Jónsson Norðmann í Grímstungu. Framvegis: unglingspiltur í Stóradal (í Svínadal í Svínavatnssókn) og nokkrir af messufólki út í Langadal, sem voru á leið til Holtastaðakirkju. Frá öllum þessum bar loptsjónina yfir lágt á norðurhimni, sem leið frá austri til útvesturs. Frá þessum er hana sáu, hef jeg fengið greinilegasta skriflega lýsingu frá Jón Jónssyni Norðmann, og er hún svo hljóðandi: Eptir að jeg kom auga á það, átti það hjer um bil tvo parta eptir ófarið af þeim vegi, sem var á milli fjallanna; það var sem eldur bjart, og á stærð við lítið goluský; á- framhald þess var mikið, og myndir þess urðu margar; það gengu fram úr því oddar og dæld á milli; stund- um myndaðist það að mestu kringlótt, og var það þá minna og þykkra, og sem skýjamót á því; líka sá jeg það setja fram einn rana langan, og þynutist það þá og stækkaði. Eptir af því urðu sem neistar, stærri og smærri, og þá sem logandi þræðir á milli þeirra. þessir neistar fóru mun hægra; eyddust þá þeir litlu, en hinir fóru eptir áðurnefndnm Ijósþráðum, og náðu svo hverjir öðrum, enda hertu þeir þá ferðina og svona hvarf það mjer. — Nokkrir menn í Eyjafjarðarsýslu sögðust hafa sjeð þetta, og fór það hjá þeim yfir þvert lopt frá austri til vesturs, með sömu einkennum, að því fráteknu, að þeim virtist það tæplega eins bjart og hinum, er sáu það fara neðar yfir lopt. En þeim heyrðist til þess um leið og það yfirflaug eins og nokkurs konar buldrandi niður eða suða, líkast því, sem heyra er til sjóðanda járns, þá það er tekið úr eldiu. (Framhaldið siðar). ílestakaupmaöurinn enski, sem hjer er á minnzt að framan, er nú þegar búinn að ljúka erind- um sínum. Ilann hefur keypt uin 40 hross, öll í og kring um Reykjavík og á Kjalarnesi. Meðalverð hjá honum á ógölluðum áburðarhesti eru hjer um bil 20rbdd. Segja þeir, sem með honum voru nú, að svo sje hann viss að sjá aldurinn á tönnum hestanna, að varla muni ári. Ilann vill helzt unga hesta, órakaða á fax og tagl, og í ár sældist hann eptir skjóttum og gráum. — Auk þessa enska skips, sem fór hjeðan aptur 30. d. f. m. eru síðast komin skip til kaupmannanna: Svb. Jacobsens, M. Smith, Jóns Markússonar og Bierings. Ein frakknesk fiskiskúta hefur og komið hjer við, og hafði hún þá aflað 8000 af fiski; frakkneskt herskip liggur hjer nú á höfninni, og hafa nokkrir skipverja ferðast austur að Geisi í Biskupstungum. PrestakölL Óveit t: Stabur í Grunnavík, metið 20rbdtl., augl. 4, d. marzm. Stöð í Stöðvar- firði, met. 13 rbdd. 3 mkk, 4 skk., augl. 19. maím. Meðallandsþinf/ í Skaptafellssýslu, met. 22 rbdd. 2mkk., augl. s. d. Eyvindar- hólar undir Eyjafjöllum, met. 46 rbdd. 8 skk., augl. s. d. M a n n a l á t. Sjera Brynjólfur Arnason prestur í Með- allandsþingum, dó 21. marzm. Sjera Maynús Torfason prestur áEyvindarhólum, dó l.maím. Jóhannes Zoeya, borgari og fátækrastjóri í Reykjavíkurbæ, fæddur 26. Jún. 1796, kvænt- ur 20. Maji 1822 Ingigerði íngimundardóttur, dó 20. Maji 1852. Hann átti 9 börn alls, og lifa 6 þeirra enn. Eptir skýrslum viðkomandi embættismanna var lausafjártíundarstofninn í vetur: i Vesturamtinu..................12,701 cr í Norður og Austuramtinu........ 34,186 cr í Suðuramtinu (Reykjavík meðtal.) 23,380 cr Samtals á öllu Islandi 70,267 cr Riistjóri: M. Grímsson.

x

Ný tíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný tíðindi
https://timarit.is/publication/77

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.