Íslendingur - 25.10.1860, Blaðsíða 6

Íslendingur - 25.10.1860, Blaðsíða 6
110 um við á eigin lengd sinni. Yagninum er hœgt að stýra með skapti nokkru, sem liggur vir gaffal framhjólsins beint að sæti því, sem framan á vagninum er. llakar eru við bæði apturhjólin og má ýta þeirn til með stóng, er !igg- ur fram að sæti því, sem áður er getið. Gufuvjelin er byggð á keri nokkru, sem er sívalt að lögun, en gufu- ketillinn er þar yíir, en vjelin sjálf á milli kersins og ketilsins, og kemst hvorki ryk nje óhreinindi að henni, og getur sá, sem kindir eldinn, hœglega náð til að bera feiti (olíu) á vjelina. í kerinu eru nær 400 pottar vatns, og nœgir það yflr 10 mílur enskar. Ketillinn er gjörður af stáli, og svo lagaður, að ekki sakar, þó yfir mishæðir sje farið. Á vagni þessum þarf miklu meira gufuafl en á járnbraut, til að flytja hinn sama þunga. Eigandi vagnsins er jarlinn frá Caithness, og hefur hann sjálfur ekið á honum víðsvegar um Skotland nvi í sumar, og farið yfir mjög bratta vegu; en hraðinn hefur verið nær 14 rnílur enskar á klukkustundu. Ilvar sem er má stöðva vagninn á skemmri tímaen vagn með hestumfyrir. Loptsigling. 1 enskum hlöðum frá 25. ágiistm. þ. á. er sagt frá því, að prófessor Lowe í New-Yorlc í Áorður-Ameriku liaíi smíðað skip, sem hann ætlar sjer að stýra, ekki austur um haf, heldur í loptinu yfir láð og lög til norðurálfunnar. |>;ið eru mörg hundruð milna. Eptir því, sem frá er sagt, lúta allar líkur að því, að þetta fyrirtœki muni heppnast, og má vel vera, að nú sje lopt- sigling þessi komin til Englands. Sagt er, að loptskip þetta muni verða 2 daga á leiðinni milli heimsálfanna. J>að er 300 feta langt, og 135feta breitt, og þannig lag- að, aðhleypamá því niður ásjóinn þegar vill, og þess vegna eru menn á því, er kunna siglingafrœði og skipstjórn alla. Innlendar frjettir. J>að, semafer okt.mán., liefur tiðarfar mátt heita aligott hjer á Suðurlandi. j>ó gjörði mikið sunnanveður hinn fyrsta dag þ. m., og sleit þáupp fiskiskútu suður í Yogum, rak á land og braut í spón; um sama leyti lestist annað þilskip, er Njarðvíkingar eiga, og þá var uppi í Ilvalfirði; rak það þar á land, en skemmd- ist lítið. Menn sakaði enga. þ. 15. og 16. var hjer á- kaflegt norðanveður, þó fjúklítið, svo að ekki festi, og er hjer auð jörð í byggð til þessa dags, en fallinn er tals- verður snjór áfjöllum. Mælt er, að vesturí Ilörðudal sje fjenaður koininn á gjöf, og svo mikill snjór kominn á Holtavörðuheiði, að menn hafi snúið þar frá með hesta. Sannspurt er, að sumarið hafi verið svo votviðrasamt í júngeyjarsýslu, að elztu menn muna ekki annað eins ó- þurrka-sumar. Má þá nærri geta, hvernig heyskapur hafi þar oröið. Ur Múlasýslum höfum vjer ekki frjett gjörla, en að líkindum ræður, að í nyrðri hluta þeirra muni líku hafa viðrað, sem norðan til í j>ingeyjarsýslu. Allvíða hef- ur taugaveikin gengið og orðið sumstaðar mannskœð, og mikill barnadauði geisaði í j>ingeyjarsýslu í sumar, og vart hefur lians einnig orðið víða hjer á landi. Sauðfje hefur nokkurt komið hiugað til skurðar að norðan og úr Corgarfirði og Árnessýslu, verið heldur dýrt, sem við mátti búast, veturgamaltfje á 5-6rdd., tvævetrirsauðirog eldri, sem nú eru sjaldsjenir, á 7—8rdd., dilkær á 9rdd.; dilkar á 2—3 rdd. Iljer úr nágrenninu hafa verið skornir nokkrir dilk- ar, er Reykjavíkurbúar áttu, oghafa þeir lagtsigá 4rdd., eptir meðalháum reikningi. Af nautum hefur fjölda mikl- um verið slátrað í Reykjavík, og hafa þau kaupin þótt bezt. Mest-allur sláturfjenaður hefur verið heldur rýr, einkum á mörinn. Fiskivart hefur hjer orðið, og heldur vel í 2 daga, sem róið var, en 3. daginn, 18. októb., var fremur lítið um afla, og þá fjekkst helzt fiskur upp á grunni. — 19. þ. m. andaðist úr taugaveikinni Jón Steingrímsson, bóndi á Seli hjer við Reykjavík, ungurmaður og efnilegur. Frá Grœnlandi. Enska herskipið Buldog, kapt. M’ Clintocl:, sem áð- ur ernefndur í blaði voru, kom 19. j). m. hingað aptur frá Labrador og Grœnlandi, og segir Clintock hin vestu tíðindi frá Grœnlandi. Hann fór frá Julianehaab 3. þ. m., og þá var að eins eitt skip komið tii Grœnlands allt sumarið; liöfðu skip þau, er þangað áttu að fara, ekki náð höfnum sökum hafíshrakninga þar umhverfis landið, og eitt, ef ekki fleiri, farizt, með mönnum og öllu, er á var, þar við land. Og svo sögðu Grœnlendingar, að annað eins óveðra-sumar og hafísaár hefði ekki komið yfir þá hin síðustu 40 ár. Clintock lenti í ísum og komst í mikinn háska, og hreppti sífellda storma og illviðri á ferð þessari, og ekki varð hann var við „Fox“, sem átti þó að vera kominn til Grœnlands um þær mundir; getur hann þess til, að „Fox“ annað tveggja hafi eigi komizt áleiðis sökum storma, eða hann sökum ísavið Grœnland hafi haldið beina leið vestur til Hellulands. Hvergi komst hann að landi á austurströnd Grœnlandsfyrir hafísum, sem rak þarfram og aptur með landi afar-mikila, og svo löng var ísbreiðan út frá landinu, að sumstaðar mundu 50 ensk- ar mílur til lands. j>að eru 10—12 mílur danskar. Ruldog tekur hjer steinkolafarm, sem honum er hjer geymdur, 1600 sk®, og heldur síðan heim til Englands. 219 um, og leituðust við að snerta líkklæði lians, sem þau væru einhver dýrmætur helgidómur. Hið rússneska herliö gat eigi skilið í, hver ástœða væri tii, að Warschau-búixr skyldu sýna þessum ágætis- manni slíka lotningu. Erfðaskrá hans lýsti ljóst ástœð- unum til fjegirndar hans, sem svo virtist. j>ar var svo kveðið á, að þeim hinum miklu lendum hans skildi skipt í fimm hundrað hluta, og skyldi hver af þrælum hans eignast einn hlutann, og verða frjáls bóndi. Umfangs- mikinn og ágætan skóla skyldi stofna, og skyldu börn hœnda njóta þar tilsagnar í ýmsum iðnaði. Sjóður var ætlaður til styrktar hinum veiku og ellimóðu. j>rælar þeir, er frelsi höfðu þegið, skyldu á ári hverju greiða lítinn skatt, og skyldi því fje varið til þess smásaman að kaupa frelsi nágrönnum þeirra, er dœmdir voru til harðrar og óþakkiátrar vinnu. Eptir að Staszic hafðiáþennan hátt sjeð fyrirbœnd- um sínum, gjörði liann þá skipun á, að sex hundruðum florins ai fje hans skyldi verja til að stofna fyrir spítala, sem hezt mætti verða, og allmikið íje gaf hann til upp- 220 frœðslu fátœkum unglingum, er til mennta væru settir. En systir hans skyldi að eins fá árlega jafnmikið lje, og hann hafði gefið henni, meðan liann lifði; því að hún var kona hirðulaus og ósiðug, og sóaði öllu því fje heimsku- lega, er liún fjekk í liendur. Forlög Staszics voru næsta undarleg. Ilann varð að þola hakmælgi og óhróður í lifanda lífi; en er hann var látinn, var minning hans blessuð og mikils metin af mann- fjölda þeim, er hann hafði sælan gjört. Furðuleg varðveizla. Árið 1562 í innanríkisóeirðunum milli katólskra og reformertra, þá er herjað var á borgina Rouen, varð Fransiscus Civile særður til ólífis og fjell, sem dauður væri. Hermennirnir ætluðu hann dauðan, ræntu hanu og köstuðu í gryfju eina innan um aðra fallna. Civile þessi átti trúan þjón, er unni mjög herra sínum; fór hann að leita hans um nóttina í þeim tilgangi, að veita honum sómasamlega greptrun, en gat eigi þekkt hann. En í þvi

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.