Íslendingur - 19.10.1861, Síða 8

Íslendingur - 19.10.1861, Síða 8
96 7. Jón Ásmundsson, sonur prófasts sjera Á. Johnsens á Odda í Rangárvallasýslu. 8. Þorkell Bjarnason, sonur Bjarna bónda Bjarnasonar á Brennigerði í Skagafjarðarsýslu. 9. Páll Melsteð, sonur sýslum. P. Melsteðs í Reykjavík. 10. Mattías Jokkumsson, sonur bóndans Jokkums Magn- ússonar á Skógum í Barðastrandarsýslu. 3. bekkur B. 1. Lárus Benidiktsson, sonur sjera B. |>órðarsonar á Brjámslœk í Barðastrandarsýslu. 2. Benidikt Kristjánsson, sonur bónda Kr. Jónssonar á Stóradal í Uúnavatnssýslu. 3. Tómás Hallgrímsson, sonur prófasts sjera Hallgríms Jónssonar á Hólmum í Suður-Múlasýslu. 4. Sigurður Jónassen, sonur etazráðs Th. Jonassens, yfirdómara í landsyfirrjettinum í Reykjavík. 5. Jens Vigfússon, sonur bónda Y. Jónssonar Hjaltalíns á Brokey í Snæfellsnessýslu. 6. Þorlákur Thórarensen, sonur kand. med. et chir. 01. Thórarensens á Ilofi í Eyjafirði. 3. bekkur A. 1. Tómas Bjarnarson, sonur umboðsmanns B. heitins Kristjánssonar á Höfðabrekku í Skaptafellssýslu vestari. 2. Ari Pjetursson, sonur tómthúsmanns P. Skúlasonar í Reykjavík. 3. Stefán Th. Stephensen, sonur jústizráðs M. Stephen- sens í Yatnsdal í Rangárvallasýslu. 4. Eiríkur Briem, sonur sýslumanns Eggerts Briems, sýslumanns í Skagafjarðarsýslu. 5. Páll Jónsson, sonur sjera Jóns Eiríkssonar á Stóra- Núpi í Árnessýslu. 6. Sigurður Sigurðsson, sonur sjera S. Sívertsens á Út- skálum í Gullbringusýslu. 2. bekkur. 1. Steingrímur Johnsen, sonur kaupmanns H. St. John- sens í Reykjavík. 2. Sveinbjörn Sveinbjörnssen, sonur konferenzráðs Th. heitins Sveinbjörnssens, fyrrum yfirdómara í lands- yfirrjettinum í Reykjavík. 3. Jakob Pálsson, sonur sjera Páls Ingimundarsonar á Gaulverjabœ í Árnessýslu. 4. Jónas Iiallgrímssori, bróðir nr. 3 í 3. bekk B. 5. Jón Bjarnason, sonur sjera Bjarna Sveinssonar á jnngmúla í Suður-Múlasýslu. 1. bekkur. 1. Hendrik J. Siemsen, sonur kaupmanns E. Siemsens í Reykjavík. 2. Þorvaldur Jónsson, bróðir nr. 4 í 4. bekk. 3. Hannes Stefánsson, sonur sjera Stefáns heitins Ste- phensens á Reynivöllum í Kjósarsýslu. 4. Jón Einar Jónsson, sonur prófasts sjera Jóns Jóns- sonar á Steinnesi í Húnavatnssýslu. 5. Þórður Guðmundssen, sonur kammerráðs J>. Guð- mundssens, sýslumanns á Litla-Hrauni i Árnessýslu. 6. Thorsteinn Síemsen, bróðir nr. 1 í þessum bekk. Meðal annara fleiri, sem gefið hafa prestaekknasjóðn- um, síðan jeg auglýsti seinast gjafir til hans, ber mjer sjerstaklega í þetta sinn að lýsa því yfir, að heiðurshjónin, herra lögfrœðingur og alþingismaður Jón Guðmundsson ogkonahans, húsfrú Hólmfríður f>orvaldsdóttirhjer íbœn- um, hafa gefið nefndum sjóði með gjafabrjefi 26. f. m., í minningu þess, að það var 26. giptingardagur þeirra, */4o hluta af skuldlausum og arfgengum eigum sínum eptir sinn dag. Af þessum peningum gjalda þau jafnframt 4% vexti, sem fyrst lúkast 26. sept. 1862, og árlega úr því, meðan innstœðan er í þeirra vörzlum, sem þau þó hafa áskilið sjer að mega leysa af höndum, efþau vilja, í lifanda lífi, með 100 rdd. upphæð, eins og sjóðurinn ekki skuli eiga heimtu á meiri upphæð, ef luin er ógreidd, við frá- fall þeirra, en 100 rdd., þó skuldlaust bú þeirra skyldi nema meiru, en því svari að 1,/40 hluta; en nemi bú þeirra minna, verður það eptir því skaði sjóðsins. Fyrir þessa höfðingsgjöf votta jeg hjer með fyrvelnefndum heiðurs- hjónum mitt innilegasta þakklæti hlutaðeiganda vegna. Skrifstofu biskupsins yflr íslandi, 5. október 1861. H. G. Thordersen. — Póstskipið Arcturus fór hjeðan 3. þ. m., og all- margir ferðamenn með þvi, þar á meðal alþingismaður G. Brynjúlfsson, Pjetur Fr. Eggerz frá Borðeyri, stud. jur. Guðm. Pálsson, frú Jórunn Gunnlögsen og 2 börn henn- ar, frök. Elinborg Magnussen frá Skarði á Skarðsstrónd, kvekararnir Isaak Sharp og Ásbjörn Kloster, mr. Holland og mr. Skephard, stúd. Bertel Gunnlögsen, Pjetur Kristó- fersson, laxveiðamaður, og fjelagi hans. — Skipskaði. í ofsaveðri af útsuðri 2. þ. m., sleit upp kaupskip á ytri legunni á Eyrarbakka, nýkomið þang- að með kornfarm. Málti þó kalla lán með óláni, að allt kornið, sem þangað átti að fara, var komið á land, en í skipinu fórust hátt á annað hundrað tunnur korns, sem ætlaðar voru Levinsens verzlun í Hafnarfirði, og auk þess frek 70skpd. af saltfiski, sem búið var að flytja út í skipið. Brotnaði það stórkostlega þar á skerjunum, og allt var selt á uppboðsþingi, skipskrokkurinn og vörur þær, sem í því voru; er mælt, að fengizt hafi um 2000 rd. fyrir hvort- tveggja. Menn komust allir af. Er þettavíst hið 4. skip, sem farizt hefur þar nú á hinum síðustu 15 árum. — Tíðarfar má heita gott, fremur þó umhleypinga- samt og úrfeili nokkurt. Fiskiafli allgóður á Seltjarnar- nesi 18. og 19. þ. m., en tregt til þess. — Lítil Yarningsbók, handa bœndum og búmönn- um á íslandi, samin af Jóni Sigurðssyni, Khöfn, á íOskk., fæst í lleykjavík hjá Einari J>órðarsyni. 30. sept. er sjera Ólafur Einarsson Jóhnsen á Stað á Reykjanesi kjörinn virkilegur prófastur í Barðastrandarsýslu. Prestaköll. V e i 11: Stœrri-Árskógur í Eyjafjarðarsýslu sjera Hjálm- ari þorsteinssyni á Presthólum í þingeyjarsýslu liinn 4. október. Óveitt: Presthólar með anexíunni Ásrnundarstöðum í þingeyjarsýslu, að fornu mati 26 rd. 34 sk. lljer að auki er þess að geta, að 1/3 af jörðinni Sígurðarstöðum er eptir konungsúrskurði 29. júní. f. á. lagður til presta- kallsins. Emeritprestur hefur verið í brauðinu, og notið Vs Parts Þess föstu tekjum. En það verður ekki nú sem stendur sagt með vissu, hvort hann framvegis eigi aðgang að þessum eptirlaunum. Brauðið er auglýst 7. þ. mán. Útgefendur : Benidikt Sveinsson, Einar Þórðarson, Halldór Friðrilcsson, Jón Jónsson IíjaUalín, Jón Pjetursson. ábyrgWmaW. Páll Pálsson Melsteð, Pjetur Gudjohnson. Prentabur í prentímitjimni í Reykjavík 1861. Eiuar pórSbarson.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.