Íslendingur - 10.01.1862, Page 1

Íslendingur - 10.01.1862, Page 1
ANNAÐ ÁR. I 0. janúar. Um notknn ýmisleg-s manneldis, sein nú liggur Jví nær ónotað lijá oss. I^aí) er híirmulegt til þess ab vita, hversu mannkynfó er skammt á veg komií) í því, ab nota orlatti náttúrunnar. B u f f o n. — Svona ritaði hinn nafnkunni náttúruspekingur Frakka fyrir 80 árum um þjóð sína, þá þjóð, sem þó bœði fyr og nú þykir standa þjóða fremst í norðurálfunni. Hvað ætla að hann hefði sagt, liefði hann iifað á íslandi? livernig ætla að honum hefði litizt á, hefði hann vitað, að 60 þúsundir manna eru allt af að kvarta um sult og seyru, þótt drottinn hafilagt öll þau gœði upp i hendurnar á þeim, er ætlazt verður til á norðlægu 1800 ferhyrndra mílna stóru landi, og þar sem þó er eigi meir en 5 mæli- stigum kaldara, en í norðurhluta Frakklands? Já, sann- arlega megum vjer kcnna oss sjálfir um, íslendingar, en hvorki guði nje náttúrunni, þegar oss brestur hið nauð- synlega lífsins viðurværi, og hin eina afsökun, sem vjer höfum, er kunnáttuleysi vort að nota náttúruna og gœði hennar, eins og skynsömum verum hœflr, og skaparinn ætlaðist til, þegar hann sagði: »Með erfiði skaltu þig af jörðunni nœra alla þína lífdaga«. En menn munu segja, sem vonlegt er, að slíkar heimsádeilur gagni lítið, þegar í bágindin er komið, og þær gjöra það reyndar eigi, ef þær eru hafðar sem brigzl- yrði við nauðstadda menn; slíkt sœmir alls eigi, og það er engan veginn ætlun vor, heldur hitt, að menn á líma neyðarinnar eigi að hugsa um, hvernig slíkri neyð megi af ljetta, og af stýra eyðileggingu þeirri, er hún kynni að valda. það er gamalt máltœki, »að neyðin kenni naktri konu að spinna«, og það er engum efa bundið, að það er ein- mitt neyð þjóðanna, scm hefur hrundið þeim hvað mest á fram á vegi framfaranna. Hinir síðari sagnaritendur liafa sannað með ljósum dœmum, að á miðöldunum var 5. hvert ár ýmist pest eða hungursneyð einhverstaðar í liinum kristnu löndum, og þessi býsn hættu fyrst, þegar m m mannkynið smásaman fór betur að þekkja náttúruöflin, og lærði að nota auðæfi náttúrunnar, eins og vera ber. Að vjer Islendingar enn þá stöndum á baki annara þjóða í þessu efni, kemur að mildu leyti af stöðu vorri, þar sem land vort er svo afskekkt aðaluppsprettu framfaranna; en nokkuð kemur þetta líka af deyfð vorri og fastheldni við gamlar venjur í öllum vorum lifnaðarháttum. Oss virðist og, að vjer Islendingar gleymum því of opt, hve háska- legt það er, að reiða sig allt af á einhverja sjerstaka at- vinnuvegi, t. a. m. fiskiafla, fjárrœkt, kúabú, og halda, að það geti aldrei brugðizt, af því það gengur optvelimörg ár í rennu, þegar allt lætur í lyndi, en þó sýnir sagavor ljóslega, að allt þetta hefur brugðizt, og að landar vorir hafa því fallið þúsundum saman í hungri. Á fyrri öldum, þegar kúabú vor stóðu sem bezt, kom nautadauðinn og hnekkti þessum bústofni vorum ; þá fóru menn að reiða sig á fjeð, en einnig þetta brást, eins og dœmin sýna bæði á hinni fyrri öld og þessari. Reyndar hefði mátt gjöra mikið við þessu, hefði kunnáttuna eigi vantað, og menn eigi verið of fastheldnir við gamlar skoðanir og gamlan vana; en það verður nú að taka svo ár sem það gár, því vjer vitum af óteljandi dœmum úr mannkynssög- unni, að fastheidnissýkin við gamla venju er ein af erfða- syndum mannkynsins, og það er efasamt, hvort áhrif hennar eru minni hjá öðrum þjóðum en oss, sem eigi eru lengra á veg komnar. Lakast af öllu virðist hjá oss, þegar sjávaraflann brest- ur, og það verður því tilfinnanlegra, sem hann, síðan land- ið fór að ganga meira úr sjer, er orðinn aðalatvinnuvegur fjölda manns, og það svo, að bœndur vorir geta eigi án hans verið, ef allt á að vera í góðu lagi. Hjer er samt sem áður eigi hœgt viðgjörða, og löngum mega sjómenn vorir sanna, »að svipul er sjávargjöf«. Margir ímynda sjer raunar, að sjóinn mundi miður hresta, ef vjer hefð- um gnœgð af þiljuskipum, en vjer erum hræddir um, að þessir hafi eigi fullkomlega íhugað, hversu mörg vandkvæði eru á þiljuskipa-útgjörð í landi voru, að vjer eigi tölum 113 Fulltrúi minn. (Snúii) úr diiusku. „Fæ d r eia n de t“, 219—220; 20, — 21. d. sept. 1861). Jeg hafði þráfaldlega sjeð hann, áður en hann varð fulltrúi minn, og hafði ávallt vaknað hjá mjer eins konar forvitni, er jeg virti hann fyrir mjer. Jeg hafði einatt mœtt lionum í göngum hússins langa, er hann gekk í erindum sínum úr einu herbergi í annað; ávallt var hann eins búinn, stilltur í fasi og nœgjusamur. Einhverju sinni datt mjer í hug, að jeg hafði aldrei sjeð hann annarstað- ar, og jafnvel eigi á strætum hœjarins, og það hefði þó auðveldlega getað að borið. |>að lá við, að jeg ímyndaði mjer, að hann sykki niður í jörðina, er hann gekkúrskrif- stofunni síðari hluta dagsins, og gekk niður hinn breiða stiga, og kœmi eigi upp aptur fyr en næsta morgun. Jeg hafði spurt ýmsa, hvaða maður hann væri, en enginn vissi neitt um liann eða háttalag hans, þegar hann var eigi í skrifstofunni. Ilann mælti sjaldan eða aldrei við aðra menn, nema hann væri neyddur til, og svo leit liann út, sem lifði hann cinmana í hiDum fjölmenna bœ. J>að var auð- iu sjeð, að hann hafði verið fríður maður sínum á yngri ár- uni; andlitsdrættir hans voru reglulegir, augun fjörug; hann lypti þeim hœgt upp, er hann talaði, og þeim, sem virtu hann fyrir sjer, varð að detta í liug, að hann væri eigi sem fólk er flest. En það gat jeg eigi skilið, hver væri ástœðan til hins undarlega háttalags hans, hœglætis og hœversku; því að mjer virtist að síðustu, að hanu hlyti aðverafrábær ágætismaður. |>að var, sem einhversáof- urharmur hefði fyrir löngu á hann iagzt, erhann hefði eigi getað undir risið; að hann hefði lengi átt í baráttu við sjálfan sig, til að geta risið á fœtur aptur, og að honum liefði tekizt það á endanum, þótt erfitt hefði veitt og langa baráttu kostað, að hann væri nú óhultur og rósamur, enda þótt hann enn fyndi til þunga þess, er á honum liafði legið. Forvitni mín hvarf, en mjer fór að verða annt um mannþennan, oglangaði mig til að þekkja hann, og þótti mjer vel, er liann varð fulltrúi í skrifstofu minni. Maður þessi var kominn yfir fimmlugt, og furðaði mig æ meir og meir á því, að hann skyldi eigi fyrir löngu hafa

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/86

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.