Baldur - 08.09.1869, Side 1

Baldur - 08.09.1869, Side 1
Reykjavik, 8. dag september-mánaðar. Bfi'' H* l’T Annað ár, 1869. il li II U Jfe, 16.—17. Vert) árgangs or 4 mrk 8 sk., og borgist fyrir lok september- míÍDatiar. Kanpendnr borga engan bnrtlareyri. Efni: Alþingi og þingmál. — Frjettir inniendar. — Pástskip. — Frjettir útlendar. — Merkilegnr atburíiur. — Smámnnir. — Vígþir. — Frami. — Marinaiát. — Aoglýsing. — Embætti. ALþlNGI OG I>INGMÁL. IV. (Undirbúningsumrœða um stöðu fslands í ríltinu). Frá því á þriðjudaginn, hinn3I. d.f. m., hafa á hverjum degi verið kvöldfundir á alþingi, og stóð undirbúningsum- ræðan í málinu um stöðu íslands í ríkinu yfir á 7 fundum, unz henni var lokið á fyrra fundi á föstudaginn, 3. d. þ. m. — Alla þessa daga var troðfullt allt það svið, er áheyr- endum er ætlað á þingsalnum og langt fram á gang, og sýndi það sig, að þingsalurinn erallt oflítill til þess, að al- þýða geti fylgt málum þeim á þingi, er hún hefur áhuga á. Vjer höfum áður lýst nefndarálitinu í síðasta blaði, en það var nú svo sem auðgengið að því fyrirfram, að hinir konungkjörnu á þinginu mundu verða móti nefndinni og vilja ræða frumvarpið. En auk þeirra hafa af þjóðkjörn- um þingmönnum sýnt sig að vera móti nefndinni, þingmað- ur Vestmanneyinga, Árnesinga og Gullbringusýslu, sem vildu fara einhvern meðalveg, er oss sýnist auðsjáanlega ekki greiða fyrir málinu; en einkum stældi móti nefndinni þing- maður Rangæinga. það eina sýndi sig fljótt í ræðum þessa þingmanns, þótt hann sýndi í ræðum sínum, hvergáfumaður hann er og hverja þekking hann hefir á stjórnarmálum, að málstaður sá er hann vildi verja var ekki á góðum grundvelli byggður, enda varð honum of þungt fyrir að gjöra það að- gengilegt í augum þeirra þingmanna er fylgdu því fram sem eðlilegt er í þessu máli. Forseti hefurhaldið einaræðu og þarf ekki því að lýsa að hún var ágæt, en auk hans hafa fáir að vorri ætlan tal- að betur máli nefndarinnar, en þingmennirnir úr þingeyjar- sýslu. Vjer setjum hjer nokkra kafla úr nokkrum hinum helzturæðum, sem talaðar hafa verið í þessu máli með og mót. þlNGMAÐUR RANGVELLINGA (Grímur Thomsen, Dr. phi- los., Legationsráð, K. af Dbr., riddari afLeopolds-orð- unni og heiðursfylkingunni, óðalsbóndi á Bessastöðum og meðhjálpari í Alptanessókn): i>.......þingmaður tlúnvetninga sagði, að breyting- aruppástungur mínar væri þýðingarlausar orðabreytingar. Breytingin í 7. gr. er þó vissulega mikils verð, og hún er jafnframt svo eðlileg, að eg fyrir mitt leyti er öldungis sann- færður um, að ríkisþingið gangi innáhana. Hún ernefnil. í því fólgin, að íslendingar leggi ekkert til hinna almennu þarfa, fyr en þeir eiga fulltrúa á ríkisþinginu; en í annan stað er svo á kveðið að alþingi ræður, hve nær þetta verð- ur. það er með öðrum orðum: alþingi ræður, hve nær íslendingar eiga að fara að leggja til hinna almennu mála. Borguu fyrir auglýsiugar er 1 sk. fyrir hverja 15 smáletursstafl ebur jafustúrt rúm. Kaupendur fá helmiugs-afslátt. þegar þingmaður Ilúnvetninga áðan barði í borðið, þá minnt- ist eg þess manns, sem nefndur var í dag af þingmanni Daiamanna, nefnil. Staðarhóls-Páls gamla. Margir þekkja þau orð bans til konungs, sem nefnd voru í dag, en menn munu einnig hafa heyrt söguna, þegar hann sigldi nýju skipi á sker og kvað vísu þessa: «Ytar sigla austan um sjó nöldujónum káta; «skipið er nýtt, en skerið er hró, • skal því undan láta». þótt nú Staðarhóls-Páll væri dugandismaður í mörgu, þá var hann stórbokki, og stefna þingmannsins er eins og Staðarhóls-Páls, því að rikisþingið er það sker, sem betra mun að sigla heldur hjá, heldur en beint á það. það tjáir lítt að berja í borðið; vjer eigum lítið undir oss, og ætt- um því að við hafa það lag, og vera svo tilslökunarsamir, sem framast er unnt. þingmaður Eyfirðinga sýndi, að það, sem oss nú er boðið, sé lakari kjör, en boðin voru 1867. En þá hefði þingið átt að vera svo skynsamt, að gjöra eigi við það (o: frumvarpið 1867?) þær breytingar, sem stjórn- in síðan gat eigi gengið að. Hver svarar fyrir, aðþað,sem siðar verður lagt fyrir, ef það annars verður nokkuð, verði eigi enn þá verra? Jeg vil benda á nokkuð það, sem fyrir getur komið, ef frumvarpinu er algjörlega hafnað. Stjórn- in sjer, hve margt þarf umbóta við, oghvað liggur þábeinna við, en að hún fari að leggja nýjar álögur og skatta á, t. d. óbeinlínis á verzlunina. Jeg skil eigi, hvernig þeir menn sem breyta eptir sann- færingu sinni geta farið að álíta það ábyrgðarlaust að draga allt í þessari óvissu; því það er ólíklegt eptir þeirri stefnu sem málið hefir tekið siðan 1867, að það fari batnandi, sem vjer eigum kost á, ef vjer höfnum frumvarpinu, en ef vjer tökum því nú sem oss er boðið, þá er vitaskuld, að oss er innanhandar smámsaman að fá bætt úr þvi, sem reynslan væri búin að sýna, að helzt stæði oss fyrir þrifum, jeg veit nú reyndarekki hvort menn trúa mjer, þóttjegsegi þeim, að í engu landi séu full og skýlaus ábyrgðarlög fyrir ráðgjafa, en ábyrgð ráðgjafans er í því innifalin, að ef liann fær ekki með sér meiri hluta hins löggefandi þings, þá hlýtur hann að víkja frá embætti, af því hann getur ekki stjórnað þegar þingið hótar að neita honum um peningana. Ef hann aptur á móti hefir brúkað fé landsins öðruvísi en þingið hefir lagt fyrir, eða yfir höfuð ólöglega, þá snertir það ekkert þá einkennilegu ráðgjafaábyrgð, en varðar að eins hegningu fyrir dómstólunum, eins og hvert annað laga- brot. það leit svo út í gær, sem menn tryðu ekki hinum háttvirta 3. konungkjörna þingmanni, þegar hann sagði frá, að á Englandi væri engtn lög til um ráðgjafa-ábyrgð, en það var öldungis rétt hermt. það var einu sinni stungið 61

x

Baldur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/90

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.