Heilbrigðistíðindi - 30.06.1871, Blaðsíða 3

Heilbrigðistíðindi - 30.06.1871, Blaðsíða 3
91 UM-ÁFENGA DRYKKI. Það hefur Iengi verið einhver hinn almennasti löstur manna, að fjöldi þeirra hafa verið allt of mjög hneigðir fyrir áfenga drykki, og það af ýmsn tægi. Norðurlandabúar hafa yfir höfuð opt fengið orð fyrir það, að þeim þætti góður sopinn, og satt að segja höfum við íslendingar eigi farið varhluta af brigzl- yrðum í þessa átt, eins og sjá má af ýmsum stökum og ljóð- mælum. Þannig kvað Jónas heitinn Hallgrímsson: «Þeir lifa þar af mysu og mjólk, ogmestá brennivíni», og líkt má finna í Sldpafregn, og ótal öðrum Ijóðmælum. Satt að segja getum við með engu móti neitað því, að hjer er drukkið helmingi meira af brennivíni og öðrum áfengum öldrykkjum, en vera bæri. Það var raunar sá tíminn, að menn hjeldu, að ölföng væru nauðsynleg fyrir heilsuna, að þau ættu að styrkja mann o. s. frv., en hinar röngu skoðanir, er lágu til grundvallar fyrir þessu, eru fyrirlöngu hraktar. Brennivín hefur alls enga næringu í sjer ; það espar að eins blóðrásina í svipinn, eykur um stundarsakir hita líkamans, en þessum áhrifum þess fylgir linleikur í öllum líkamanum eptir á. Drukkna menn kell langt- um fljótara en þá, sem ódrukknir eru, og leggi drukkinn mað- ur sig til að sofa úti á víðavangi í köldu veðri, gelur hann dáið, þar sem hinn ódrukkni kæmist vel af. Drukknir menn deyja og afar-fljótt í vötnum og sjó, og dæmi eru til, að drukknir menn, sem að eins hafa dottið útbyrðis í lendingu, eða los- azt við hesta í ám, hafa svo að kalla þá þegar verið steindauðir. Enn auk þess að brennivinið getur orðið mönnum að bráð- um bana, þá er það og orðið óyggjandi, að það, einkurn þegar það er drukkið í óhófi, eyðileggur heilsu manna og styttir opt lífdaga þeirra nærfellt um allan þriðjung. ÁEngland'i hafa menn það fyrir satt, að ungir menn, sem fari að drekka um tvítugt, missi að öllum jafnaði 25 ár af æfi sinni. Þeir, sem fyrst fara að drekka, þegar á apturfararskeið æfinnar er komið, þola það að vísu betur, en þó er það reglan, að heilsa þeirra bilar og lífdagar þeirra styttast við ofnautn áfengra drykkja. Þau líffæri, er vanalega fyrst bila á öllum drykkjumönnum, er mag- inn; þeir missa stundum matarlöngun og af því leiðir, að öll

x

Heilbrigðistíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.