Heilbrigðistíðindi - 30.06.1871, Qupperneq 6
94
fyr nefnda skipi dó 1 í sóttvarnarhúsinu. Það er svo sem
náttúrlegt, að skipstjóri Burette, sem fór heim, hafl sagt frá,
hvernig bjer leit út, þegar hann fór hjeðan, og með því að
enginn gat fyrirfram vitað, hve mikið mundi verða úr þessari
bóluveiki, hafa hlutaðeigendur þar orðið hræddir við þessar
frjettir og líkast til hugsað sjer, að ekki að eins flestallir fiski-
mennirnir, heldur jafnvel íslendingar sjálfir mundu þurfa hjálpar
með. Þetta virðist hafa gefið tiiefni til, að stjórnin rjeðst í
það, að senda hingað skip með 4 læknum, 2 lyfjabúðum og
öllum áhöldum fyrir hjer um bil 200 manns. Skip þetta var
mjög vel út búið, og kom hingað hinn 13. þ. m., en þá voru
eptir í spítalanum ekki nema 2 af hinnm bóluveiku, því hinir
allir fóru hjeðan allæknaðir hinn 7. maí. t*eir 2, sem eptir
höfðu verið, voru hásetarnir Baivin og Grenier, báðir af skip-
inu Charles, og voru þeir þá báðir búnir að vera á ferli meir
en mánaðartíma. Þeir voru þá þegar fluttir um borð á spí-
talaskipið «la Bievre», en með því að þeir vildu heldur fara
á sitt eigið skip til að fiska, og það var komið hjer um sama
leytið, voru þeir fluttir yfir á það.
Þannig er þá bóluveikinni, eptir því sem frekast verður
sjeð, nú út rýmt úr landinu í þetta skiptið, og má þakka það
ötulleik þeim, sem stiptamtmaður og landfógeti sýndu í því, að
stofna sóttvörnina svo fljótt, sem auðið var, enda hafa þeir
ekkert látið eptir liggja, sem gat stutt að því, að hinum veiku
yrði sem bezt hjálp veitt. En þó þetta virðist nú að hafa viljað
heppilega til, og það heppilegar, en vant er að vera, þar sem
slíkan sjúkdóm ber að höndum að mönnum óviðbúnum, þá
ættu menn þó að hafa stöðugar gætur á þessu málefni, því
bólan er enn þá mjög útbreidd um allt Frakkland og England,
og kveður svo mjög að því, að í Lundúnum deyja enn hjer
um bil 300 manns á hverri viku. Daglega koma og fram fleiri
og fleiri dæmi þess, hvernig bóluveikin berst landa á milli í
fötum og klæðum, rjett eins og hjer átti sjer stað, þegar stóra-
bóla kom hjer 1707, því hún kom einmitt í fötum frá Kaup-
mannahöfn. Vjer fáum nú hjer til landsins klæði og ýmislega
aðra ullar- og baðmullardúka frá Hamborg og öðrum stöðum,