Heilbrigðistíðindi - 01.11.1879, Qupperneq 7

Heilbrigðistíðindi - 01.11.1879, Qupperneq 7
«7 að hafa sem flesta og ðuglegasta lækna. Jeg meina þó engan veginn þar með, að það sje gagnlegast, að fjölga sem mest homöopathiskum skottulæknum, eins og gjört hefir verið til þessa, og sem eru vorra tíma hneyxli, eins og þeir nú tíðkast hjer á íslandi, og eigi annað fyrir að sjá, en þeir, ef þessu fer fram, eyðileggi alveg alla reglulega.læknahjálp hjer á landi, og jeg hljóti þar af, og þeir sem mjer hafa fylgt, að hafa þá sorg, að sjá allt það, sem jeg hefi bar- izt fyrir betri laéknaskipun hjer á landi, Hða undir lok. það er annað en gaman, þegar jafnvel doc- tores philosophiae, fyrir utan alla smælingjana, fara að leggjast á eitt, til þess að koma því á, sem hald- in er hin versta mótspyrna móti allri reglulegri læknahjálp. það er von, þótt almenningur, sem fer eptir nafninu „læknir" villist á slíku, einkum þegar þeir heyra það framborið af lærðum mönnum. Eg hefi aldrei láð löndum mínum það, þótt þeir vildu fjölga læknum hjá sjer, því þess þurfa þeir sannar- lega með; en hitt hefi jeg jafnan láð þeim, og lái jafnan, að þéir bæði í orði og verki halda með þess- um „smáslcammtafúskurum“, sem aldrei getakallast læknar, og leggja mjer þann þröskuld í veginn, sem bæði þeim og almenningi hefði átt að þykja mál komið að ryðja sem fyrst úr vegi manns. J>ó jeg sje nú kominn alvarlega á hin efri ár- in, þá er kraptarnir eru vanir að hnigna, er mjer, Guði sje lof, enn nú eigi svo apturfarið, að eigi geti jeg borið hönd fyrir höfuð mjer eða embættisbræðra minna, þegar embættisskylda mín býður það, og læknisfræðinni, semjeg alltaf hef elskað af hreinum hug, er misboðið af ðvitrum ogalls eigi mjer velvilj- uðum mönnum. Landar mínir verða því að kenna sjálfum sjerþað, ef jeg sje mjer skylt, aðfæraþetta

x

Heilbrigðistíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.