Alþýðublaðið - 11.02.1960, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 11.02.1960, Qupperneq 10
>WM»WWWWW*WMiMMW»IW ÞAÐ er langt síðan Banda- ríkjamenn hafa hvorki átt fyrsta mann í 110 eða 400 m grindahlaupi, en þannig var það nú á síðasta ári. — Hi'nn fjöl- hæfi Martin Lauer er beztur í 110 m, en Potgieter frá S-Af- ríku í 400 m. 1 stuttu grindinni eru það Bandaríkjamenn, sem eiga lang flesta á skránni eða margfalt fleiri en öll önnur lönd saman- lagt. Evrópumenn eru samt að sækja sig, verðlaunamennirnir frá BM ásamt Pensberger eru þar langfremstir. Ekki er gott að segja hvernig stutta grindin fer f Róm, en Bandaríkjamenn eru hinir bjartsýnustu og bera 63 m / kringlu? — Ég er viss um að einhver Bandaríkjamaður kastar kringl unni lengra en 60 m í vor. ... En £ sumar mun einnig einhver Evrópumaður gera slíkt hið sama. Það er skoðun mín að á næstu árum kasti einhver kast- ari ca. 63 m. Þeta eru orð ungverska kast- arans Joszef Scecsenjd. takmarkaða virðingu fyrir Lau- er, en tíminn mun lei'ða í Ijós hver úrslitin verða. Bandaríkjamenn eru ekki eins sterkir í löngu grindinni og ef litið er á „brei'ddina“ standa Evrópubúar framar sem heild. Potgieter er öruggur og verður skeinuhættur, en Glenn Davis er erfiður, ef hann kemst í eins góða æfingu og 1958. 110 m grindahlaup: Martin Lauer, Þýzkal. 13,2 Hayes Jones,.USA 13,6 Lee Calhoun, USA 13,7 A. Mihailov, Sovét 13,7 Elias Gilbert, USA 13,7 Warren Cawley, USA 13,9 Stanko Lorger, Júg. 13,9 Chuck Cobb, USA 13,9 Willie May, USA 13,9 Walter Pensberger, Þýzk. 14,0 Dickie Durham, USA 14,0 Clarence Treat, USA 14,0 Calvin Cooley, USA 14,0 Russ Rogers, USA 14,0 Ancel Robinson, USA 14,0 Bill Tillman, USA 14,0 400 m grindahlaup: G. Potgieter, S-Afr. Dick Howard, USA Josh Culbreath, USA Glenn Davis, USA -♦Helmut Janz, Þýzk. M. Martini, Ítalíu, Warren Cawley, USA A. Kljenin, Sovét J. Litujev, Sovét S. Morale, ítalíu C. Cushman, USA A. Matsulevitj, Sovét Pavel Sidov, Sovét C. Goudge, Bngl. P. O. Trollsás, Svíþjóð Martin Lauer, Þýzk. russ- Martin Lauer yfir einni grindinni. nesk met LENINGRAD, í gærkv. — Á innanhússmóti hér í gærkvöldi setti Anatoly Mikailov nýtt rússneskt met í 110 m. grindahlaupi (innanhúss), hann hljóp á 13.8 sek., en gamla metið, sem hann átti sjálfur, var 13.9 sek. Kvöldið áður setti Mik- hailov einnig met í 100 m. hlaupi, en tími hans þar var 10,4 sek. SPORT komið ÍÞRÓTTABLAÐIÐ SPORT, 3. —5. tölublað 5. árgangs er ný- komið út, fjölbreytt og mjög vandað að öllum frágangi eins og áður. Af efni blaðsins má nefna: Frá ársþingi ÍSÍ, Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum 1959, Sundmeistaramót Norðurlanda, íslenzkir knattspyrnumenn vaxa í áli'ti á NorðurJöndum, ís- lenzkir frjálsíþróttamenn gera strandhögg erlendis, „Beztu“ skákmenn íslands í dag, Stór- sigur KR £ I. deild, Heimsókn þýzku sundgarpanna, Ýmsar fréttir utan af landi o. fl. a. fl. Ritstjóri SPORTS er Jóhann Bernhard. Mánaóarl. á íbúð i Sq. Val- ley hvorki meira né minna en ÁHUGINN fyri'r vetcarleikun- um í Squaw Valley fer dagvax- andi, segir Scneider, fréttamað- ur þýzku fréttastofunnar SID í Bandáríkj unum. 7500 ferðamenn hafa þegar heimsótt Squaw Valley. Flestir hafa komið í bifreiðum eða alls í 3000, en aðeins nokkur hundr uð í áætlunarbfireiðum. Margi'r hafa reynt skíðakunnáttu sína í brekkum Olympíukeppend- anna. Alls eru 12 til 13 þúsund mið ar seldir og eftirspurn fer vax- andi. Allír miðar eru uppseldir að keppni í ísknattlei'k og list- hlaupi á skautum. 8500 manns hafa greitt kr. 9685,00 fyrir hvern seríumiða að öllum grein um leikanna. Fr.amkvæmda- nefnd leikanna reiknar alls með 35 þúsund áhorfendum. Það er ekki laust við að það sé dýrt að búa í GLympíuþorp- i'nu. Leiga á einbýlishúsi með 2 til 3 herbergjum kostar kr. 212 þús. yfir mánuðinn (38 krónur dollarinn). Það er því búizt við að flestir áhorfenda dvelji að- eins einn dag í Squaw Valley og furðar það engan. Meiri' hluti áhorfenda kemur áreiðan- lega í einkabifreiðum. Það er hægt að leggja 8000 bifreiðum við Olympíuþorpið. oOo OLYMPÍIUELDURINN, sem loga á meðan VIII. vetrarleik- arni'r standa yfir, kom með flug vél til Los Angeles. Á móti hon um tók Parry O'Brien, heims- methafi 1 kúluvarpi og bar hann til „Memorial Coliseum“, en síðan hófst boðhlaup 1000 stúdenta með eldinn hina. 960 km löngu leið til Squaw Valley. oOo ÞAÐ er hláka í Squaw Valley þessa dagana. Heit loftlög frá Hawai eru nú yfir Olympíu- þorpinu. Rignt hefur af og til, en þar sem snjórinn var mikill fyrir, er fram;kvæ.mdanefndin ekki' enn komin með áhyggjur. Hlákan hefur einmitt hjálpað til'við undirbúning brauta o. s. frv. oOo EINS og við höfum skýrt frá er íþróttafólkið byrjað að streyma til Olympíuþorpsins. Fyrst komu tíu bandarískir skautamenn. Þar næst 9 skauta merin frá Kóreu og í þri'ðja lagi keppendur Bandaríkjanna í list hlaupi á skautum, þ. á m. Carol Heiss og David Jenkins. Carol Heiss, sem á að sverja Olymp- íueiðinn fyrir hönd allra kepp- enda, sagði m. a.: — Ég hlakka til síðustu æf- i'ngadaganna' og vonast til að vinna gullpeninginn eftir að hafa sigrað fjórum sinnum á heimsmeistaramóti. 10 11. febr. 1960 — Alþýðublaðið HÉR sjáið þið þegar Olympíueldurinn var kveiktur í Morgedal, Noregi, en þaðan var hann- fluttur flugleiðis til Kali- farníu. — Myndin sýnir formann Morgedal skíðá- félagsins, Eivind Strondi, halda á Olympíueldinum, en ungi pilturinn, sem að- stoðaði hann heitir Oláv- Nordskog.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.