Alþýðublaðið - 11.02.1960, Side 16
y/
.
Q
11. árg. — Fimmíudagur 11. febrúar 1960 — 33. tbl.
HULL: Brezka togarasam-
bandið veitir á hverju ári
bikar þeim togaraskipstjóra,
sem mestan af'.a hefur sett á
land á árinu. Bikarinn 1959
fékk þessi hérna, Norman
Longthorpe, skipstjóri á tog-
aranumi ,,Falstaff“ frá Hull,
sem landaði alls 2500 tonnum
á árinu 1959. Togarar frá Hull
liafa unnið bikarinn á hverju
ári síðan byrjað var að veita
hann árið 1954.
Þess skal getið, að sam-
kvæmt upplýsingum landhelg
isgæzlunnar hefur ,,Falstaff“
verið skrifaður upp innan 12
mílna markanna, s.vo að Long-
thorpe virðist hafa stolið ein-
hverju af rrretafla sínum í ís-
lenzkri landhelgi. Hins bei
einnig að geta, að sá togari,
sem næstur varð Falstaff, er
„Arctic Ranger“, skipstjóri
Richard Sackville-Bryant, og
sá mun ekki liafa rofið land-
helgina.
„Falstaff“ er einn nýjasti
togari Breta, 823 tonn að
stærð með dísilvél. Hann fór
á árinu einum túr minna en
hinir 242 togararnir í brezka
togaraflotanum, þar eð hann
varð ekki tilbúinn fyrr en um
miðjan janúar í fyrra. Úthald
ahns var á árinu 332 dagar og
var Longthorpe skipstjóri að-
eins í landi einn þriggja vikna
túr.
Þess skal að lokum getið,
að skipstjórinn þakkar afl.a-
magnið að nokkru leyti því.
að skip hans þolir verri veð-
ur en gömlu skipin.
TUTTUGU kílómetra fyrir
sunnan Plymouth rís Edding-
stoneskerið úr hafi. Á því er
frægasti viti veraldar, Edding
stone-vitinn. Ermasund er
skerjótt á þessu svæði og við-
sjálverðir straumar myndast
þar. í 262 ára hafa Edding-
stone-vitarnir. — þeir hafa
alls verig fjórir, — Ieiðbeint
sæfarendum meðfram hinni
hættulegu og þokusömu
strönd Devon. Því miður hafa
samt sem áður orðið þarna
rnörg sjóslys, og hafið ekki
aðeins hrifið sjómenn og skip
heldur einnig vitaveiðina og
vitasmiðina.
Sá, sem fyrst byggði vita á
Eddingstone var Englending-
urinn Winstaneley. Hann hóf
verkið 1698. , Vitinn var úr
tré og lýsti með tólgarljósum.
Winstanley var að sjálfsögðu
mjög hreykinn af afreki sínu
í sambandi við vitabygging-
una og hafði yndi af að dvelia
í vitanum á óveðursnóttum.
Aðfaranótt 26. nóvember
1703 var hann staddur í vit-
anum í ógurlegu óveðri en um
morgunin sást frá ströndinni,
að vitinn var horfinn og
Winstanley með honum.
Fimm árum síðar tók síld-
arkaupmaður í London, Rudy-
ard að nafni, að sér að byggja
nýjan vita á Eddingsjlone. —•
Var hann úr eik/ járni og
steini. Lovat nokkur, upgjafa-
skipstjóii tók vitann á ieigu
til 99 ára og fékk leyfi til þess
að taka eitt penny í skatt af
hverju skipi, sem fram hjá vit
anurn fór.
Þessi vitabygging brann
1756 en vitaverðirnir sluppu
lítt skaddaðir í land. Einn
þeii'ra, 94 ára öldungur, —•
brenndist þó af bráðnu blýi.
1756 ákvað vitamálastjórn
Englands, að láta byggja vita
á Eddingstone, sterkari og
Framha’d á 14. síðu.
EINN frægasti fiðlusnillir.g
ur allra tíma var Fritz Kreis-
ler, eða réttara sagt er, því að
hann lifir enn, þótt hann’sé
löngu bættur að spila. Hann
varð 85 ára fyrir skömmu og
hélt upp á afmælisdaginn í
New York þar sem hanr: nú
er búsettur. Kreisler heyrir Og
sér illa og hefur ekki' snert
fiðluna í 10 ár. Hann hefur
selt allar fiðlurnar sínar nema
■eina, Vuillaume, smíðaða
1860.
NAS3U, Bahamaeyjum.
„TRÓPOSFERÍSK dreifi-
sending'1 'er alnýjasta aðferð
in til að þeyta símtölum út
fyFr sjóndeildarhringinn til
þeirra, sem man langar til
að tala við. Hún hefur ný-
lega verið tekin í notkun
milli Bandaríkjanna og
Bahamaeyja til að anna auk-
inni símanotkun þar á milli.
I BAGDAD er nú verið að
mála stærsta málverk allra
tíma. Það er af Kasem forsæt-
isráðherra og frelsisstríði hans
og er málað af kennurum og
nemendum Listaskólans í Bag
4ad.
Þetta nýja kerfi getur sent
24 símasamtöl samtímis og
kostaði ,5 milljónir dollara
að setja upp.
Það virkar þannig:
Disklaga radíóloftnet
<; beina símtalinu út að sjón-
deildarhringnum í áttina til
hinnar fjarlægu móttöku-
stöðvar. Þessar últra-stutt-
bylgjur fara yfir sjóndeildar
hringinn og út í tróposfer-
una, lofthjúp, sem umlykur
jöiðina.
Við að rekast á tróposfer-
una dreifist nokkuð af kraft
inum nlður yfir móttöku-
svæðið. Krafturinn í últra-
stuttbylgjunum, sem þarna
falla niður, er nægur til þess
að gefa má áreiðanlega mót-
töku.
Símtalafjöldi milli Banda-
ríkjanna og Bahamaeyja hef
ur siöfaldazt á s. 1. 10 árum,
úr 12.000 árið 1949 í 80.000 á
s. 1. ári. Þetta stafar fyrst og
fremst af síauknum straumi
skemmtiferðamanna, sem
var 32.000 fyrir 10 árum, en
verður sennilega 250.000 á
þessu ári.
Stöðvarnar, sem þessi ný-
stárlegu símtöl eru send á
m lli, eru í Flordiaborg og
í Delaporte Point í New
Providence-eyju. Fjarlægðin
er um 275 km.