Tíminn - 16.06.1873, Qupperneq 6
62
nema eymdina tóma. Víkingsskapur allur virðist
nú genginn úr móð, enda mundi hann nú leiða
til þess, að annað tveggja fengju menn kúlu í
gegnum hausinn eða yrðu hengdir upp í reiða.
Rithöfundurinn segir, að hjer rnætti margt gjöra;
en pví er þá eptir 1000 ár allt þetta marga ógjört?
Hvar eru verksmiðjurnar? hvar eru vegirnir, járn-
brautirnar, kanalarnir, hafnirnar, vitarnir með ótal
öðru fleira, sem til framfara heyrir?— Eptir 1000
á'r eru mýrarnar á íslandi hið sama kviksyndi og
þær voru þá er landið byggðist, ef eigi langtum
verri. Loplslagið er og án efa engu betra, og
það er kunnugra, en frá þurfl að segja, hvernig
skógarnir eru farnir. Viðrjetting íslands heflr
hingað til eigi komizt nema á pappírinn, en Vest-
urheimsmenn hafa á 50 árum gjört þau stórmerki,
er undrum gegna og eigi finnast dæmi til í ver-
aldarsögunni. Það, að aptra mönnum með ósann-
indum frá, að komast í slíht. land, sem Ameríka
er, er illa gjört og lýsir engum mannkærleika.
x. + 10.
LANDIÐ FAGRA.
Til Brasilíu að bregða sjer
bezt er þegnum snjöllum
þar sælgætið eilíft er
í rúsínu fjölium.
Og við hunangselfurnar
allir gleði njóta,
á því svæði sælunnar
sem að aldrei þrjóta.
Margir sagna meistarar
meining slíka bera,
ódáins að akur þar,
inndæll muni vera.
Ef að reyndist þannig það,
þrautir mundu skerða,
íslendingar í þeim stað
ódauðlegir verða.
Það er engin eptirsjá
íslands niðjum fríðum,
kreika hjeðan köldum frá
krækiberjahlíðum.
Firða þjáir hregg og hríð
hjer um vetrardægur,
þar er sífeld sumartíð
og sólarhiti nægur.
Fölnar aldrei foldar þar
fagur aldin blómi,
grænar hlíðar glóbjartar
gyllir uppheims ljómi.
Slíka votta flrðar frægð
og frelsis löngum heita,
suður í þá sælu nægð,
sem að hjeðan leita.
Sæmdar auka sýnist mjer
sig úr ánauð losa,
og leggjast ekki lúinn hjer
lands- í kaldan -mosa.
Snúum vorri fóstru frá,
festum dúk við rengur,
búum ekki bræður á
brjóstum hennar lengur.
Gleymum landi, gleymum þjóð,
gleymum æsku sporum,
einnig því að íslands blóð
í æðum rennur vorum.
Ljettbært verður lífið þá,
lukku glansar hagur,
upp mun renna allt þar frá
enginn mæðudagur.
í*ar sem allskyns auðnu hnoss,
yndis þróar standið,
fögur gæfan flytji oss,
í fyrirheitna landið.
Óspakur á íslandi.