Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Side 3
s
henni fors afarhár, sem í vatnavöxtum er víst mikilfengur að
sjá.
Grímstaðir efri heitir kvos nokkur uppmeð Kiljansá skammt
fyrir ofan forsinn, sunnan megin árinnar. Þar má haía verið
talsvert undirlendi áður, sém hún hefir nú brotið i burtu, svo
mjög litið er eftir. Þar sjást þvi heldur engar likur til rústa,
nema ef geta skal lítillar byggingar syðst í kvosinni uppi við
melbrún. Þar hefir áður verið bakkaskarð sem nú er gróið, og virðist
áðurnefnd bygging hafa verið gjörð til þess að gjöra bakkaskarðið að
aðhaldi, til að ná kindum í. Er það liklega eftir íjallmenn, en stendur
naumast i neinu sambandi við bæinn, sem sagt er að hjer hafi verið.
Hjer skal um leið geta þess, að það er satt, sem jarðabók
A. M. segir, að hjá Hrunakrók sjeu girðingar miklar. Þar er
flatlend móafles fyrir vestan og framan túnið, nokkuð stór um
sig, og er henni allri skipt i ferhyrnda reiti með girðingum.
Sjer enn glöggt til þeirra, og sýnir það, að þar hefir verið rækt-
að land til forna. Hvort það hafa verið akrar eða engi skal jeg
láta ósagt. Þó þykja mjer reitirnir heldur stórir til þess, að
það hafi verið akrar. Þvi þar sem örnefni eru kennd við akra.
og fyrir þeim sjer, þá eru reitirnir fremur smáir — þar sem
jeg hefi sjeð — og auk þess ávallt í brekkum mót. suðri; en
þetta er á flatlendi, sem áður segir.
2. kafli. Rannsókn á Hrunamanna-afrjetti.
Langri bæjarleið fyrir innnan Hamarsholt sem lengi var lang-
innsti bærinn í Hrunamannahreppi, en er nú lagður í eyði fyrir
nokkrum árum, — rennur á sú, er Búðará heitir, austan og inn-
an af afrjettinum vestur í Hvitá. Við útfall hennar myndast mjó
tunga milli ánna. Þar var sinn bær hvorum megin árinnar.
Búðarárbdkhi var í krók þeim, er verður móts við tunguna
suðaustanmegin árinnar. Rústin sjest nokkurn veginn glöggt.
Bærinn hefir verið mjög lítill. Dyr eru mót suðri, og strax fyrir
innan þær sín tóft út úr þeim tii hvorrar handar, og fyrir inn-
an þessar enn aðrar, sín hvorum megin. Allar þessar 4 tóftir
eru nálægt jafnstórar: rúml. 2 faðmar á lengd (hver) og 1 ljt (eða
nær því) á breidd. Fyrir innan þessar 4 tóftir er hin fimmta
þversum, innst í bænum, og kemur gangurinn frá bæjardyrunum
inn í suðurhlið hennar nálægt miðju. Hún er nál. ð faðma löng
og l1 /s faðm. breið. Mun það hafa verið baðstofan, en hitt önn-
ur innanbæjarhús. Vestur af tóftunum gengur stór tóft eða lítil
girðing, er jeg ætla að verið hafi heygarður. Fjóstóft sjest þar