Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Page 14

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Page 14
Rannsókn nokkurra eyöibyggða í Mýrasýslu sumarið 1895 Eptir Brynjulf Jónsson. ——i#-~— I. Langavatnsdalur. Svo segir í Landnámu, II. 4: »Bersi goðlauss hét maðr son Bálka Blæingssonar ór Hrútufirði; hann nam Langavatnsdal all- an ok bjó þar á Torthvalastöðum . . . Bersi goðlauss fjekk Þórdísar, dóttur Þórhadds ór Hítárdal, ok tók með henni Hólms- lönd«. Svo er að sjá, sem Bersi hafi flutt úr dalnum. Þó er sagt að byggð hafi haldist þar fram i Svartadauða, en lagzt þá niður. Segja munnmæli, að þar hafi allt fólk dáið, nema ein kona, er Bjartey hjet. Þá er hún vissi að hún var ein orðin, fór hún burt austur yflr Moldskörð, það er á austurbrún dalsins Þaðan leit hún síðast yfir dalinn, og mælti um, að hann skyldi aldrei framar verða byggður að staðaldri. Hún fór svo suður sveit ir, og hitti fyrst lifandi fólk við Hvalfjörð. Það var karlmaður og kvennmaður. Þau tóku saman við hana og bjuggu á Bjart- eyjarsandi. I jarðabók Árna Magnússonar eru nefnd þrjú eyði- býli á Langavatnsdal, Borg, Vatnsendi og Hafurstaðir. Auk þess nefna munnmæli Hurðarbak, Torfastaði og Sópanda. Er sagt að Borg hafi verið kirkjustaður dalbúa, og hafi þar þjónað prestur frá Hítardal. Einn þeirra, er Guðmundur hjet, varð úti á Gvendarskarði, er hann fór heim frá messu á annan i jólum. Það skarð liggur milli Hafradals sem er afdalur norðvestur úr Langavatnsdal, og Þórarinsdals, sem gengur upp af Hitar- dal.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.