Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Side 15

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Side 15
15 Um eða eftir aldamótin 1800 var bærinn Borg á Langavatns- dal byggður upp. Það gerði karl einn er Sæmundur hjet og bjó þar fáein ár með konu sinni og einni dóttur; hjct hvortveggja Guðrún. Þau voru fátæk. Eldur dó hjá þeim um vetur; ætlaði karl að sækja eid að Grísartungu — sem er næsti bær og og þó langt frá — en villtist fram á Staðartungur og varð þar úti. Þær mæðgur urðu bjargarlausar um vorið; stálu þær þá hesti frá Tungu í Hörðudal og átu. Það kornst upp; voru þær þá færðar sýslumanni en kotið lagt í eyði. Sýslumaður var Pjotur Ottesen; hann bjó þá í Síðumúla. Daníel sál. Jónsson á Fióðastöðum (fæddur 1802) var þar staddur, er komið var þangað með þær mæðgur. Haun var þá 12 ára eða 13; sagði hann sjer mínnis- stætt, bæði hve þær mæðgur voru eymdarlegar og hve litil vægð þeim var sýnd af þeim er flutti. — Mjer þótti rjettara að geta þessara sagna. Þann 21. júlí 1895 fór jeg að skoða Langavatnsdal Til fylgdar hafði sjera Jóhann í Stafholti útvegað mjer Jón bónda Guðmundsson á Valbjarnarvöllum, er hann vissi kunnugastan, fróðastan og mest hneigðan fyrir að athuga fornleifar, af þeim mönnum er þar var kostur á. En hjer var, því miður, lítið að sjá. Við skoðuðum alla þá staði, sem munnmæli benda á, að bæir hafl verið, og aðra þá staði, sem okkur þóttu llklegir til þess eftir landslagi. En hvergi var að sjá neinar leifar fornra bæja. Tóftin eftir koíið var hið eina, sem sýndi, að þar hefði menn búið nokkurn tima. Rústir hinna fornu bæja, allra nema Borgar, eiu án efa horfnar í skríður, sem þar eru víða. Á Borg hefir kotið eyðilagt rústina. Mjer þykir samt eiga betur við að tala nokkuð um hvert bæjar- natnið fyrir sig; og verður þá fyrst að geta þess, að Langavatn tekur yfir allt undirlendi í suðurhelmingi dalsins, svo þar hafa aldrei bæir getað verið, nema ef til vill á Baulárvöllum, sem liggja í litlum afdal, austur frá suðuihorni vatnsins. Þar heflr verið fagurt og byggilegt, en engin sjást þess morki og engin munnmæli geta þess, að þar hafi bær verið. Vatmendi á að hafa staðið undir vesturhlíð dalsins fyrir inn- an vatnsendann. Þar eru miklar skriðu breiður. Hafurstadir eiga að hafa staðið við minnið á Hafradal. Sjálf- ur er dalurinn þröngur og undiilendislaus. Á renuur fram úr honum, og hefir hún brotið burtu sljetta velli, sem verið liafa við dalsmynnið, svo nú er að eins lítið eftir að þeim. Borg á að bafa staðið á sjerstökum hól austan megin i daln-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.