Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Qupperneq 17

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Qupperneq 17
17 Hallfreðar vandræðaskálds, eftir að hann var gjör úr Vatnsdal. En þó svo kunni að hafa verið, er bæjarnafnið nú týnt sem ör- nefni. Og það er varla nema um einn stað að ræða, þar sem bærinn hefði getað verið. Það er innst í botni dalsÍDs. Þar er undirlendi hvað mest, og þar eru miklar þúfna-upphækkanir á einum stað, svipaðar þeim er nýlega voru nefndar. Þar hefir án efa byggð verið. Þaðan í suður heitir og »Hádegisfell«. Raun- ar gæti það nú verið miðað við sel frá Sauðafelli, sem þar hefír verið skammt frá, og sjást tóftir þess gjörla; en Sanddalur er eign Sauðafellskirkju. Arnarbœli heitir klettastalli á rana þeim, er verður milli Hreimstaða og Kleppstýju í Norðurárdal. Má vera að það hafi nafn sitt af Erni landnámsmanni. III. Melkorkustaðir. Dýrastaðir heitir næsti bær fyrir utan Hvamm í Norðurár- dal. Rjett við landamerkin þar á milli er í Dýrastaðalandi eyði- bær, sem heitir Melkorkustaðir. Þar segja munnmæli að búið hafi heiðin kona; hún hafi ekki viljað láta búsmala sinn ganga inn í hvamminn, þótti mjólkin þá bragðverri; spáði hún, að þar mundi síðar verða tíðkaður annar siður. I Melkorkustöðum eru allglöggar rústir mjög fornlegar. Þar er skálatóft (a) nálægt 9 faðma löng, frá austri til vesturs, og nálægt 4 fðm. breið; dyr eru á miðjum suður hliðvegg. Svo er að sjá sem vesturhluti hennar hafl verið grafinn út eigi alls fyrir löngu. Til allrar lukku hefir veggjunum þó ekki verið spillt. Sín tóft er við hvorn enda skálans; en ekki virðist hafa verið innangengt í þær. Þær eru mjög óglöggar, einkum hin eystri. Hún er hjer um bil 4x/2 faðmur á lengd en hin um 4 fðm. út fyrir veggi, breiddin við- líka og breidd skálans; dyr sjást ógjörla. Nokkrum föðmum suður frá vestur endanum er önnur tóft (b), 8 faðma löng og 41/* fðm. breið; dyr á miðjum suðurhliðvegg. Fyrir innan dyrnar austanmegin er miðgafl yfir þvert með dyrum á. Hygg jeg þetta vera hoftóft. Viðlíka löngum spöl, eða því nær frá austur enda skálans, er óglögg tóft (c), sem að stærðinni til gæti verið af fjósi og hlöðu. Verið getur að það væri ómaksins vert, að grafa þessar tóftir rækilega út. Jeg átti ekki kost á mannafla til þess. 3

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.