Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 22
22
orðið eftir af þeim annað en þúfna rimar; en aftur eru sumar
yngri, þvi hjer heflr á seinni tímum verið sel frá Staðarfelli og
er seltóftin ofaná bæjartóftinni, en kvijatóftir til og frá. Á einum
stað sjer fyrir hálfhringtnyndaðri girðingu, sem hverfur i þúfna-
rima. Má vera að það hafl verið kirkjugarður og sje önnur hlið
hans og kirkjutóftin orðin að þúfum. En alsagt er, að Staðar-
bakki hafl verið kirkjustaður dalbúa. Ofan hjá bænum rennur
gil, er Færigil heitir, það færir sig til að neðanverðu, og heflr
brotið af túninu og tóftunum, svo eigi er hægt að segja hve mik-
ið vantar. Það hefir og borið skriðu yfir brunn, er gamlir menn
muna eftir að þar var, hafði hann verið mjög vel hlaðinn innan
og gott vatn í honum.
Hólkot var litlu utar með hlíðinni sama megin og hafðiver-
ið hjáleiga frá Staðarbakka. Þar býr nú húsmaður og er þar
hýsing nokkur, svo eigi er um rústir að ræða.
Hríshlíð er nokkuð löngu innar í dalnum einnig að norðan
verðu. Er þar há hlfð, sem enn heitir Hrishlið og er það ör-
nefni takmarkað af tveimur gljúfragiljum, heitir hið ytra Álfagil,
en hið innra Jötnagil; eru þau bæði ákaflega hrikaleg, einkum
þó Álfagil, sem er eitthvert svipmesta hamragil sem jeg hefi
sjeð. í því er fors, hár og fagur, Sagt er, að i Hríshlíð hafi
verið tveir bæir. Rústir sjást ekki; en einkennileg þúfnabörð eru
þar á tveim stöðum og lækjasitrur nærri. Má vera að það sjeu
eftirleifar rústanna.
Dyngja er sýnd á svo nefndum Hólmi. Það er undirlendi
sunnanmegin árinnar. Þar sjest gjörla upphækkuð rúst; en að
stærðinni til vantar mikið á að það geti verið heil bæjarrúst.
Þar er lika orsök til: áin hefir fyrir nokkru runnið þar fast að
brotið bakkann og tekið burt meira eða minna af rústinni. Svo
hefir hún lagst frá aftur, og er þar nú mýrardrag sem farvegur
hennar hefur verið. Það stykkið sem seinast heflr brotnað af
rústinni, liggur niðursokkið til hálfs i mýrardraginu, en stendur
til hálfs upp úr þvi, eins og aflöng þúfa. — Dyngja er litlu utar
en á móts við Staðarbakka, og hefir þar verið skammt í milli. —
Á Hólminum, og þaðan úteftir dalnum, hafa verið engjargóðará
undirlendinu. Góðir hagar eru í hlfðunum.
Túngarðshólar kváðu hafa verið hjáleiga frá Túngarði, sem
enn er byggður bær og stendur við dalsmynnið að sunnanverðu.
Rústir hjáleigunnar sjást ekki. En á þeim stað, sem líkast mætti
þykja að hún hefði staðið er nú stekkur trá Túngarði. Það er og
því til stuðnings, að stekkurinn er nokkuð langt frá bænum iqní