Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Síða 26

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Síða 26
26 á lengd og 23 fet á breidd, og er norðurendinn hringmyndaður. Tóptinni er skipt í tvennt með þvervegg og hafa engar dyr ver- ið á honum. Aíhús þetta er nyrzta húsið í tóptinni og er írá þverveggnum á ytri brún á hinutn hringmyndaða norðurgafii 39 fet á lengd. Dyr eru á austurhliðinni með þverveggnum, en inni i húsinu eru þúfur sem liggja þannig að ein hryngmynduð er inni i sveignum, en 3 aflangar sín með hverjum vegg. Hinn hlutinn eða aðaltóptin er 57 f'et á lengd á ytri brún á báðum göflum og skiptist í tvennt með þvervegg og eru dyr á honum miðjum. Skiptir hann tóptinni þannig, að fremsta húsið er þrem fetum lengra en hið innra. Aðaldyrnar eru á austurhliðinni með syðra gafli. Þar sem undirstöðusteinarnir sjást greinilegast mátti nákvæmlega mæla innanmál tóptarinnar og mældist hún 15 fet á breidd. Hjer um bil 20 faðma frá suðurhorni tóptar þessarar liggja tóptir minni og veggja þynnri, en þó fullglöggvar flestar (sjá VI. og VIII,—XI. mynd). Fyrst eru 4 tóptir samfastar og er stærð þeirra þessi að utaumáli: 1. lengd 30 fet, breidd 20 fet 2. — 20 — — 20 — 3. _ 30 _ _ 18 4. _ 30 — — 18 — Á 1 og 2 og 3 eru dyr á austurhlið og á veggnum milli 2 og 3 virðist votta fyrir dyrum. Á 4 eru dyr á norðurhlið. Þá koma tvær tóptir hver fram af annari þannig: 5. lengd 18 fet, breidd 18 fet 6. _ 20 — — 20 — Þá kemur stór rúst er virðist hafa verið skipt í tvennt og jeg þvi tel 7. og 8. en má vel vera að hafi verið skipt i þrennt eða jafnvel fernt. Mál á rústinni virðist vera: lengd 48 fet, breidd 36 fet. 9. er brot við suðurenda rústar þessarar c. 18 fet á breidd. Allar þessar tóptir liggja í sömu stefnu út og fram eftir hjeraðinu. 10. og 11. eru ógreinileg tóptabrot svo stærð þeirra verður ekki mæld. Þau eru samföst og liggja frá suðri til norðurs. Allar þessar 11 tóptir liggja lægra og ber því minna á þeim, svo jafnvel nákunnugir menn vissu ekkert um þær. llverskyns tóptir þetta sjeu finnst mjer liggja í augum uppi. Hvað þeim 11 eða máske 13 smærri tóptum. viðvíkur þá er það auðsætt af stærð þeirra, lögun og legu að það eru fornar þingbúðatóptir, þó þess sje mjer vitanlega hvergi getið að hjer hafi verið þing. Að stóra tóptin sje hoftópt gæti ef til vill verið meira vafamál,

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.