Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Page 29

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Page 29
Um nokkur vafasöm atriði í Islendinga- sögum. Það er kunnugt, að »kritik« vorra tíma hefir meðal annars ráðist á ýms atriði í sögum vorum, og gjört þau að meira eða minna leyti vafasöm. Sumstaðar gengur hún svo langt, að hún dæmir þetta eða hitt söguatriðið tóman tilbúning, ef ekki alla söguna, sem um er að ræða. Þetta er leiðinlegt. En bót erþað í. máli, að »kritikin« er ekki óskeikul; það má opt finna misfellur á dómum og ályktunum hennar. Oneitanlega hefir hún ástæður að byggja á; en af sömu ástæðum má opt draga allt aðrar á- lyktanir með engu minni rjetti. Þetta vil jeg leitast við að sýna með því, að benda á nokkur dæmi. Astæðunum, sem »kritikin« byggir á, mun mega skifta í 5 flokka: 1. að söguatriðið líkist einhverju öðru, 2. að það segir frá ólíklegum atburðum, 3. að Það rekur sig á í staðlegu tilliti, 4. að því ber ekki saman við tímatal, 5. að því ber ekki saman við aðrar sögur. Fyrsti flolcJcurinn er fáskipaður. Það mun ekki vera nema eitt dæmi til þess, að íslenzkt söguatriði líkist útlendu ævintýri. Það er frásögn Víga-Glúmssögu um víg Kálfs frá Stokkahlöðum. En engum kunnugum manni mun blandast hugur um, að þaðsje hrein og bein tilviljun, að þetta atriði líkist dálítið útlendu ævin- týri. Og hví skyldi slíkt eigi geta viljað til? Það er næsta hæpið, að draga ályktun af slíku gegn sögu, sem að öðru leyti

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.