Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Page 31
31
skríftum. Ilinar síðari eru þar á mót prentaðar eptir hinum.
Þeir, sem bjuggu þær undir prentun. hafa álitið þau handritin
bezt, — og án efa byggt það á »kritik«, sem sizt skal neita um
sitt gildi. En þrátt fyrir það er jeg sannfærður um, að í þessu
hefðu þeir ekki fylgt þeim, ef þeir hefði verið kunnugir þar, sem
liin umræddu söguatriði gerðust.
Þó bæði þessi örnefni, Holtavað og Holtsvað, sjeu týud, mun
mega finna þau bæði eptir bendingum sögunnar og öðrum líkum.
Holtavað mun hafa verið á Þjórsá fyrir austan Arnesið, með-
an áin rann þar öll. Þar er farvegur hennar mjög breiður og
grunnur og báðurn megin liggur þar að forn vegur. Þanu veg
hafa þingmenn farið, er þeir fóru um Laxárbakka, það lá beint
við. Þar hefir verið vel fallinn áfangastaður austan árinnar: hag-
lendi gott, bæði mýri og valllendi. Þar hefir verið þingstaður
til forna: heitir þar Þingholt, og sjást búðatóftir og dómhringur,
sem Sigurður Vigfússon hefir lýst (Árb. fornl.fjel. 1888—92 bls.
60)1. Nafn sitt hefir vaðið haft af því, aðþað iá svo nærri Þiórs-
árholtum (nú Holtasveit) og Flagveltuholti (»Flagbjarnarholti«),
auk þess sem Þingholt og fleiri smáholt eru rjett hjá því. Það
er varla vafamál, að á þessum stað, á þingstaðnum, hefir það
verið sem Flosi dvaldi, er hann »beið Sigfússona og annara sinna
manna«. Þar á inót er það öldungis óhugsandi, að menn hafi á
þessum stað mælt sjer mót, til að skiftast í leitir eptir brennu-
mönnum. Það er sú fjarstæða sem engu tali tekur, að ætla, að
Kári hafi beðið Mörð að safna liði um Rangárvöllu til leitanna,
en fara þó fyrst með það vestur að Þjórsá! Og þó um Nauta-
vað væri að ræða, þá er það öldungis sama fjarstæðan. því
Nautavað er á Þjórsá eins og Holtavað hefir verið, að eins spöl-
korni ofar, sem í þvi tilliti gerir ekkert til. Það er óhugsandi að
Holtsvað hafi verið á Þjórsá. Ekki mun Holtavað heldur hafa ver-
ið sama sem Nautavað: Það liggur eigi eins beint við þingmönn-
um og hið forna (þó þetta út af fyrir sig gjöri lítið til). Þar er
harðlent og snögglent við vaðið og því óhagkvæmur áfangastað-
ur langferðahestum; mun Flosi eigi hafa beðið þar. Og eigi er
hægt að sjá við hvaða »holt« það hefði átt að vera kennt: Bæði
»Þjórsárholts-holt« og Flagveltuholt eru ofiangt frá því til þess:
önnur örnefni eru í milli. Er og sennilegast, að það vað hafi
heitið Nautavað síðan það fannst. Á það benda og munnmælin:
1) ÁSur hafði jeg, í grein minni »um þriðjungamót«, bent á þingstað-
inn og vaðið. Olafur sál. Gíslason í Flagveltu hafði vakið eptirtekt mína á
því.