Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Qupperneq 32
32
að það hafi fundist þá, er naut Páls biskups hafi strokið frá
Skálholti að Skarði, og farið þar yfir.
Holtsvað mun hafa verið á Fiská í dalnum milli Þríhyrnings
og Vatnsfells (sem nú heitir Vatndalsfjall), og mun það hafa ver-
ið kennt við bæinn Holt, þar sem Hróðný bjó. Mun sábærhafa
staðið suðvestan undir Reynifellsöldu; þar sjer til rústa1 ef vel er
að gáð. En þó Holt stæði fyrir norðan ána, mun það hafa átt
land fyrir sunnan hana, bæði dalinn og Vatnsfell, en fjenaður
þaðan gengið suður um Sljettafell eða lengra. Því var eðlilegt
að smalamaður frá Holti finndi lík Höskuldar Njálssonar í Hösk-
uldarlág. (Hún er milli Sljettafells og Sámsstaða). Þá mun dal-
urinn hafa heitið Vaðsdalur og verið kenndur við vaðið (Holts-
vað). Mun það vera upprunamynd bæjarnafnsins: »Vatnsdalur».
Sá bær hefir að öllum likindum eigi verið byggður fyr en Holt
var komið í eyði. Er eigi hægt að sjá, hvar fyrir hann geti
heitið »Vatnsdalur«. Vatnið á fjallinu er of langt frá honum til
þess og sjest eigi einu sinni að heiman. Enda lá nær, ef kenna
skyldi bæiun við vatnið, að nefna hann Vatnsfell, eftir fjallinu.
Aftur liggur hitt beint við, að bærinn fengi sama nafn, sem dal-
uriun hatði áður, nfi. Vaðsdalur; hefir svo orðið úr því »Vatns-
dalur« af óglöggum framburði. Sumir teija raunar ólíklegt, að
vað hafi verið kallað á jafn lítilli á og Fiská er; en víða veit
jeg kallað vað á minni sprænu. En frœgt örnefni hefði Holtsvað
samt ekki orðið, ef menn hefðu ekki komið þar saman 1 þeim
sögulegu erindum, að skifta sjer i leitir að elta brennumenn. Til
þess var enginn staður hentugri, hvort sem fara skyldi nyrðri eða
syðri Fjallabaksveg, austur á Goðaland eða austur fyrir Selja-
landsmúla. Hjer var næstum eins og miðpunktur fyrir þá
vegi.
En hafi nú Holtsvað verið hjer, — sem varla er vafamál,—
þá er ástæða til að spyrja: Var það ekki þar, sem Flosi beið
Sigfússona og annara sinna manna? En sagan sýnir, að svo
hefir ekki verið. Þaðan er örskammt að Keldum og leiðin ligg-
ur þar um, svo Flosi hefði fundið Ingjald heima, og eigiþurft að
senda honum orð, ef hann hefði farið þessa leið. En hann hefir
1) Rústum þessum veitti jeg eftirtekt (ef til vill fyrstur manna nú á
tímum) er jeg var þar á ferð 1878. Datt mjer strax Holt í hug, því þaS
getur komiS vel heim, bæði við Njálu og landslag, að þaS hafi þar veriS.
A þetta henti jeg Magnúsi hreppstjóra Arnasyni í Vatnsdal og sjera Skúla
Gíslasyni á BreiSabólsstað. Fjellust þeir háðir á ætlun mína, og einnig
Sigurður Vigfússon, er hann skoðaSi, rúst þessa, að tilvísun þeirra sr. Skúla
og Magnúsar, 1883 (sbr. Árbók fornl.fjel 1888—92 bls. 47).