Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 33

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 33
33 farið þjóðleið, um Hvolhrepp, og því þurft að «senda orð In- gjaldi« að koma í veg fyrir sig til viðtals. Ingjaldur hefir eigi náð honum fyr en út við Holtavað; og með því hann hefir eigi búið sig til þingfarar áður en hann fór, varð hann að ríða »heim fyrst, og þaðan til þings«. Það er svo langt, að þess var get- andi í sögunni. Þannig virðist mjer, að allar líkur sjeu með því, en engar móti því, að Holtavað og Holtsvað sje sitt á hvorum stað. Og það gefur jafnframt þá bendingu, að varúðarvert muni að álykta svo, að tvennt likt, sem fyrir kemur í sögum, hljóti að vera eitt og hið sama. Undir annan flokkinn heyra bæði sagnir um viðureign manna og huldra vætta og sagnir um ótrúleg þrekvirki. Um hvort- tveggja lætur «krítíkin« sjer nægja að segja, að þjóðtrúin hafi smeygt slíku inn í sögurnar, meðan þær gengu í munnmælum, en eignar það ekki vísvítandi tilbúningi, sem líka væri mesta fjarstæða. Hjer má því samsinna henni, þó með því að benda um leið á það, að óþarfi er að taka mjög mikið af um hið ótrú- lega: mun ekki mega neita því, að sumt er enn ekki unnt að skýra, sem þó hefir átt sjer stað. Og hvað þrekvirkin sjer í lagi snertir, þá er bágt að segja, hve langt menn geta komizt með æfingu. Grettir mun t. a. m. liafa æft sig á steintökum; — en úti það skal samt ekki fara. Það er ekki meira að höggva mann sundur i miðju, sem sagt er t. d. um Kára, heldur en að höggva höfuð af 5 mönnum i einu, sem Pjetur mikli og Menzikof fursti ljeku við Strelitza-fangana. Og óþarfi er að rengja það, að Þjóst- ólfur hafi farið einn á skipi útí Bjarneyjar: gamlir menn áFells- strönd muna eftir manni, sem ljek sama dirfskubragðið, og þó sá munurinn, að Þjóstólfur var í vigahug, en hinn ekki. Getgát- unnar, aö Bjameyjar sje = Latnbey, þarf því ekki við; enda telja kunmigir liana fjarri líkingum, eftir því sem á stóð um ferð Þorvalds. Mun það v(ða nokkur vandi, að ákveða með vissu, hverju þjóðtrúin hefir smeygt inn í sögurnar. En þó þær beri merki hennar, sannar það ekki annað en að söguritararnir rit- uðu eins og þeim var sagt frá. Þriðji flokkurinn, þar sem sögur reka sig á í staðlegu tilliti, sýnir ekki annað en það, að sá, er söguna ritaði, hafði sjálfur eigi komið á þá staði, sem um er að ræða, en farið eftir annara lýsingum og þeirri staðlegu hugmynd, sem hann fjekk af þeim. En alkunnugt er, að ómögulegt er að fá alveg rjetta hugmynd um stað eða svæði af eintómri lýsingu annara. Vanalega hugs- ar maður sjer þá svæðið mildu minna og staði og afstöðu öðru- 5

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.