Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Side 36
36
»tilbúning«, heldur ura missögn eða ónákværani, og rná oftast
finna, hvar í það liggur. Það getur jafnvel viljað til, að »krítik
in« sjálf geri sjer erviðara fyrir með því, að rengja sannan
sögustað. Þegar er t. a. m. rengt, að Rútur hafi verið áttræður,
er hann drap Eldgrim, sem Laxdæla segir, þá verður óhægra að
koma aldri hans og móður hans saman við tímatalíð. Sje orðum
sögunnar fylgt, leggur allt sig sjálft. Rútur gat verið vel ern
þó hann væri áttræður. Hann gat komið sjer við Gunnhildi þó
hann væri hátt á sextugsaldri. En Unnur hefir þá verið síðasta
kona hans; má og eigi neita, að frásögnin bendir til þess, að svo
hafi verið. — ÞórðarsögU hreðu hefir »krítikin« dæmt svo að
segja til dauða, af því að drápi Sigurðar slefu ber ekki heim
við aldur Miðfjarðarskeggja. Nærri liggur þó að ætla, að þar
sje blandað málum1; að Þórður hafi t. a. m. ekki verið bróðir
Klypps hersis, er drap Sigurð slefu, og ekki verið að þvi vígi, en
verið, ef til vill, bróðir annars eldra Klypps í sömu ættinni og
verið með honum að vigi annars höfðinga og því orðið að fara
til íslands. Fáum söguatriðum mun óhægra að koma saman við
tímatal, en vígi Helga Harðbeinssonar. Flestum og þar á með-
al söguritaranum, hefir þótt óhugsandi, að Bolii Bollason hafi far-
ið til föðurhefndanna yngri en 12 ára. En þvi verður tæplega
komið heim við tímatal; enda er ólíklegt, að hefndin hafi dreg-
ist svo lengi. Er iíklegra, að hún hafi farið fram mjög skömmu
eftir víg Bolla; það íellur og betur saman við timatalið. En þá
þykir óhugsandi, að Bolli hinn yngri hafi verið i förinni. En
hafi hann ekki hefnt föður sins, — að riafninu í hið minnsta, —
þá þykir spá Helga, urn höfuðbana sinn, hvergi eiga við. Þyk-
ir þá helzt lita út fyrir, að allt sje tómur tilbúningur, bæði spá
Helga og föðurhefnd Bolla hins yngra. Það er ekki láandi, þó
þeir, sem komizt hafa að þessari niðurstöðu, vantreysti trúverð-
ugleik Laxdælu yfir höfuð. En jeg get ekki sjeð, að þessi niður-
staða sje óhjákvæmileg, enda þó fylgt sje óþvinguðu tímatali.
Spádómsorð Helga þurfa ekki að vera, — og munu ekki vera,
— tilbúningur að heldur, þó Bolli hafi engan þátt tekið í vígi
Helga; þau geta verið misskilin og þar af leiðandi dálítið aflög-
uð: Helgi hefir, ef til vill, sagt á þá leið, að undan þessu
blæjuhorni (o: undan rifjum Guðrúnar = úr huga hennar) mundi
sjer banaráð koma. Þetta gat átt við, hvort sem Guðrún gekk
þá með Bolla eða ekki. En það lá svo nærri að heimfæra þessi
1) Sbr. Árbók fornl.fjel. 1895 bls. 11—12.