Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Side 42
42
Okið, það fjall skilur Hafradal frá megindalnum. Þetta barð eða
rúst var upp undir Okinu, mjög óglöggt og umkringt skriðum.
Gat hann til að þar hefði Brennunes verið. Það hafði Halldóra
enn fremur sagt, að í ungdæmi sínu hefði almennt verið talið
víst, að Borg væri sami bær sem Torfhvalastaðir, er Landnáma
nefnir. Sá bær hefði verið mestur í dalnum, en þar næst
Hafurstaðir. Einnig hafði hún heyrt, að tveir bæir mundu hafa
verið á Baulárvöllum.
Þetta sagði Halldór mjer sjálfur, er jeg sótti hann heim
sumarið 1896.
Þá sagði hann mjer líka, að i mæli væri, að í Laugadal,
sem gengur inn af Hörðudal, hefði bær verið, er hjet að Laug-
um, og verið kirkjustaður. Hann hefði lagzt af og kirkjan þá
verið flutt að Hrafnabjörgum, en siðar að Snóksdal. Hefði ver-
ið til fram á sina daga Rrafnahjarga máldagi, og fylgt eign þeirr-
ar jarðar, sagðist hafa sjeð hann, og væri hann frá síðari hluta
14. aldar (hann mundi ekki ártalið). Þar hefði verið talinn með-
al annara eigna Hrafnabjargakirkju nautaupprekstur á Langa-
vatnsdal. Af því er að ráða, að dalurinn hafi verið eyddur fyrir
Svartadauða. Það væri ekki ómerkilegt, ef þessi máldagi kynni.
enn að vera til, og væri vert að spyrjast fyrir um það.
Br. J.