Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Síða 43
Um
myndir af gripum í forngripa-
safninu.
Eptir Pálma Pálsson.
Legsteinn frá Hofi í Vopnafiröi.
Legsteinn þessi, sem er nr. 3915 í safninn, er úr mórauð-
um steini (sandsteini), mjúkum, 2 m. að lengd og 0,58 ra. að
breidd, en 0,17 m. að þykt. Umhverfis allan steininn er af-
markaður með skorum 9—12 sm. breiður bekkur og þar á stend-
ur með upphleyptu gotnesku letri:
2ítio 1569 lcttgQr .
bagiti . 3 . buita . suntiu. rnifu . Fallaöe . gut> . tit. fítt. 3 . fitt. 2!ife.
þei&atrltga . Fuinu .
...i&e. tþorsteinf. öottur. &rotten.guö . fie. þenar . fat. tla&igur . amefn].
Síðasti stafurinn í síðasta orðinu hefir aldrei verið settur vegna
rúmleysis. Efst á steininum innan við þetta letur er afmarkað-
ur aflangur ferhyrningur og þar í öðru rnegin mynduð hauskúpa
af manni og lærleggur undir (o: dauðinn) og hinu megin stunda-
glas (o: lífið), en þar i milli stendur á dálitlum fleti eða skildi
með upphleyptu latínuletri:
HODIE MICHI CRAS TIBI;
þar undir er í öðrum ferhyrningi myndað engilhöfuð með
vængjum. Þá kemur þar fyrir neðan einskonar veggskot með
hvelfing yfir og þar i er mynduð kona, nær 1 m. að hæð, nokk-
uð há lágmynd; hún liggur, hefir svæfil undir höfði og heldur
höndum saman yfir um brjóstið; hún er í öllum fötum, en ber-
höfðuð, treyjan er nokkuð aðskorin og er lítill pípukragi um
hálsinn, pilsið vítt og skósítt og liggur í fellingum; um háls kon-
6*