Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1986, Page 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1986, Page 1
LILJA ÁRNADÓTTIR KÚABÓT í ÁLFTAVERI Inngangur Hér á eftir fcr skýrsla um fornleifauppgröft í Álftaveri sem fram fór á árunum 1972—1976. Rannsókn þessi var í höndum Gísla Gestssonar, fyrsta safnvarðar í Þjóðminjasafni íslands. Gísli lést haustið 1984 áður en hann hafði að fullu lokið rannsókn á því sem þarna fannst. Hann hafði um skeið unnið að undirbúningi efnisins fyrir birtingu en nokkuð vantaði á að fullbúið væri. Það varð að ráði ritstjóra Árbókar Fornleifafélagsins og ættingja Gísla, að ráðist skyldi í að birta allar tiltækar staðreyndir um uppgröft- inn í Kúabót, en svo hefur rústin verið ncfnd í seinni tíð. Var ákveðið að ég tæki að mér að búa það af efninu til prentunar, sem ekki var þegar tilbúið af hendi höfundar. Gísli hafði lokið við að lýsa stofu (A), skála (B) og baðstofu (F).1 Hann hafði einnig samið drög að fundaskrá, en undirrituð skráði munina undir handleiðslu hans. Einnig var teikni- og ljósmyndavinnu að mestu lokið. Hcfur það verið lagt til grundvallar í skýrslum þeim sem hér fara á eftir, auk greinagóðra dagbóka Gísla frá rannsóknunum. Ennfremur var leitað til fólks sem vann á staðnum í lengri eða skemmri tíma um mörg vafaatriði, sem upp hafa komið. Ekki verður hér farið út í frckari úrvinnslu á efninu eins og höfundur hugsaði sér að gcra, heldur cr því hér með komið fyrir almennings- sjónir svo það megi nýtast öllum þeim cr áhuga kunna að hafa. í upphafi verður gerð örlítil grein fyrir landslagi og staðháttum nálægt rústinni, sem eins og áður sagði hefur verið nefnd manna á milli Kúabót, en natn þetta kemur ckki fyrir í eldri heimildum um Álftaver.2 Staðhœttir Svæðið milli Múlakvíslar og Kúðalljóts annars vegar, og ofan frá Mýrdalsjökli, Leirá og Hólmsá til sjávar hins vegar er Mýrdalssandur 1. Grcinargerð um baðstofuna birtist í Minjar og menntir, afmælisriti helguðu Kristjáni Eldjárn, Rvk 1976, bls. 194-197. 2. Einar Ólafur Sveinsson: Byggð á Mýrdalssandi, Skírnir 1947, bls. 185-210.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.