Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1996, Page 13
NOKKRAR KYNSLOÐIR KIRKNA
17
og 1/2 kvartel, í átta stafgólfum, að lengd 22 álnir 3 og 1/2 kvartel,
með 9 stöplum á hveija hlið, 9 bitum, 9 sperrum og 8 höggsperrum
með tvennum syllum og einum áfellum í hverju stafgólfi og aurstokk-
um að neðanverðu undir sérhvörjum stöpli. Utbrot kirkjunnar eru að
hæð 2 álnir 3 og 1/2 kvartel með 9 stöfum hver um sig undir syllunr
og eins mörgum bitum og hálfsperrum, 11 af þeim eru við kirkjunnar
stöpla járnbundnir. Oll kirkjan með útbrotum er umhverfis alþiljuð.39
Þarna mun vera um Hamborgaralin (0,57 m) að ræða40 og ef mál þessi
eru umreiknuð yfir í metrakerfi verður kirkjan tæpir 13 m að lengd, um
6,5 m að breidd og 5,4 m á hæð í miðskipi en tæpir 1,6 m í útbrotum.
Ekki ber á neinum stúkum en dyr eru á syðra kórútbroti. Aðaldyr kirkj-
unnar eru glæsilegar, hurðin á fernum járnum með miklu skrautverki,
einnig úr járni og svo koparhring í haldi úr sama efni. Tveir 16 rúðu
gluggar eru á austurgafli kirkjunnar og sex 8 rúðu gluggar eru til viðbót-
ar á kirkjunni, þrír í kór og þrír í framkirkju. I framkirkjunni eru 2 sunn-
anmegin en 1 norðanmegin en ekki segir um tilliögun glugganna í
kórnum. Reisifjalaþak liggur á þremur langböndum í miðskipi en á einu
langbandi í útbrotum. Kirkjan er alþiljuð að innan en vandræði voru
með súð hennar bæði 1718 og 1721. Þá er hún með vindskeiðum fyrir
báðum göflum.
Innri gerð
Fram kemur að skipting kórs og kirkju er mjög skýr þótt undir sama
formi séu. Kórinn sem er 3 stafgólf er skilinn frá 5 stafgólfum framkirkju
með bjórþili og miklu píláraverki. Or kirkju í kór er gengið um kórdyr
sem ,,eru með tveimur dróttum, 2 sperrum og súðþaki, litlum vindskeið-
um og útskornu, máluðu bjórstykki“ eins og segir í úttektinni 1721.4l
Ottektin 1724 bætir nokkru við þessa lýsingu en þar segir að kórdyrnar
séu „með 4 stöfum, tveimur dróttum, súðþaki yfir á sperrum með einum
vindskeiðum og bjórstykki máluðu að innanverðu."42 Það er sem sé
gengið um nokkurs konar dyrahús með súð á úr kirkju í kór.Til þess að
skilja útlit kórdyranna til fullnustu verður að skyggnast betur um í kirkj-
unni allri og byrjum við á kórnuni.
I kórnum sjálfum er altarið með svipuðum búningi og í fýrri kirkju.
Alabastursbríkin er sem fýrr yfir altari en hvergi er minnst á krossinn sem
áður var þar yfir. Grind þeirri sem heldur uppi altaristjöldum, þ.e.
sparlökum, er nú nánar lýst en ekki verður hægt að segja til um hvort
allur sá umbúnaður er sá sami og var í fýrri kirkju en hann virðist hafa
sömu einingum á að skipa.Við altarið eru tveir stólpar og slár yfir á þijá