Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1996, Qupperneq 149
ÞÓRÐUR í SKÓGUM OG KIRKJAN HANS.
153
gluggana og sérkennilegt útsagað skraut, sem fellt hefur verið innan á
rúðurnar. Spjaldahurðin er úr íbúðarhúsinu í Hlíð í Skaftártungu, mynd-
arlegu tvílyftu húsi sem enn stendur, smíðað árið 1905 af Sveini Olafs-
syni. Skraut í og yfir kórdyraboga er úr Eyvindarhólakirkju, og kórgrind-
ur útsagaðar eftir leifum úr Kálfafellskirkju. Bekkir, stigi og þiljur eru úr
Kálfholtskirkju frá árinu 1879, - altarið úr gömlu Sigluvíkurkirkju, grátur
úr Dalskirkju og predikunarstóllinn úr gömlu Háfskirkju.
Klukkurnar eru að sönnu merkilegar. Önnur er frá Asum í Skaftár-
tungu með ártalinu 1742, góður gripur, og hin er úr kirkjunni á Höfða-
brekku. Þórður fullyrðir að það sé sú hin sama klukka ogjón Salómons-
son prestur bjargaði úr kirkjunni, þegar Kötlugos grandaði kirkju og bæ í
nóvember 1660.
Séra Jón Salómonsson hefur sjálfur lýst þessu Kötlugosi og hörmung-
um þess, en þar minnist hann ekki á hetjudáð sína. Það gerði hinsvegar
séra Jón Steingrímsson í viðbæti sínum við rit nafna síns Salómonssonar.
Allir aðrir gripir kirkjunnar glötuðust, og var bærinn og kirkjan eftir það
flutt upp á brekkuna. En þar var hún alltaf að fjúka eins og áður sagði.
Núna er þarna uppi kirkjugarður með fáeinum legsteinum, sem sumir
hverjir segja forvitnilega sögu, en það er önnur saga. Þessar klukkur verða
settar upp í klukknaport á vesturgafli nýju kirkjunnar.
Margir merkir kirkjugripir voru komnir í safnið í Skógum og hafa nú
aftur öðlast sitt upphaflega hlutverk í nýju kirkjunni. Þar má nefna tvo
forláta veggstjaka frá 17. öld, sem voru í kirkjunni í Holti, og ljósahjálma
tvo, annan úr gömlu kirkjunni í Skógum, og hinn úr gömlu Steinakirkju.
Sá úr Steinakirkju er sérkennilegur franskur messinghjálmur með mynd-
um af rómverskum kappakstri. A hann er grafið „Gefinn af Hjörleifi
Jónssyni 1846“, en Hjörleifur var bóndi og kirkjuhaldari í Eystri-Skóg-
um á miðri síðustu öld. Ljósahjálmurinn úr Skógakirkju er úr kopar, í
barokstíl. Hann er með 6 ljósaliljum og skrautliljum á milli, var áður með
12 ljósaliljum. Efst á hjálminum trónir vængjalaus hani. Báðir þessir ljósa-
hjálmar komu í safnið úr Eyvindarhólakirkju. I safninu var einnig lítill
meðhjálparabekkur úr kirkjunni í Stóra-Klofa, hann hefur nú fundið
sinn stað í kór nýju kirkjunnar.
Tvær minningartöflur úr gleri hafa varðveist frá fyrri öld. Önnur er
yfir Sigríði Einarsdóttur, d. 1865. Hún var fædd í Skógum og giftist séra
Kjartani Jónssyni frá Drangshlíð, sem lengst af var prestur í Eyvindarhól-
um. A töflunni eru þrjú vers neðst eftir séra Gísla Thorarensen prest á
Felli. Hin minningartaflan er úr Sigluvíkurkirkju, yfir Þórunni Þórðar-
dóttur, d. 1866.