Alþýðublaðið - 28.02.1960, Side 5

Alþýðublaðið - 28.02.1960, Side 5
Eftir Viðtaiiö á þessari síðu hirtist í OGGI, sfærsfa vikuriti cesare Marchi jfala, 21. janúar s. I. Af henni verður Ijóst að ... JIIMIllUIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIininillllllllllllllllllllllllllin ISLAND á ef til vill | eftir að eignast forseta, | sem talar mállýzku Fen- = eyjabúa. — Eggert Ste- | | fánsson, íslenzkt skáld og = S fyrrverandi Wagner- | | söngvari, sem á náfrænku | I Fusinato fyrir konu, hef- | Í ur lýst því yfir hér í jj I Schio, að hann ætli að | | bjóða sig fram við næstu § | forsetakosningar í heima- = | landi sínu. | iíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuinr HERRA Eggert Stefánsson, frambjóðandi við næstu for- setakosningar íslenzka lýð- veldisins, byrjar jafnskjótt og læknirinn hefur lokað á eftir sér dyrunum að bölva hjarta- og meltingartruflunum, æða- kölkun eða með öðrum orðum öllu því, sem veldur því, að 69 ára gamall maður getur ekki leyft sér að lifa samkvæmt lífsreglum tvítugs manns. „Ekkert vín, léttan mat og mikla hvíld“, segir læknir- inn. Læknisráð, sem er þeim mun erfiðara fyrir hann að fara eftir vegna þess, að hann er vanur löngum ferðalögum, góðum mat og dýrum veig- um. Til þess að sýna þá djúpu fyrirl'tningu, sem hann hef- ur á læknavíindunum, lætur hann konu sína búa til romm- te handa sér. Hann lætur á sér skilja, að hann verði því mið- ur vegna veikinda sinna að neita sér um að borða saltfisk á visenzka vísu, og hann bætir því við um leið, að hann taki það ekki síður nærri sér en að þurfa ef til vill að hafna forsetaembættinu vegna heilsubrests að tveimur árum liðnum. „Þér vilduð fá viðtal11, seg- ir hann um leið og hann sezt niður hjá gríðarstórum ofni. Það er hálfdimmt í stofunni, en þrátt fyrir það verður maður samt var við augnaráð þessara gömlu visenzku herra manna, sem festir voru eilíf- lega á léreft einhverntíma á nítjándu öld. Það er einkenni leg tilfinning að finna ein- mitt í þessu umhverfi þann mann, sem á ef til vill eftir að verða æðsti maður þjóð- ar, sem við þekkjum jafnvel enn í dag svo lítið til og sem hefur þess vegna á sér svo mikinn þjóðsagnablæ. Stefáns son er svo hár, að þegar hann situr virð'st hann standa. Og meðan ég reyni að gera mér í hugarlund, hversu háir ridd- -arar hljóti að vera í höfuð- Sigga Vigga [.\>0 HEFUR Hftr HANN PA8BA ÞINN!" borg, þar sem frambjóðendur við forsetakosningar eru 190 sentímetrar á hæð, kemur konan inn, frú Lelia Cazzola, sem er afkomandi og erfingi þessara virðulegu manna, sem olíumálverkin eru af, en þeir voru á sínum tíma brautryðj- endur á sviði ullariðnaðar. Hún er kát, málgefin og ekki ósvipuð persónu úr leik- riti eftir Goldoni, en hann er aftur á móti taugaóstyrkur, draumlyndur og víkingslegur. Þetta hamingjusama hjóna- band sameinar í vissum skiln- ingi tvær menmngarþjóðir, sem eru að öllu leyti mjþg ó- líkar hvor annarri — annars vegar þjóð, sem er mikið gef- in fyrir kaffihúsaspjall, en hins vegar þjóð, sem lifir í torræðri þögn. „Settu tvö- faldan sjúss af rommi“, segir eiginmaðurinn sk'pandi. „Ástin mín, það er vont fyrir hjartað, heyrðirðu ekki, hvað læknirinn sagði?“ „Ég sagði þér að hafa hann tvöfaldan“, svarar Eggert, „og svo er það ... og svo er það ... vilj- ið þið gjöra svo vel og hjálpa mér. Hvernig segir maður þetta á mállýzku Feneyja- búa.?“, „E ehe la sia fin'a (þ. e. svo er það útrætt mál)“, segir konan brosandi og gefst upp um leið að malda í móinn. Hún útlistar nú fyrir mér, hvers vegna ísland, sem getur þó stært sig af því að eiga elzta löggjafarþing í Norður- álfu og er bví mjög lýðræð- issinnuð þjóð, hafi samt sem áður alltaf forseta með einn desílítra af kóngablóði í æð- um að mjnnsta kosti. „í Reykjavík“, seg'r hún, „er ekki til sú fjölskylda, sem ekki. getur rakið ætt sína til konunga eða konungborinna manna. Maðurinn minn er t. d. kominn af Haraldi hár- fagra í þrítugasta og sjötta ættlið, en það var einmitt vegna ofríkis hans, sem marg- ir smákóngar flúðu frá Noregi til þess að leita að- land:. þar sem þeir gætu lifað í friði og frelsi“. VOPN, SEM BÍTUR HVORKI Á BEIN NÉ HOLD. Herra Eggert Stefánsson vill samt sem áður ekki tala um konungsættina. „Við er- um. aðalsmenn að uppruna“, segir þessi risavaxni maður, „en lýðræðissinnar er lífsvenj ur vaíðar“. (Hér mismælir Eggert sig. Hann segir „costu- manza“ í stað „costume“ þ. e. lífsvenjur, en konan kemur til skjalanna og leiðréttir hann). „Costume“, endurtek- ur hann, af því að hann hlakk ar beinlínis yfir þessum mál- spjöllum og nýtur þeirra ekki síður en þorsksins, sem veidd- ur er við íslandsstrendur og sem konan má nú ekki framar matreiða handa honum, hvorki á visenzka vísu né aðra. Og svo hejdur hann á- fram: „T1 þess að öðlast al- gert sjálfstæði, höfum við þurft að heyja baráttu við út- lendinga, einkum þó við Dani og við getum sagt, að frá 1944 séum við loksins orðnir frjálsir“. En það er einmitt í þessari sjálfstæðisbaráttu, sem Eggert Stefánsson ávinn- ur sér mikla lýðhylli fvrir mannkosta sakir. Hann barð- ist ekki með venjulegum styrjaldarvopnum af þeirri einföldu ástæðu, að íslend- ingar eiga engin slík vopn, heldur með skelfilegu vopni, sem bítur þó hvorki á bein né hold. Hann beitir sama vopní, sem Tirteo er sagður hafa be'tt, er hann leiddi Spart- verja fram til sigurs, þ. e. skáldskapnum. Eggert Stefánsson er fædd- ur í Reykjavík og er sonur múrara. Fyrst í stað helgaði hann sig sönglistinni. Þessi Wagnertenor ferðaðist um hálfan heiminn við góðan orðstír, en kom þó aðallega fram á tónleikurp í London, París og Varsjá. í eitt skipti bauð forstjóri Metropolitan- óperunnar honum kostakjör t'l þess að fá hann til að vera um kyrrt í Bandaríkjunum og hann hefði getað grætt stórfé á því ekki sízt vegna þess, að sextán ára dóttir forstjórans varð ástfangin af honum. En í Eggert bjó það farandeðli, sem hafnar víssunni, þegar óvissan er annars vegar. Hann ferðaðist landa á milli og hélt tónleika á eigin kostnað, en hann gætti þess vel að hafa einlægt einhver íslenzk lög með á söngskrá sinn', þar á meðal ísland ögr- um skorið, þióðsöng íslend- inga, sem bróðir hans samdi. Hann var í rauninni sendi- herra þjóðar sinnar, þótt hann hefði að vísu engin skilríki í höndunum. Á kvöldin, þegar tónleikunum var lokið sóttust menn eft'.r að komast í kynni við Eggert til þess að slá hon- um gullhamra (þeirra á með- al var t. d. Emil Ledner, um- boðsmaður Carusos). Þá lof- söng Eggert gjarnan fegurð ættjarðarinnar, sem er ekki eins köld eins og menn halda, af því að golfstraumurinn, sem Stóra-Bretland vefur um sig eins. og trefli, nær engu að. síður með nokkra enda allffi leið til íslands. Og hann skrifaði bækur, orti kvæði, hélt erindi í út- varpið til þess að kynna meg~ inlandsbúum landið við heim- skautsbaug, þar sein vínber, bananar, tómatar og stórkost- legar rósir vaxa og þar sem menn deyja næstum úr hita í heimahúsum, og allt er þettai því að þakka, að íslendingar hafa kunnað að beizla heita» vatnið, sem þessi undarlega jörð gýs úr sér við rætur fann hvítra jökla. Dag nokkurn kynntist hanr> ítalskrí námsmey í London. Hann játaði henni ást sína og bauð henni að lifa með sér hættulegu ævintýralífi þeirra manna, sem unna skáldskap, sönglist og ættjörð og hún tók boðinu. Væri hann skáld, þá hafði hún líka lifað og hræxzt í skáldskap frá því hún var smástúlka. Áður en hún var send til náms til London, lagði hún iðulega leið sína til „Mon- tan'ana“5 sveitasetursins, þar sem Fagazzaro lætur skáld- söguna um Leila gerast og rithöfundurinn gamli tók hana á hné sér og hvatti hana til að skrifa. „Skrifaðu það sem ímyndunaraflið býður þér, segi ég“. |]ggert söng um frelsi ætt- jarðarinnar, en það má h'ka finna meðal forfeðra Leliu mann, sem leið ekki minna fyrir ættborg sína, Feneyjar, en Eggert fyrir ísland. Sá maður hét Arnaldo Fusinato og var ömmubróðir Leliu. Hún fylgdi skáldinu og sön,gv- aranum á ferðum hans œri meginlandið, þangað til stríð- ið skildi þau að, en frúin* dvaldi í Schio á styrjaldarár- unum. 1944, þegar sambandslösin við Dani gengu úr gildl, skipt ust íslendingar í tvo jafn- stóra flokka. Annars vegar voru þeir, sem vildu fresta sambandsslitunum og hins veerar þeir, sem kröfðust al~ gjörs sjálfstæðis þegar í stað, Það var bá, sem Eggert saf út óð, sem þrunginn var 3vr- iskum eldmóði og krafti, Óð- inn til ársins 1944, sem byrj- ar á þessum orðum: ,,'Vertu hljóð, og vertu kyrrlát, þú hamingjusama þióð. Velkom- inn gestur kom til þín í nótt, velkomnasti gesturinn, sena Framhald á 14. síðu. Alþýðublaðið — 28. febr. 1960

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.