Alþýðublaðið - 28.02.1960, Síða 16
Skíðastökkið verður
hápunktur leikanna
Segir Setterberg, fréttamáður Alb-bl.
SQUAW VALLEY, 25. febr.
— Ég bíð með óþreyju eftlr
sunnudeginum, síðasta degi
Vm. Vetrarolympíuleikjanna.
Þá verður háð keppni í skíða-
stökki. Margir segja, að sú
grein' muni verða langmest sótt
af áhorfendum og ég er ekki
í 'nokkrum vafa um að skíða-
stökkið verður glæsilegasta
keppnisgrein þessara vetrar-
Jeikja. Mér finnst skíðastökk
skernmtilegasta gren skíðaí-
þróttarinnar. Stökkþallurinn
hér er fyrsta flokks, keppnin
verður stórkostlegasta skíða-
stökkskeppni allra tíma og
allir keppendurnir eru í góðri
æfingu og miklum vígahug.
„KEPPNI VERÐUR GEYSI-
KÖRГ, SEGIR
RECKNAGEL.
Sá, sem flestir spá sigri, er
Þjóðverjinn Recknagel, sem
næstum virðist geta ákveðið
eftir geðþótta stökklengd sína
og stíll hans er frábær. Ég hrtti
hann eftir æfinguna í dag og
átti stutt viðtal við hann.
ÞARNA sjáið þið Reckna-
gel t. v. og Yggeseth, en
margir eru þeirrar skoð-
unar, að baráttan um gull
ið verði fyrst og fremst
milli þeirra, en allt getur
skeð. Fréttaritari Alþýðu-
blaðsins í Squaw Valley
átti viðtal við þá fyrir 3
dögum, en það er hér á
síðunni.
— Þú ert álitinn vænlegast-
ur til sigurs á sunnudaginn?
— Ja, það er nú það. Ekki
er því að neita, að ég er í góðri
æfingu, en ekkert má mistak-
ast ef stökk mín eiga að duga
til sigurs. M.sheppnað að-
rennsli og lending' getur kost-
að sigurinn. Keppnin verður
tvímælalaust geysihörð.
Finnar áttu Olympíumeistar-
ann 1956 og ég heilsáði upp á
finnsku þátttakendurna í morg
un. Þeir fluttu sig frá Squaw
Valley strax í upphafi leikanna
og búa í grennd við Tahoa
vatnið Þar er gott og rólegt
að dvelja, ég álít bað betra en
Olympíuþorpið, meiri kyrrð og
ró. Finnsku stökkmennirnir
vildu lítið segja, það kemur í
ljós á sunnudaginn, segja þeir.
Bezti stökkmaður Norð-
manna, Yggeseth. var einnig
þögull, en hann er álitinn helzt
geta ve'tt Recknagel keppni.
^.ð lokum hitti ég Skarphéð-
inn Guðmundsson, keppanda
vkkar. en hann er býsna góður
stökkmaður, þó að ekki sé hægt
að reikna með honum framar-
lega í þessari keppni,.Hann, hef
ur stokkið um 80 metrá á æf-
ingum, eins og ég sagði í
skevti til ykkar, Skarphéðinn
sagði m. a.:
— Hér er gaman að vera og
æfa sig innan um alla þessa
stórkarla, en flestir þe'rra
verða sjálfsagt á undan mér,
þrátt fyrir mína 80 metra,
sagði hinn hógværi íslending-
ur brosandi. — En gaman er
að stökkva svona langt. Heima
| hef ég aðeins getað stokkið í
50 metra stökkbraut. . Mér
1 finnst ég stöðugt vera að ná
betra valdi á stílnum og lend-
ingunni £ löngu stökkunum, en
allt tekur þetta sinn tíma.
| Á laugardaginn verður keppt
í 50 km. skíðagöngu (hún var
í gær) og Svíarnir reikna með,
að Fmnar verði skeinuhættir
þar. Þetta sagði einn af sænsku
fararstjórunum við mig rétt
áðan og Jernberg er á sömu
i skoðun. Mesti áhorfendafjöldi
á dag hér hefur verið 30 þús.
SIDNEY, 27. febr. (NTB—
REUTER). Á sundmeistaramóti
Ástralíu, sem hófst hér í dag,
setti Dawn Fraser 2 ný heims-
met. Hún synti 220 yds skrið-
sund á 2:11,4 mín., sem bæði er
met í 200 m og 220 yds. Einnig
setti John Konrads heimsmet í
1650 yds, 17:11,0 mín., 17,7 sek.
betra en hans eigið met var!
Neville Hayes synti 110 yds
flugsund á 1:03,0, sem er sek.
betri tímii en staðfesta metið, en
Bandaríkjamaðurinn M. Troy
hefur synt á 1:00,2, en það hef-
ur ekki verið staðfest enn.
ENSKA knattspjftnan í gær:
I. DEILD:
Arsenal—Newcastle 1:0
Blackburn—Tottenham 1:4
Blackpoöl—Manch. Utd. 0:6
Bolton—Burnley 2:1
Everton—Prestón 4:0
Luton—-Leicester 2:0
Fulham-—Leed 5:0
Manch. C.—Birmingham 3:0
Nottingham—West Ham 3:1
Sheff. Wed,—Chelsea 1:1
Wolves—WBA 3:1
II. DEILD:
A. Villa—Sheff. Utd. 1:3
Brighton—Liverpool 1:2
Bristol R.—Bristol C. 2:1
■Huddersf.—Rotherham 2:1
Ipswich—Card.ff 3:4
Lincoln—Hull 3:0
Portsmouth—Revby 2:3
Stoke—Plymouth i:0
Sunderland—Middlesbr. 2:2
Swansea—Charlton 5:2
í DAG lýkur VIII. Vetr-
ar-Ólympíuleikunum í
Squaw Valley, stórkost-
legustu vetrarleikunum
til þessa.
Þá verður keppt í skíða-
stökki, mest umtöluðu
greininni. Sýning verður
í listhlaupi á skautum, úr-
slit í ísknattleik og loks
verður leikunum slitið.
41. árg. — Sunnudagur 28. febrúar 1960 — 48. tbl.
Skarphéðinn.
Hamalainen sigraði í
50 kílómetra göngu
SQUAW VALLEY, 27. febr.
(NTB). Hinir fjölmörgu áhorf-
endur, sem safnazt höfðu sam-
an við skautabrautina í morgun
til að fylgjast með 10 km, bjugg
ust við góðum afrekum og
heimsmeti.
Þegar í 2. riðli fóru að gerast
stórtíðindi, lítt þekktur Svíi,
Kjell Báckmann, setti' nýtt
heimsmet, 16:14,2 mín., en stað
fest met Hjallis er 16:32,6 mín.
í 4. riðli hjóp Norðmiaðurinn
Knut Johannesen og hlaup
hans var stórkostlegt og árang-
urinn — 15:46,6 mín.! ■— frá-
bært nýtt heimsmet.
Það ríkti mikil gleði meðal
Norðmanna yfir hinu frábæra
afreki Johannesen í 10 km, sem
telja verður mesta afrek í
skautaíþróttinni til þesisa dags.
Knut sjálfur var hinn rólegasti,
en auðvitað yfir sig glaður. ,,Ég
var mun þreyttari eftir 5000 og
1500,“ sagði hann. ,,Ég bjóst við
góðu mtíma, en alls ekki svo
góðum sem 15:46,6 mín. sagði
Knut brosandi. ísinn var dá-
samlegur og blankalogn. Milli-
tími Knuts á 5 km var 7:52,0.
50 kílómetra gangan
hófst kl. 8 í morgun eftir staðar
tíma. Eftir 20 kílómetra hafði
Finninn Hámálainen forustu.
Hámálainen hafði enn for-
ustu eftir 40 km á 2:21,35, Ha-
kulinen: 2:22,17 og Rámigárd
2:23,58 mín.
IJrslit urðu þau í 50 km göng
unni, að Finninn Hámálainen
sigraði örugglega eftir að hafa
haft forustu alla leiðina, annar
Framhald á 7. síðu.
,
Knut Johannesen: Nýtt heimsmet.