Víkverji

Útgáva

Víkverji - 26.06.1873, Síða 3

Víkverji - 26.06.1873, Síða 3
Norðanfari ætlar, að Laudshöfðingi hafi átt hlut í brejtingu þeirri á embættaskipun bér á landi, er konungr hefir fyrir skipað með úrskurðum sínum 4. maí og 29. júní f á., og lýtir Norðanfari konugsfulltrúa einkum fyrir það. Þetta er nú eitt af því, er vér sísi skiljum bjá Norðlendingnum. Með úrskurðum þeim, er nefndir eru, er als engi breyting gjör á stjórnarfari voru. Vér höfum enn ina sömu einveldisstjórn, sem vér höfum haft, síðan er konungalögin voru iögleidd hér á landi, en þótt vér hefðum haft ina frjálsustu lýðveldisstjórn, hefði varla nokkur heilviti maðr getað verið í mót þeirri breytingu, er á er orðin með nefndum konungsboðum. Hvort heflr Norðanfari gleymt því, að sú hefir verið aðalstefna allra þjóðflokka vorra, alla þá stund, er rætt hefir verið um þjóðréttindi vor, að fá stjórnina svo i n n 1 e n d a, sem verða má, er konungr vor sitr í Danmörku? Veit Norðanfari ekki að jafnvel forfeðr vorir skildu sér til handa að hafa jarl yfir sér og íslenzka lögmenn og sýslumenn, og hafa eigi utanstefnur, «því að þar höfum vér marg- faldan skaða af fengið, og við það þykjumst vér eigi búa mega» (endrnýun gamla sátt- mála 1302)? 1*6113 var álit forfeðra vorra, meðan mentunin var sem mest 1 landi voru og bókmentir vorar frainar bókmentum allra annara þjóða á norðrlöndum og í mestum hlut norðrálfu, enda hafa og inir bestu og fremstu landar vorir starfað að því á inum síð- ari límum; vér skulum að þvf leyti minna á álit og tillögur nefndarinnar í stjórnarskipunarmál- inu 1851; «það segir sig því reyndar sjálft, að eins og þetta fyrirkomulag bæði löggjafar- og framkvæmdarvaldsins er óhafandi, einkum við oss íslendinga, eins hlýtr öll in æðri stjórnarat- höfn á málefnum vorum að fara fram i land- inu sjálfu». Engi getr mælt í mót því, að þeir 2 konugsúrskurðir, er vér gátum um, lúta beint að því, að koma allri inni æðri stjórn í þetta horf, og finst oss sem það beri vitni um inn herfilegasta ókunnleik á því, er getr komið þjóð vorri fram, að lýta embætt- ismann fyrir það, að hann hefir starfað að slíku. Segja má, að sú breyting, er nú hefir á orðið, sé eigi það, er þjóðfundrinn, er vér vitnuðum fyr til, liafi viljað á leið koma, og alþingi vort siðan haft að varabeiðni. Eins og kunnugt er, lúta kröfur þessar að því, að konungr skipi jarl yfir oss, þann er hafi ið æðsta vald i landinu, og að einn eðr fleiri stjórnarherrar verði 6kipaðir til framkvæmdar stjórnarstarfa, og hver maðr sér, að það er miklum mun dýrðlegra fyrir lantlið að hafa «jarl» og «stjórnarherra» en þenna eina lands- höfðingja. t*essu viljum vér svo svara: Verði þetta fyrirkomulag, er þannig er fyrir hugað dýrðlegra, þá verðr það og drjúgum dýrara en það, er vér nú höfum. Jarl ætti sjálfsagt að halda hirð og minni laun en 30,000 rd. mætti því varla veita honum — lífeyrir konungs vors er 600,000 rdl. — hver stjórnarherra skyldi hafa að minnsta kosti 6000 rdl. að launum, og ef nú væri viðaukið við laun þessi launum ritstofu stjóra hvers stjórnarherra, þyrfti allt að 50,000 rd. árlega til slíks stjórnarfyrirkomulags. Vér vitum, hve opl hefir kvartað verið um toll þann, er lagðr er á oss til greiðslu al- þingiskostnaðarins, þessi tollr hefir ekki verið meiri en nær 10,000 rdl. annaðhvort ár, eðr 5000 rdl. árlega, en hvað ætli bændr vorir segðu, ef jarls tolli 10 sinnutn svo stórum yrði aukið við alþingingistollinn ? ætli þeim þætti eigi nóg um dýrðir ? Einsog vér erum eigi fylhlega ánægðir með úrslit þau, cr fjárhagsmál vor hafa fengið með lögum 2. janúar, 1871 og vér höfðum æskt að fá betri kosti hjá Dönum en oss hefir hlotnast, þykir oss það eitt vera, er finna má að inum tíðnefndu konungsúrskurð- um, að þeir fara cigi nógu langt, að þeir setja of þröngt endimörk sýslusviði landshöfð- ingja gagnvart stjórninni í Kaupmannahöfn, en það er mál í millli hans og stjórnarinnar. Vér höfum fengið það, er mestu varðar, ó- vilhallan landstjóra hér á laudi, er allir em- bæltismenn lúta undir, svo að nú þarf engi, er vill kæra úrskurð yfirvalds fyrir stjórninni, að fara úr landi með kæru sína, en á nú kost á að færa kærumál sitt fyrir konungs- fulltrúa hér innlendis á tungu sjálfra vor og að fá aptr svar, er hann fær sjálfr svo skilið, að hann þarf eigi ieita fulltingis málþýðanda.

x

Víkverji

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.