Víkverji

Eksemplar

Víkverji - 07.08.1873, Side 4

Víkverji - 07.08.1873, Side 4
68 bæarins skyldi taka í brunabólafélag inna dönsku kaupstaða, en þegar mátið kom fyrir ríkisþing, töldust ýms vandkvæði á þvi, og var því frestað. Inn 14. dag maím. 1870 voru gefin ný lög fyrir félag það, er vér nefndum, og stjórn þess var falin á hendi nefnd fulttrúa, er kosnir voru í inum ein- stöku dönsku kaupslöðum, og bæarstjórnin hreifði nú málinu að nýu með því að senda stjórninni bænarskrá. Málið var borið upp fvrir fulllrúa inna dönsku kaupstaða, og féll- ust þeir, með fram fyrir in kröptugu með- mæli stiptamtmannsins, er þá var á, að Reyk- víkingar yrðu teknir í félag með þeim með nokkrum skilyrðum, og irinum vér hér helst þessi: Öllum húsum i Ileykjavík skal halda í á- byrgð með fullu verði þeirra eptiv virðingar- gjörðum. I’élagið ábyrgist eigi nema 2 þriðjunga af verðinu, en Reykjavíkrkaupstaðr tekr sjálfr að sér ábyrgðina fyrir ’/3 af því. Húseigendr skulu greiða árlcga af hverju 100 rd. ábyrgðarverði vanalegra íveruhúsa, fyrir steinhús með eðr án bindings þegar þakið er úr tré eðr öðru jafneldfimu efni 26 sk. þegar þakið er eldtraust .... 20 — fyrir hús af lakari gjörð með eldfimu þaki 32 — — — — — — — eldtrauslu — 26 — og eru í þessari upphæð fólgin umboðsgjöld 6 sk. af hverju 100 rd. árleigu. Hér eptir var samið frumvarp það til til- skipunar um ábyrgð fyrir eldsvoða í Reykja- víkrkaupstað, er lagt var fyrir þingið. Nefndin (Haldór þ.m. Reykvík., Jón þ.m. S.Þingeyinga, Björn þ.m. S.Múlas., Egill þ.m. Snæfell. og Páll þ.m. Húnvetn.) réð þinginu til að beiðast þesa, að Hans Hátign mætti allramildilegast þóknast, að löggilda frumvarp þetla óbreytt sem allrafyrst, og félst þingið á þessa tillögu. 12. Málið um friðuná lagsi er sprotlið af bænarskrá til alþingis árið 1867 frá nær 150 Borgfirðingum. Alþingi samdi eptir til- drætli þessarar bænarskrár frumvarp til til- skipunar, er fór því fram, að lagsveiðr verði að eins leyfð á vissum tíma árs (á virkum dögum, frá 21. maí til 31. águst), að smá- lags yrði með öllu friðaðr með því, að banna aðrar veiðivélar en þær, er einungis má veiða með stóran lags (meira en 8 þumlungar um- máls) og að bannað yrði að byrgja með öllti vatnsföll þau, þar er lags gengr. Sljórnin leitaði álita amtmannanna í vestr- og norðr- og anströmtunum um þetla mál, og réð þá amtmaðrinn í norðr- og auslramtinu með öllu frá, að alþingisfrumvarpið yrði gjört að löguin, þar sem það væri sarnið eptir út- lenzkum lögum án nægitegs tillits til, hvernig hér hagar til, en amtmaðrinn í veslraintinu stakk upp á fleiri breytingum við frttmvarpið, og er stiptamtmaður hafði sagt álit sitt um þessar breytingar, var nýtt frumvarp lagt fyrir alþingi 1871. Samhliða álitskjali því, er al- þingi samdi nti, kom til sljórnarinnar bæn- arskrá frá 17 alþingismönnum, er ntólmælti ákvörðun í alþingisfrumvarpinti um, að eigi mælti setja grindr né leggja net frá garð- endum yfir straum, og taldi það betra að frcsta málinu að öllu leyli, en að láta fruin- varp, er hefði þessa ákvörðun, verða lög. Stjórnin réð hér af, að rnálið hefði eigi í öll- um greinum sínum verið svo gaumgæfilega ihugað, sem æskilegt var, og lagði fvrir því nú nýtt frumvarp fyrir þingið. Nefndin (Hjálmr þ.m. Mýram., Páll þ.m. Húnvetn. og Páll þ.m. N.Múlas.) lagði til, að þingið ráði frá, að frumvarp það, er hér ræðir um, verði gjört að lögum, og að það beiðist þess, að nefnd verði sett hér á landi, og skuli hún skipuð þeim mönnum, er kunnugir séu lagsveiðum, og einum lagamanni, og út- vega skýrslur frá inum ýmsu héruðum, þar er lagsveiði er við höfð, og búa síðan til frumvarp til tilskipunar um friðun á lagsi, og skuli þvl næst leggja frumvarp það fyrir alþingi; þessari tillögu samþyktist þingið. 13. Málið um stofnun lagaskóla hefir verið svo opt rætt á alþingi að undanförnu að varla mun þörf að rekja sögu þess, enda má lesa ritgjörð hér um I nýum félagsritum 1872. Aðalástæðan til þess, að skólinn var eigi seltr á stofn, meðan Danir höfðu ráð á fé vorti,var sú, að kostnaðrinn er hefir ver- ið áætlaðr þannig fyrir hvert ár

x

Víkverji

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.